Arna Magnea Danks
„Við erum bara fólk eins og annað fólk“
Arna Magnea Danks
Innlent

Neyt­endur beðnir um að farga jógúrt frá Örnu

Innlent

Hörður hót­aði lög­reglu­manni nauðgun og spark­aði í annan

Innlent

Rað­kúk­ari Ragnars snéri aftur á Hrekkja­vöku

Fólk

Björk Guð­munds­dóttir er ólétt

Peningar

Samherji hyggst reka vinnu­búðir með gist­ingu

Fólk

„Með­höndla full­orðið fólk sem lifir enn eins og það séu börn“

Innlent

Erlendur maður grip­inn við skjala­fölsun við Hvera­gerði

Innlent

Jódís spyr hvar mót­mæl­end­urnir séu nú

Fólk

Selja fal­lega sveita­sælu í Ölfusinu með risa­stórri lóð

Fólk

Lúxu­sein­býli á Arn­ar­nes­inu komið á sölu fyrir 340 millj­ónir

Tilkynnti um þjófnað úr bíl sínum – Lögreglan mætti á vettvang og þá kom þetta í ljós

Tilkynnti um þjófnað úr bíl sínum – Lögreglan mætti á vettvang og þá kom þetta í ljós
Lög­reglan að störfum í mið­borg­inni Mynd/Lára Garð­ars­dóttir

Dagbók lög­reglu er stút­full að þessu sinni; svo mikið var að gera í nótt að fjöl­miðla­póstur næt­ur­innar var sendur út af varð­stjóra dag­vaktar; já, sökum anna hjá næt­ur­vakt­inni sem ein­fald­lega komst ekki í verk­efnið.

En hjá lög­regl­unni á Höf­uð­borg­ar­svæð­inu gista nú 11 manns fanga­geymslur fyrir hin ýmsu brot. Í ofan á lag við þau mál sem hér eru nefnd að neðan þá var mikið að gera hjá lög­reglu að lækka í sam­kvæmum í heima­húsum auk þess sem tölu­verð ölvun var í mið­borg­inni og þurftu nokkrir aðstoð lög­reglu við að kom­ast ýmist á fætur eða til síns heima.

Lög­reglu­stöð 1

Tveir hand­teknir í mið­borg­inni. Reyndust þeir báðir vera með piparúða á sér auk þess sem annar er grun­aður um vörslu á fíkni­efnum. Þeir gista nú fanga­geymslur lög­reglu.

Ökumaður bif­reiðar olli umferð­ar­slysi. Þá kom í ljós að hann var veru­lega ölv­aður og gistir fanga­geymslur í þágu rann­sóknar máls­ins. Mikið tjón á bif­reiðum.

Ökumaður bif­reiðar stöðv­aður vegna gruns um akstur undir áhrifum fíkni­efna. Laus að blóð­sýna­töku lok­inni.

Ökumaður bif­reiðar stöðv­aður vegna gruns um ölv­un­arakstur. Laus að blóð­sýna­töku lok­inni.

Til­kynn­ing barst lög­reglu um þrjá aðila í slags­málum í mið­borg­inni. Þegar lög­regla ætl­aði að fá hjá þeim per­sónu upp­lýs­ingar var djúpt á skil­ríkjum. Menn­irnir vistaðir í fanga­klefa en þeir eru grun­aðir um brot á útlend­inga­lög­unum.

Tilkynnt um slas­aðan aðila eftir raf­hlaupa­hjólaslys. Þá reynd­ist hann einnig vera ölv­aður og lék grunur á að hann hefði ekið raf­hlaupa­hjól­inu undir áhrifum áfengis. Laus að blóð­sýna­töku lok­inni.

Ölvaður öku­maður hand­tek­inn. Laus að blóð­sýna­töku lok­inni.

Óskað var eftir aðstoð lög­reglu vegna slags­mála sem hefðu brut­ust út inni í bif­reið. Þar hefðu tveir farið að deila og náði hinn yfir­hönd­inni með þeim afleið­ingum að annar þurfti að leita á slysa­deild á eftir. Grunur lék á að um stór­felda lík­ams­áras væri að ræða og var því annar þeirra vistaður í fanga­klefa í þágu rann­sóknar máls­ins.

Lög­reglu­stöð 2

Tilkynnt um fjög­urra bíla árekstur á Víf­ils­stað­ar­vegi. Ekki um slys á fólki að ræða.

Tilkynnt um notkun flug­elda. Eins og alþjóð veit er það ólög­legt á þessum árs­tíma. Rætt við hlut­eig­andi og lof­uðu þeir að láta af sprengju­æð­inu.

Lög­reglu­stöð 3

Tilkynnt um þjófnað úr bif­reið. Ekki var að sjá að búið hefði verið að brjót­ast inn í bif­reið­ina en eig­andi hennar sakn­aði samt hinna ýmsu muna.

Tilkynnt um menn að ráð­ast að öðrum með hafna­bolta­kylfum. Lög­reglan fór á vett­vang og aðstoð­aði brota­þola. Gerendur voru hins vegar á bak og burt og er þeirra nú leitað. Þeir reynd­ust allir hylja and­lit sín með grímum.

Tilkynnt um slags­mál að bar í Kópavogi. Tveir menn reynd­ust þar hafa lent í áflogum við hvorn annan. Ekki talin þörf á að vista menn­ina fyrir lík­ams­árás en þurfti annar þeirra að leita aðstoðar á slysa­deild vegna máls­ins.

Tilkynnt um eld í bif­reið. Þegar lög­reglu bar að reynd­ist ein bif­reið alelda og að auki hafði eld­ur­inn náð að teygja sig yfir í fjórar aðrar bif­reiðar. Mikið eigna­tjón. Málið er í rann­sókn.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

3
Minning

Helgi Ólafsson er fall­inn frá

Helgi Ólafsson, raf­virkja­meist­ari á Rauf­ar­höfn, lést á Dval­ar­heim­il­inu Hvammi 27. októ­ber, 97 ára að aldri. Morg­un­blaðið greindi frá and­láti hans. Helgi fædd­ist á Rauf­ar­höfn 31. maí 1929 og ólst þar upp. Hann lauk sveins­prófi í raf­virkjun árið 1950 og hlaut meist­ara­rétt­indi fimm árum síðar. Hann starf­aði við raf­virkjun alla starfsæv­ina, meðal ann­ars fyrir Síld­ar­verk­smiðjur rík­is­ins og SR-mjöl, auk þess að...

Mest lesið í vikunni

Heimur

Dómari hafnar kröfu um að leyna nafni þekkts ein­stak­lings

Maðurinn vísaði til sjálfsvígshættu í máli sínu gegn fjölmiðlunum.
Pólitík

Anna María ótt­ast að höggvið verði of nærri kjarna sam­fé­lags­ins

Innlent

MAST varar við neyslu á skinku frá Stjörnu­grís

Pólitík

Sigurjón segir bank­ana reka okur­stefnu og „éta útsæðið“

Heimur

Trump segir Banda­ríkin hætta fjár­hags­að­stoð við Ísrael

Innlent

Innlent

Segir sölu Ljós­leið­ar­ans geta ógnað almanna­hags­munum

Herdís Kjerulf Þorgeirsdóttir varar við að einkavæðing mikilvægra fjarskiptainnviða geti veikt öryggi kerfisins og stöðu almennings.
Innlent

Kona á fimm­tugs­aldri ákærð fyrir að aug­lýsa vændi á Akureyri

Innlent

Sendi­bíl­stjóri vann VÍS og fær tæpar 16 millj­ónir

Innlent

Jóhann dæmdur í 18 mán­aða fang­elsi fyrir barn­a­níðs­efni

Innlent

Létu greipar sópa í Bónus, ELKO og Kids Coolshop

Innlent

Getur munað rúmum 22 þús­und krónum á umfelgun fólks­bíls