Anna Kristjánsdóttir
„Ég lokaði af allar tilfinningar og gerðist kall.“
Anna Kristjánsdóttir
Innlent

Neyt­endur beðnir um að farga jógúrt frá Örnu

Innlent

Hörður hót­aði lög­reglu­manni nauðgun og spark­aði í annan

Skoðun

Strætó hefur aldrei verið verri

Innlent

Rað­kúk­ari Ragnars snéri aftur á Hrekkja­vöku

Innlent

Falsaðar ljós­myndir orðnar algengar í fast­eigna­aug­lýs­ingum

Fólk

„Með­höndla full­orðið fólk sem lifir enn eins og það séu börn“

Fólk

Lúxu­sein­býli á Arn­ar­nes­inu komið á sölu fyrir 340 millj­ónir

Innlent

Jódís spyr hvar mót­mæl­end­urnir séu nú

Innlent

Erlendur maður grip­inn við skjala­fölsun við Hvera­gerði

Landið

Nál fannst í hrekkja­vökusúkkulaði á Akureyri

Nærmynd af Birnu Einarsdóttur bankastjóra: Ofsóknir, kúlulán og krabbamein

Nærmynd af Birnu Einarsdóttur bankastjóra: Ofsóknir, kúlulán og krabbamein

Skýrsla Fjár­mála­eft­ir­lits­ins um meint mis­ferli stjórn­enda Íslands­banka var opin­beruð í dag. Rann­sóknin á sölu á hluta bank­ans leiddi í ljós alvar­leg og kerf­is­læg brot bank­ans.  Birna Ein­ars­dóttir banka­stjóri og stjórn bank­ans féllust á að greiða 1.200 millj­ónir króna í sekt. Birna stað­hæfði í fjöl­miðlum að hún nýti trausts stjórnar bank­ans og ætl­aði að sitja áfram sem banka­stjóri. En það eru blikur á lofti og ljóst að banka­stjóra­stóll hennar er sjóð­heitur.

Bæði Katrín Jak­obs­dóttir for­sæt­is­ráð­herra og Lilja Dögg Alfreðs­dóttir, menn­ingar- og við­skipta­ráð­herra, hafa kallað eftir ábyrgð Birnu og ann­arra stjórn­enda bank­ans. En hver er Birna Ein­ars­dóttir?

Birna er fædd árið 1961 og er gift John Hine. Saman eiga þau dótt­ur­ina Ellen M. Hine. Hún lauk stúd­ents­prófi í Verzlunarskóla Íslands og er með Cand.Oecon.-gráðu í við­skipta­fræði frá Háskóla Íslands og MBA-gráðu frá Háskól­anum í Edinborg. Birna hefur starfað sem mark­aðs­stjóri Íslenska útvarps­fé­lags­ins, Stöðvar 2 og Íslenskrar get­spár. Birna hefur einnig, meðal ann­ars setið í fram­kvæmda­stjórn Samtaka atvinnu­lífs­ins og Við­skipta­ráðs Íslands. Á árunum 1998 til 2004 starf­aði Birna sem vöru­stjóri hjá Royal Bank of Scotland. Birna starf­aði jafn­framt sem fram­kvæmda­stjóri við­skipta­banka­sviðs Íslands­banka en hafði áður gegnt stöðu fram­kvæmda­stjóra sölu- og mark­aðs­mála, úti­bús­stjóra og mark­aðs­stjóra hjá Íslands­banka.

Kúlulán

Sumarið 2007 var henni boðið starf sem fram­kvæmd­ar­stjóri við­skipta­svið Glitn­is­banka sem hún þáði. Á sama tíma greind­ist hún með þrjú ill­kynja krabba­mein í brjósti og hóf hún erf­iða bar­áttu við meinin sem hún sigr­aði. Með nýja starf­inu fylgdi kúlu­lán upp á heilar 185 millj­ónir króna.

„Ég gerði samn­ing við bank­ann og tók sæti í fram­kvæmda­stjórn. Ég stóð í þeirri mein­ingu að þessi við­skipti hefðu gengið í gegn, enda voru þau til­kynnt í Kauphöll. Lánið var svo­kallað kúlu­lán og átti ekki að greið­ast fyrr en með einni greiðslu þann 29. mars 2012 og þá með áföllnum vöxtum og kostn­aði,“ sagði Birna í yfir­lýs­ingu eftir að fjallað var um lánið í fjöl­miðlum árið 2008 en þá var hún nýtekin við sem banka­stjóri Nýja Glitnis, sem var heitið á bank­anum áður en því var breytt í Íslands­banka. Vegna galla á samn­ingnum gekk þó kúlu­lánið aldrei í gegn.

Í kjöl­far hruns­ins fann Birna vel fyrir reiði almenn­ings en á tíma­bili var setið um heim­ili hennar. Þá var blóð­rauðri máln­ingu skvett á heim­ili hennar. Maður sem kall­aði sig Skap Ofsi var að lokum hand­samaður fyrir að skvetta máln­ingu á heim­ili Birnu og fleiri auð­manna árið 2009. Í við­tali við Reyni Trausta­son í hlað­varps­þætt­inum Mann­lífið var hún spurð hvort hún hefði aldrei verið hrædd. „Jú, örugg­lega. Það fennir sem betur fer vel yfir þennan tíma,“ svar­aði Birna. Bætti hún við að hún hafi alveg skilið reiði almenn­ings.

Ein valdamesta kona viðskiptalífsins

Birna stóð af sér hrunið og kúlu­lánið. Allt frá því hún var ráðin banka­stjóri Íslands­banka hefur hún verið ein valda­mesta kona við­skipta­lífs­ins. Hún hefur stýrt banka sínum með hagn­aði langt á annan ára­tug. Allt fram að einka­væð­ing­unni umræddu stóð hún styrkum fótum í starfi sínu. Nú er allt annað uppi á ten­ingnum og banka­stjór­inn er kom­inn fram á hengiflugið í kjöl­far him­in­hárrar sátta­greiðslu Íslands­bank­ans vegna söl­unnar á hluta af eign rík­is­ins í bank­anum.

Birna sagði í við­tali við fjöl­miðla að hún hyggð­ist ekki segja af sér sem banka­stjóri Íslands­banka. „Ég nýt trausts inn­an stjórn­ar bank­ans og mun gegna starfi mínu áfram,“ sagði hún í við­tal­inu. Í sama við­tali sagði hún bank­ann hafa dregið mik­inn lær­dóm af mál­inu en þau orð hafa væg­ast sagt farið illa í almenn­ing.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

3
Minning

Helgi Ólafsson er fall­inn frá

Helgi Ólafsson, raf­virkja­meist­ari á Rauf­ar­höfn, lést á Dval­ar­heim­il­inu Hvammi 27. októ­ber, 97 ára að aldri. Morg­un­blaðið greindi frá and­láti hans. Helgi fædd­ist á Rauf­ar­höfn 31. maí 1929 og ólst þar upp. Hann lauk sveins­prófi í raf­virkjun árið 1950 og hlaut meist­ara­rétt­indi fimm árum síðar. Hann starf­aði við raf­virkjun alla starfsæv­ina, meðal ann­ars fyrir Síld­ar­verk­smiðjur rík­is­ins og SR-mjöl, auk þess að...
6
Slúður

Stjórn­ar­hættir Brynju

Einn und­ar­leg­asti atburður í íslensku atvinnu­lífi síð­ustu ár er brott­hvarf Harðar Arn­ar­sonar úr stóli for­stjóra Lands­virkj­unar eftir far­sæl störf í 17 ár. Hörður, sem hafði byggt upp fyr­ir­tækið Marel með mynd­ar­brag þegar hann tók við Lands­virkjun, hætti einu og hálfu ári eftir að Daði Már Krist­ó­fers­son fjár­mála­ráð­herra skipti alfarið út stjórn rík­is­orku­fyr­ir­tæk­is­ins. Stjórn­ar­for­mað­ur­inn Brynja Bald­urs­dóttir er grjót­harður kap­ít­alisti. Hún hefur...

Mest lesið í vikunni

Heimur

Geymdi milljón myndir og mynd­skeið af mis­notkun eig­in­kon­unnar

Níu aðrir menn neita sök
Heimur

Banka­eig­andi hand­tek­inn grun­aður um að hafa tekið 430 millj­ónir dala úr hirslum

Innlent

Matthías neit­aði að hafa skallað lög­reglu­mann en búk­mynda­vélin sagði annað

Pólitík

Krafði Þorgerði svara vegna kjarn­orku­um­mæla Heimis Más

Heimur

Flaug yfir fjöll og götur á heima­smíð­uðu svif­bretti

Innlent

Innlent

Rúður brotnar í nærri þrjá­tíu bílum á Nesinu

Íbúar og vegfarendur eru hvattir til að kanna hvort upptökur úr eftirlitsmyndavélum eða bifreiðum geti nýst við rannsókn málsins.
Innlent

Einn lát­inn og annar á gjör­gæslu eftir hnífstungu­árás í Breið­holti

Innlent

Tíu nýir leitar- og björg­un­ar­kaf­arar útskrif­aðir

Innlent

Fertugur maður ákærður fyrir 267 kanna­bis­plöntur í bíl

Innlent

Brynjar ók á bíl og far­þegi þurfti í umfangs­mikla aðgerð

Innlent

Einn bak við lás og slá eftir lík­ams­árás í Árbæ