Anna Kristjánsdóttir
„Ég lokaði af allar tilfinningar og gerðist kall.“
Anna Kristjánsdóttir
Skoðun

Strætó hefur aldrei verið verri

Fólk

Helga­fell á Sel­tjarn­ar­nesi komið á sölu

Innlent

Falsaðar ljós­myndir orðnar algengar í fast­eigna­aug­lýs­ingum

Landið

Nál fannst í hrekkja­vökusúkkulaði á Akureyri

Fólk

Breið­holts­laug, Laug­ar­dalur og Hósiló meðal staða sem fá góð með­mæli

Innlent

Gleymdi kaffi­bolla og rusli og end­aði fyrir kæru­nefnd

Innlent

Vopn komu við sögu þegar ung­lingap­artý fór úr bönd­unum

Heimur

Trúður vakti óhug við grunn­skóla

Innlent

Einn lát­inn og annar á gjör­gæslu eftir hnífstungu­árás í Breið­holti

Fólk

Sjö góðar ástæður til að baka oftar

Fimmtug prestsfrú hjólaði hringinn í kringum landið með tösku fulla af sparikjólum.

Fimmtug prestsfrú hjólaði hringinn í kringum landið með tösku fulla af sparikjólum.
Mynd / skjá­skot tíma­rit.is

Árið 1987 tald­ist það til tíð­inda að sjá hjól­reiða­fólk á hring­veg­inum. Alla jafna var þá um að ræða ævin­týrasólgna ferða­menn. Hin fimm­tuga prests­frú, Auður Guð­jóns­dóttir, vakti þar af leið­andi tölu­verða athygli þegar til hennar sást á á for­láta þriggja gíra kven­manns­hjóli með fót­bremsu og með sjö spari­kjóla í fartesk­inu.

Auður Guð­jóns­dóttir, sem þá var búsett í Bergland í norð­vest­ur­hluta Ontario í Kanada, var ævin­týra­gjörn og hafði lengi dreymt um slíka ferð. Hún lét því slag standa árið sem hún hún fagn­aði 30 ára útskrift­araf­mæli og 50 ára afmæl­is­ári sínu. Löngunin til að kynn­ast land­inu betur og bjóða liða­gigt­inni, sem farin var að hrjá hana, birg­inn.

Auður hló að því lengi og sagði frá hvernig ferða­taskan hafi fyllst á leið­inni af ómót­stæði­legum spari­kjólum sem tísku­versl­anir lands­byggð­ar­innar höfðu lokkað hana til að kaupa. 

For­eldrar Auðar, sem voru búsettir í Reykja­vík, tóku vel á móti henni þegar hún kom til lands­ins frá Kanada en reyndu að fá hana ofan af ferð­inni. Þegar þau fundu að ekki var hægt að tala hana til keyptu þau handa henni, til láns, nýtt reið­hjól. 

Ferðin

Auður hóf ferð­ina í Reykja­vík, 6. júní 1987, á laug­ar­degi fyrir hvíta­sunnu og fór fyrsta legg­inn til Hvera­gerðis og var hún þrjá og hálfan tíma á leið­inni. Hún lýsir því að stans­laus umferð hafi verið úr Reykja­vík þann dag­inn og að allir nema fjórir bíl­stjórar voru til­lit­samir. Þeir fjórir sem voru það ekki flaut­uðu á hana og hróp­uðu að henni fúk­yrðum.

Ferðin var lítið skipu­lögð og lét Auður hverjum degi nægja sína þján­ingu og gleði. Þannig varð­ist Auður því að verða fyrir von­brigðum, að missa af rútu eða koma of seint. Þannig var hún ein með sinni gleði og eft­ir­vænt­ingu – en þó aldrei ein. Í lok fréttar Morg­un­blaðs­ins var Auður spurð hvort hún kviði ekki slæmu veðri eða erf­iðum brekkum. „Nei, ég kvíði engu, ég hlakka aðeins til. Ég finn að ég nýt verndar og leið­sagnar og hvernig ætti ég þá að kvíða.“

Ferðin gekk slysa­laust og tók Auði 25 daga. Hún lagði undir sig frá sex upp í 140 kíló­metra á dag. Í sam­tali við frétta­rit­ara Morg­un­blaðs­ins 17. Júní 1987 sagði Auður: „Ég var nú ekki sér­lega fyr­ir­hyggju­söm eða vel út búin. Ég keypti ekki bætur á dekkin fyrr en á Höfn í Horna­firði og regn­galla fékk ég mér ekki fyrr en á Stöðv­ar­firði. Mig langar til að taka það fram að ég bað fyrir hverjum degi í ferð­inni. Lengsti áfangi ferð­ar­innar var frá Stykk­is­hólmi til Borg­ar­ness og Hvann­eyrar í Borg­ar­firði, með smá leng­ingu á leið­inni, og sá næst­lengsti, 130 kíló­metrar, var frá Möðrudal að Holta­koti í Ljósa­vatns­hreppi. Vegirnir eru margir hverjir erf­iðir yfir­ferðar, einkum Mýr­dals­sandur og Öræfi, og oft varð ég að teyma hjólið. Til dæmis var ég klukku­tíma að baksa upp Vík­ur­skarð með vind­inn í fangið, en aðeins sjö mín­útur að fara niður hinum megin. Merk­ingum er líka víða áfátt, einkum við fjall­vegi, ár, skóla og prests­setur.“

Mynd / skjá­skot tima­rit.is

Ekki sprakk dekk hjá Auði fyrr en eftir 1.400 kíló­metra. 

Þegar hringnum var lokið heiðr­aði starfs­maður reið­hjóla­versl­un­innar Örninn hana og færði henni blóm og konfekt. Í Morg­un­blað­inu frá 18. júlí 1987 segir:

„Auður sagð­ist lítið sem ekk­ert hafa æft sig fyrir ferð­ina. „Ég fór bara hægt af stað og smá jók svo hrað­ann eftir því sem ég komst í betri þjálfun. Ferðin gekk mjög vel og ég varð aldrei ein­mana. Þvert á móti kunni ég því vel að vera ein. Ég valdi yfir­leitt næsta áfanga­stað að morgni og gisti bæði hjá kunn­ingjum og í svefn­poka­plássum. […]

 Mig langar til að taka það fram að ég bað fyrir hverjum degi í ferð­inni.“

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

3
Minning

Helgi Ólafsson er fall­inn frá

Helgi Ólafsson, raf­virkja­meist­ari á Rauf­ar­höfn, lést á Dval­ar­heim­il­inu Hvammi 27. októ­ber, 97 ára að aldri. Morg­un­blaðið greindi frá and­láti hans. Helgi fædd­ist á Rauf­ar­höfn 31. maí 1929 og ólst þar upp. Hann lauk sveins­prófi í raf­virkjun árið 1950 og hlaut meist­ara­rétt­indi fimm árum síðar. Hann starf­aði við raf­virkjun alla starfsæv­ina, meðal ann­ars fyrir Síld­ar­verk­smiðjur rík­is­ins og SR-mjöl, auk þess að...
5
Slúður

Stjórn­ar­hættir Brynju

Einn und­ar­leg­asti atburður í íslensku atvinnu­lífi síð­ustu ár er brott­hvarf Harðar Arn­ar­sonar úr stóli for­stjóra Lands­virkj­unar eftir far­sæl störf í 17 ár. Hörður, sem hafði byggt upp fyr­ir­tækið Marel með mynd­ar­brag þegar hann tók við Lands­virkjun, hætti einu og hálfu ári eftir að Daði Már Krist­ó­fers­son fjár­mála­ráð­herra skipti alfarið út stjórn rík­is­orku­fyr­ir­tæk­is­ins. Stjórn­ar­for­mað­ur­inn Brynja Bald­urs­dóttir er grjót­harður kap­ít­alisti. Hún hefur...

Mest lesið í vikunni

Innlent

Einn bak við lás og slá eftir lík­ams­árás í Árbæ

Heimur

Bauð inter­net­inu í brúð­kaupið og allt fór á annan end­ann

Myndband
Heimur

Dádýr skall á konu og braust inn í þvotta­hús

Innlent

Fluttur á bráða­mót­töku eftir að eldur kom upp í íbúð

Menning

Laxness slær í gegn hjá The Guardian

Innlent

Innlent

Rétt­ar­höld yfir Írisi „elti­hrelli“ hefj­ast á mánu­dag

Ákæran er 17 blaðsíður og ákæruliðirnir 68
Innlent

Heimir Már biðst afsök­unar á ummælum um kjarn­orku­vopn

Innlent

Hrekkja­vakan tekur yfir göt­urnar og lög­reglan varar öku­menn við

Innlent

Leigusal­inn kenndi utan­lands­ferð um veggjalús­ina

Innlent

Íslenska haustið sýnir klærnar í dag

Innlent

Hrekkja­vöku­skemmtun fór úr bönd­unum í Kópavogi