Anna Kristjánsdóttir
„Ég lokaði af allar tilfinningar og gerðist kall.“
Anna Kristjánsdóttir
Innlent

Neyt­endur beðnir um að farga jógúrt frá Örnu

Innlent

Hörður hót­aði lög­reglu­manni nauðgun og spark­aði í annan

Skoðun

Strætó hefur aldrei verið verri

Innlent

Rað­kúk­ari Ragnars snéri aftur á Hrekkja­vöku

Innlent

Falsaðar ljós­myndir orðnar algengar í fast­eigna­aug­lýs­ingum

Fólk

„Með­höndla full­orðið fólk sem lifir enn eins og það séu börn“

Fólk

Lúxu­sein­býli á Arn­ar­nes­inu komið á sölu fyrir 340 millj­ónir

Innlent

Jódís spyr hvar mót­mæl­end­urnir séu nú

Innlent

Erlendur maður grip­inn við skjala­fölsun við Hvera­gerði

Landið

Nál fannst í hrekkja­vökusúkkulaði á Akureyri

Kolsvört skýrsla Ríkisendurskoðunar um MAST: „Ætti að taka gagnrýni á störf sín af meiri auðmýkt“

Kolsvört skýrsla Ríkisendurskoðunar um MAST: „Ætti að taka gagnrýni á störf sín af meiri auðmýkt“
Frá Höfða Mynd: Steinunn Árnadóttir

Mat­væla­stofnun fær fall­ein­kunn í nýrri skýrslu Rík­is­end­ur­skoð­unar um eft­ir­lit stofn­un­ar­innar með vel­ferð búfjár.

Samkvæmt kol­svartri skýrslu Rík­is­end­ur­skoð­unar, sem Vísir segir frá, hefur Mat­væla­stofnun ekki tek­ist nógu vel að byggja upp það traust sem nauð­syn­legt er hverrri eft­ir­lits­stofnun. Auk þess hefur MAST sýnt lang­lund­ar­geð í stöku málum þar sem vel­ferð dýra er óvið­un­andi. Er þetta í sam­ræmi við þær fréttir sem Mannlíf hefur skrifað und­an­farin ár, þar sem dýra­vernd­ar­sinnar hafa kvartað ítrekað yfir seina­gangi og lélegum vinnu­brögðum MAST.

Sjá einnig: Segja MAST ekk­ert gera vegna illrar með­ferðar á kindum: „Þetta er bara aðför að okkur“

Í skýrsl­unni, sem má líta á sem áfell­is­dóm yfir MAST, segir að þó að mik­il­vægt sé að máls­með­ferð við beit­ingu íþyngj­andi úrræða sé vönduð, verði stofn­unin að leggja aukna áherslu á að stjórn­sýslu­leg fram­kvæmd verði ekki á kostnað vel­ferðar dýr­anna.

Þá er upp­lýs­inga­gjöf MAST gagn­rýnd í skýrsl­unni en þar segir að stofn­unin þurfi að huga betur að innri og ytri upp­lýs­inga­gjöf og bæta sam­skipti og sam­starf við hag­að­ila, sem og að þróa skipu­lag, verk­lag og fram­kvæmd eft­ir­lits betur og beita oftar áhættu- og frammi­stöðu­mati.

Of mikið langlundargeð

Í hinni svörtu skýrslu er sér­stak­lega minnst á lang­lund­ar­geð MASt en þar stendur meðal ann­ars:

„Ýmsa van­kanta má finna á fram­kvæmd eft­ir­lits MAST í ein­staka málum. Að mati Rík­is­end­ur­skoð­unar hefur MAST í ein­hverjum málum sýnt of mikið lang­lund­ar­geð og í öðrum til­vikum hafa aðgerðir ekki verið nægi­lega mark­vissar og eft­ir­fylgni ábóta­vant. Þá verður að draga þá ályktun að nálgun stofn­un­ar­innar gagn­vart stjórn­sýslu­legri með­ferð sé í ein­hverjum til­vikum svo var­færin að hún gangi í raun gegn mark­miðum laga um vel­ferð dýra.“

Þá segir einnig að til séu dæmi þar sem fjöldi frá­vika í búrekstri hefur verið skráður jafn­vel ára­tugum saman án þess að aðstæður hafi batnað.

„Markmið laga um vel­ferð dýra er að stuðla að vel­ferð dýra, þ.e. að þau séu m.a. laus við van­líðan, hungur og þorsta, ótta og þján­ingar. Enn fremur að dýr geti sýnt sitt eðli­lega atferli eins og frekast er unnt. Með til­liti til þessa verður að telj­ast óásætt­an­legt að langur tími líði þar sem dýr líða hungur, van­líðan og þján­ingar eða búi við óvið­un­andi aðstæður,“ segir Rík­is­end­ur­skoðun.

Skortur á auðmýkt

Telur Rík­is­end­ur­skoðun það van­traust sem ríki í garð MAST, vera alvar­legt en það ríki jafnt milli fag­fólks og almenn­ings. Er stofn­unin beðin um að sýna meiri auð­mýkt er hún fær gagn­rýni á störf sín.

„Stofn­unin þarf að róa að því öllum árum að byggja upp traust, en það er grund­völlur þess að hún geti leyst verk­efni sín far­sæl­lega af hendi. MAST ætti jafn­framt að taka gagn­rýni á störf sín af meiri auð­mýkt og fagna því að fylgst sé með mála­flokknum úr ýmsum áttum og hversu margir láta sig mál­efni dýra­vel­ferðar varða. Til að byggja upp traust í dýra­vel­ferð­ar­málum þarf stofn­unin að gæta þess að fram­kvæmd eft­ir­lits­ins sé vönduð og til þess fallin að bæta stöðu dýra. Þá er það, vegna eðlis og umfangs eft­ir­lits­ins, við­var­andi verk­efni MAST að vera á varð­bergi gagn­vart mögu­legum hags­muna­tengslum og hæfi starfs­manna.“

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

3
Minning

Helgi Ólafsson er fall­inn frá

Helgi Ólafsson, raf­virkja­meist­ari á Rauf­ar­höfn, lést á Dval­ar­heim­il­inu Hvammi 27. októ­ber, 97 ára að aldri. Morg­un­blaðið greindi frá and­láti hans. Helgi fædd­ist á Rauf­ar­höfn 31. maí 1929 og ólst þar upp. Hann lauk sveins­prófi í raf­virkjun árið 1950 og hlaut meist­ara­rétt­indi fimm árum síðar. Hann starf­aði við raf­virkjun alla starfsæv­ina, meðal ann­ars fyrir Síld­ar­verk­smiðjur rík­is­ins og SR-mjöl, auk þess að...
6
Slúður

Stjórn­ar­hættir Brynju

Einn und­ar­leg­asti atburður í íslensku atvinnu­lífi síð­ustu ár er brott­hvarf Harðar Arn­ar­sonar úr stóli for­stjóra Lands­virkj­unar eftir far­sæl störf í 17 ár. Hörður, sem hafði byggt upp fyr­ir­tækið Marel með mynd­ar­brag þegar hann tók við Lands­virkjun, hætti einu og hálfu ári eftir að Daði Már Krist­ó­fers­son fjár­mála­ráð­herra skipti alfarið út stjórn rík­is­orku­fyr­ir­tæk­is­ins. Stjórn­ar­for­mað­ur­inn Brynja Bald­urs­dóttir er grjót­harður kap­ít­alisti. Hún hefur...

Mest lesið í vikunni

Heimur

Geymdi milljón myndir og mynd­skeið af mis­notkun eig­in­kon­unnar

Níu aðrir menn neita sök
Heimur

Banka­eig­andi hand­tek­inn grun­aður um að hafa tekið 430 millj­ónir dala úr hirslum

Innlent

Matthías neit­aði að hafa skallað lög­reglu­mann en búk­mynda­vélin sagði annað

Pólitík

Krafði Þorgerði svara vegna kjarn­orku­um­mæla Heimis Más

Heimur

Flaug yfir fjöll og götur á heima­smíð­uðu svif­bretti

Innlent

Innlent

Rúður brotnar í nærri þrjá­tíu bílum á Nesinu

Íbúar og vegfarendur eru hvattir til að kanna hvort upptökur úr eftirlitsmyndavélum eða bifreiðum geti nýst við rannsókn málsins.
Innlent

Einn lát­inn og annar á gjör­gæslu eftir hnífstungu­árás í Breið­holti

Innlent

Tíu nýir leitar- og björg­un­ar­kaf­arar útskrif­aðir

Innlent

Fertugur maður ákærður fyrir 267 kanna­bis­plöntur í bíl

Innlent

Brynjar ók á bíl og far­þegi þurfti í umfangs­mikla aðgerð

Innlent

Einn bak við lás og slá eftir lík­ams­árás í Árbæ