Fara í efni
Kristrún Frostadóttir
„Þegar við tókum við var gert ráð fyrir halla á ríkissjóði næstu fimm árin“
Kristrún Frostadóttir
Innlent

Perla Líf dæmd fyrir að aka á gangandi mann og yfirgefa slysstað

Fólk

„Ég er orðinn leiður á að vera veikur“

Fólk

Áhorf­endur grunaði ekki hvernig Sölku Sól leið á meðan hún söng

Heimur

Spákona varar við alheims­rafmagns­leysi í lok árs

Fólk

Reynslu­bolti úr frétta­heiminum stofnar eigið fyrirtæki

Pólitík

Stefán Einar svarar Þorgerði með orðum Heiðu Kristínar

Innlent

Grun­semdir vöknuðu þegar sonurinn sagðist fá fría ferð til Taílands

Heimur

Kynþokka­fyllsti maður heims afskrifar 200 milljónir dala í læknis­skuldum

Innlent

Kökuboð á Patreks­firði endaði fyrir dómi

Innlent

Sakar ríkis­stjórnina um að gera lítið úr vinnu láglauna­fólks og foreldra

Solaris fordæmir orðræðu Bjarna Ben: „Getur haft alvarlegar afleiðingar“

Bjarni Benediktsson Myndin er samsett
Bjarni Bene­dikts­son Myndin er sam­sett

Solaris-hjálpar­samtök fyrir hælis­leitendur og flótta­fólk á Íslandi, fordæmir orðræðu Bjarna Benedikts­sonar um Palestínu­fólk á Íslandi og mótmæli þeirra við Austur­völl.

Hjálpar­samtökin Solaris sendi frá sér yfir­lýsingu rétt í þessu þar sem orðræða utan­ríkis­ráðherra Íslands, Bjarna Benedikts­sonar er fordæmd. Eins og fjallað hefur verið um áður, skrifaði utan­ríkis­ráðherrann færslu á Facebook um helgina sem féll vægast sagt í grýttann jarðveg hjá flestum. Þar hneikslaðist Bjarni á tjald­búðunum sem örvæntinga­fullir Palestínu­menn reistu fyrir nokkrum vegum, í veikri von um að hlustað yrði á þeirra beiðni um fjölskyldu­sameiningu ættingja þeirra á Gaza. Í yfir­lýsingu stjórnar Solaris segir að orðræða valdhafa ýti undir „hatur og ofbeldi í garð flótta­fólks.“

Þá segir einnig í yfir­lýsingunni að Bjarni ýji að því að „lögmæt og lýðræðis­lega mikilvæg mótmæli Palestínu­fólks við þögn og aðgerðar­leysi ráðherra séu tortryggileg. Það gerir hann meðal annars með því að fjalla um málefni þeirra og skipulagða glæpa­starfsemi í sömu andrá.“

Enn fremur segir í yfir­lýsingunni að nýlega hafi samtökunum borist hátt í 20 tilkynningar um haturs­orðræðu gagnvart hælis­leitendum og að þróunina alvarlega og að valdhafar ýti undir hana.

Hér má lesa yfir­lýsinguna í heild sinni:

Stjórn Solaris fordæmir orðræðu valdhafa sem ýtir undir hatur og ofbeldi í garð flótta­fólks.

Stjórn Solaris gera alvarlega athugasemd við þá orðræðu sem Bjarni Benediktsson, utan­ríkis­ráðherra og formaður Sjálfstæðis­flokksins, viðhafði um Palestínu­fólk á Íslandi og mótmæli þeirra við Austur­völl um liðna helgi.

Á sama tíma og ráðherra neitar að sinna opinberum skyldum sínum með því að hunsa beiðni Palestínu­fólks um áheyrn vegna mála er tengjast samþykktum fjölskyldu­sameiningum Palestínu­fólks á Gaza beitir utan­ríkis­ráðherra sér í valdi embættis síns á opinberum vettvangi til þess að dreifa óhróðri um þegna í viðkvæmri stöðu.

Með orðræðu sinni ýjar utan­ríkis­ráðherra að því að lögmæt og lýðræðis­lega mikilvæg mótmæli Palestínu­fólks við þögn og aðgerðar­leysi ráðherra séu tortryggileg. Það gerir hann meðal annars með því að fjalla um málefni þeirra og skipulagða glæpa­starfsemi í sömu andrá. 

Þá er sérstak­lega ámælis­vert að ráðherra notfæri sér þjóðernis­hreinsanir í Palestínu í þeim pólitíska tilgangi að auglýsa tilraunir flokks síns til að lögfesta enn grimmari stefnu í málefnum flótta­fólks og aukið landamæra­eftirlit sem mun fyrst og fremst koma niður á fólki á flótta.

Að undan­förnu hafa Solaris samtökin orðið vör við aukna andúð, fordóma og hatur í garð fólks á flótta, sérstak­lega á samfélags­miðlum. Á fyrstu vikum 2024 hafa samtökunum borist hátt í 20 tilkynningar um haturs­orðræðu í garð flótta­fólks. Nýlega kærðu samtökin ein slík ummæli til lögreglu og fleiri kærur eru í undir­búningi. Um er að ræða alvarlega þróun sem valdhafar ýta undir og gefa lögmæti með fordóma­fullri orðræðu en slík orðræða hefur aukið vægi og meiri áhrif þegar hún kemur frá fólki í valda­stöðu og getur haft alvarlegar afleiðingar. 

Nú reynir á að við sýnum í verki að við höfnum lágkúru­legum tilraunum til að grafa undan lýðræðinu,  stöndum með mann­réttindum og krefjum fulltrúa um að sinna lögmætum skyldum sínum og grípum inn í umræðu sem kyndir undir hatur og ofbeldi í garð jaðar­settra einstaklinga og hópa.

Fyrir hönd stjórnar Solaris,
Sema Erla
formaður

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Heimur

Bæjar­kötturinn skrópaði á athöfn

Bronsstytta af kettinum Susie var afhjúpuð í Dorchester á sunnudag. Myndhöggvarinn Ama Menec sótti innblástur í rómverska sögu bæjarins.
Pólitík

Snorri varar við því að menn geti misst stjórn á gervi­greind

Pólitík

Þingmenn fara yfir bréf frá fólki með þroska­hömlun

Heimur

Mette hafnar tengslum við hægri­öfgamenn eftir ummæli um „útskiptin miklu“

Innlent

Í sex af hverjum tíu tilvikum var morðinginn úr fjöl­skyldunni

Innlent

Bjarni varar við týndum áratug í efnahags­málum

„Afleiðing þeirrar stefnu sem er boðuð verður að öðru óbreyttu minni fjárfesting, hægari vöxtur, færri spennandi störf og lakari lífskjarasókn.“

Krefjast ákæru fyrir manndráp af gáleysi eftir bana­slysið í Grindavík

Foreldri fór yfir strikið á körfubolta­móti tíu ára drengja

Lögregla leitar ökumanns eftir að ekið var á stúlku á Akureyri

Grunsamlegar manna­ferðir án manna

Börn tóku upp eigin blóðugu árás á feðga og hæddust að þeim