Anna Kristjánsdóttir
„Ég lokaði af allar tilfinningar og gerðist kall.“
Anna Kristjánsdóttir
Skoðun

Strætó hefur aldrei verið verri

Fólk

Helga­fell á Sel­tjarn­ar­nesi komið á sölu

Innlent

Falsaðar ljós­myndir orðnar algengar í fast­eigna­aug­lýs­ingum

Landið

Nál fannst í hrekkja­vökusúkkulaði á Akureyri

Fólk

Breið­holts­laug, Laug­ar­dalur og Hósiló meðal staða sem fá góð með­mæli

Innlent

Gleymdi kaffi­bolla og rusli og end­aði fyrir kæru­nefnd

Innlent

Vopn komu við sögu þegar ung­lingap­artý fór úr bönd­unum

Heimur

Trúður vakti óhug við grunn­skóla

Innlent

Einn lát­inn og annar á gjör­gæslu eftir hnífstungu­árás í Breið­holti

Fólk

Sjö góðar ástæður til að baka oftar

Sárþjáður Sævar hefur mætt hroka og skilningsleysi í heilbrigðiskerfinu: „Þú ert ekkert slasaður“

Sárþjáður Sævar hefur mætt hroka og skilningsleysi í heilbrigðiskerfinu: „Þú ert ekkert slasaður“

ALKASTIÐ FÓR Í HEIMAVITJUN Í ÞETTA SKIPTIÐ OG ÞVÍ ERU HLJÓMGÆÐI EKKI EINS OG Á AÐ VENJAST.

Nýjasti gestur Alkasts­ins, sem er í boði Þvotta­húss-sam­steypunar, er engin annar en Sævar Kolandu­velu sem einnig gengur undir lista­manns­nafn­inu Poetrix. Þetta við­tal krafð­ist heima­vitj­unar í fyrsta skiptið í sögu Þvotta­húss­ins því Sævar er stórslas­aður og á því erfitt með sam­göngur. Því fór við­talið fram í eld­hús­inu hjá Sævari í Kópavogi.

Sævar, sem var áber­andi fyrir tæpum tveimur ára­tugum á íslensku rapp­sen­unni, er staddur á tíma­mótum þar sem líf hans hangir á blá­þræði. Fyrir um átta árum síðan varð hann fyrir meiðslum sem ofan á genetískan stoð­kerf­is­galla er búinn að setja allt stoð­kerfið og and­lega heilsu hans bók­staf­lega á hvolf. 

Meiðslin lýsa sér þannig að lið­band sem heldur saman spjald­hrygg, neðstu hryggjar­liðum og mjaðma­grind­inni og festir hrygg­inn við mjöðm, er slitið. Sævar lýsir því svo að vegna þessa séu þessir lík­ams­hlutar hrein­lega að rifna sundur og hrygg­ur­inn að losna smám saman frá mjöð­minni. Slitið veldur því að hryggur hans tog­ast langt umfram eðli­lega hreyfi­getu, en slíkt kall­ast á ensku out of save limits og öll lið­bönd í baki hans eru hrein­lega að rakna upp.

Þetta ferli veldur svo keðju­verkun og er Sævar í dag með að minnsta kosti 16 auka­á­verka víðs­vegar um lík­amann. Til þess að fá bót sinna meina þarf að festa saman á honum spjald­hrygg­inn, neðstu hryggjar­lið­ina og mjaðma­grind með skrúfum og gera aðgerð á mjaðmakúl­unni, sem er farin að losna úr liðnum.

Þá þarf að laga með­fæddan stoð­kerf­is­galla á neðri gang­lim sem hefur mikil áhrif á lík­ams­beit­ingu og er talin vera ein af orsökum þess að lið­bandið slitn­aði til að byrja með, en stoð­kerf­is­gall­inn veldur því að óeðli­legt álag mynd­ast á þetta til­tekna lið­band.

Í við­tal­inu fer Sævar yfir við­brögð hins íslenska heil­brigð­is­kerfis sem, væg­ast sagt, miðað við lýs­ing­arnar, eru hreint út sagt hræði­legar. Skipti eftir skipti hefur honum verið vísað út af læknum og heil­brigð­is­starfs­fólki með þau skila­boð að meislin séu af and­legum toga og að hann sé haldin sjúk­legri við­ur­kenn­ing­ar­þörf og athygl­is­sýki. „Síðast þegar ég fór á bráða­mót­töku í frekar slæmu ástandi fyrir fjórum mán­uðum síðan, þá kom læknir sem sagði að það væri ekk­ert að mér nema við­ur­kenn­ing­ar­þörf. Að ég væri með svo mikla þörf fyrir athygli og við­ur­kenn­ingu, þess vegna væri ég að koma þangað í þessi sam­töl, til að fá athygli,“ segir Sævar og Gunnar spyr hvort lækn­ir­inn hafi hitt hann áður. Sævar svar­aði: „Nei, nei, aldrei hitt hann áður.“ Og Sævar heldur áfram: „Hjúkkur hafa líka komið fram á Bráða­mót­tök­unni og ég sagt að ég sé slas­aður og þurfi aðstoð. Þær hafa sagt við mig „Þú ert ekk­ert slas­aður“. Ég hef ekk­ert hitt þessar hjúkkur áður. Ég get alveg talað í allan dag hversu oft ég hef lent í ein­hverju sem má kalla ofbeldi af hálfu kerf­is­ins.“

Það sem Sævar vill meina að þurfi að gera er að saga hann allan í sundur og skrúfa saman aftur. Smíða þurfi bæði mjöðm og fót­legg upp á nýtt með öllu sem því fylgir. Einnig seg­ist hann þurfa aðgerð á hálsi en til að vel geti farið þarf að byrja aðgerð­irnar neðan frá og vinna sig upp á við til að líkur hans á eðli­legu lífi séu sem bestar.

Hann hefur þegar farið í tvær aðgerðir, þar sem varð að fjar­lægja úr honum rif vegna afleidds lið­bandaskaða og það farið úr lið, þrengj­andi að æðum í háls­inum; lífsógn­andi ástand. Þó sú aðgerð hafi bjargað lífi hans á þeim tíma­punkti, veikti hún stoð­kerfið enn frekar. 

Sævar hefur þurft að gera allar rann­sóknir sjálfur, og ferð­ast erlendis í leit að hjálp til að berj­ast fyrir því að grein­ing sín yrði sam­þykkt í lækna­sam­fé­lag­inu.

Sævar seg­ist vel skilja við­horf lækna hér á landi því hann skilji hvað búi að baki því mót­læti og hroka sem hann hefur mætt. Fyrir lækna með margra ára­tuga langa menntun á bak­inu sé það upp­lifað sem klár ógn við stöðu þeirra sem fag­menn, sem og stöðu þeirra í hálf bug­uðu heil­brigð­is­kerfi hér á landi, þegar hér komi ein­hver strák­pjakkur með mikla áfalla- og fíkni­sögu og beri á borð grein­ingar sem hann sjálfur hefur greint ásamt anató­mískri aðgerð­ar­á­ætlun. 

Hann telur svo vera að engin heil­brigð­is­starfs­maður meini neitt illt með þessu heldur sé aðeins um vissan sjálfs­varn­ar­mek­an­isma að ræða sem fram­kalli þessi við­brögð. Gunnar spurði hann hvort hann, með alla sína greind, hefði getað spilað þetta á ein­hvern annan hátt svo að skil­virkt ávarp eða með­höndlun hefði átt sér stað. Sævar vill ekki meina að svo sé. Segist hann hafi lengi vel komið með litla sem enga vit­neskju um hvað amaði að sér og fullur auð­mýktar en eitt­hvað virt­ist standa í vegi fyrir því ferli sem hann átti von á að myndi hefj­ast þegar hann óskaði eftir aðstoð, kval­inn og þjáður. 

Staðan á Sævari er sú í dag að söfnun er hafin fyrir 3 aðgerðum sem fram­kvæmdar verða í Tyrk­landi. Aðgerð­irnar sem fyr­ir­hug­aðar eru hafa verið skipu­lagðar af tyrk­neskum læknum í sam­ræmi við þeirra rann­sóknir sem og þeim upp­lýs­ingum sem Sævar hafði safnað og greint sjálfur á ástand­inu sem tyrk­nesku lækn­arnir hafa stað­fest að séu réttar. Eftir að teymi af bækl­unar- og heila- og tauga­skurð­læknum eyddu viku í að fara yfir gögnin, útskýrðu þeir að þeir væru sam­mála grein­ing­unni, og aðgerða væri þörf til að laga með­fæddan stoð­kerf­is­galla á neðri gang­lim, sem og á mjaðmalið og að lokum að festa saman neðstu þrjá hryggjar­liði, spjald­hrygg og mjaðma­bein saman og gera stöðugt. 

Til að koma í veg fyrir að meiðsli hans versni, en honum hrakar stöðugt, og leiði ekki til löm­unar eða þaðan af verra ástands, þarf að safna sjö millj­ónum króna fyrir læknis­kostnað. Hingað til hafa hann og fjöl­skylda hans þurft að borga enn meira úr eigin vasa.

Þetta hefur verið langt ferða­lag, sem hann hefur þurft að leggja líf sitt og aðrar per­sónu­legar vonir til hliðar til að leggja allt sitt átak í – og er nú nálægt því að láta krafta­verkið ger­ast sem hann hefur beðið eftir. 

Til að safna þeim pen­ingum sem til þarf setti Sævar, ásamt góðu fólki sem styður við hann, af stað verk­efnið THUGMONK. Það gerir fólki kleift að kaupa vörur og mun afrakstur þess­arar sölu renna beint í sjóð sem fjár­magna mun þessar þrjár fyr­ir­hug­uðu aðgerðir. Sjá hér https://www.karolinafund.com/project/view/6201.

Þetta magn­aða við­tal við Sævar má heyra og sjá hér á spil­ar­anum fyrir neðan en einnig má heyra öll við­töl Alkast­ins á öllum streym­isveitum eins og Spotify og auð­velt er að merkja við follow eða subs­ribe og fær maður þá til­kynn­ingar í hvert skipti sem nýtt við­tal kemur út.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

3
Minning

Helgi Ólafsson er fall­inn frá

Helgi Ólafsson, raf­virkja­meist­ari á Rauf­ar­höfn, lést á Dval­ar­heim­il­inu Hvammi 27. októ­ber, 97 ára að aldri. Morg­un­blaðið greindi frá and­láti hans. Helgi fædd­ist á Rauf­ar­höfn 31. maí 1929 og ólst þar upp. Hann lauk sveins­prófi í raf­virkjun árið 1950 og hlaut meist­ara­rétt­indi fimm árum síðar. Hann starf­aði við raf­virkjun alla starfsæv­ina, meðal ann­ars fyrir Síld­ar­verk­smiðjur rík­is­ins og SR-mjöl, auk þess að...
5
Slúður

Stjórn­ar­hættir Brynju

Einn und­ar­leg­asti atburður í íslensku atvinnu­lífi síð­ustu ár er brott­hvarf Harðar Arn­ar­sonar úr stóli for­stjóra Lands­virkj­unar eftir far­sæl störf í 17 ár. Hörður, sem hafði byggt upp fyr­ir­tækið Marel með mynd­ar­brag þegar hann tók við Lands­virkjun, hætti einu og hálfu ári eftir að Daði Már Krist­ó­fers­son fjár­mála­ráð­herra skipti alfarið út stjórn rík­is­orku­fyr­ir­tæk­is­ins. Stjórn­ar­for­mað­ur­inn Brynja Bald­urs­dóttir er grjót­harður kap­ít­alisti. Hún hefur...

Mest lesið í vikunni

Innlent

Einn bak við lás og slá eftir lík­ams­árás í Árbæ

Heimur

Bauð inter­net­inu í brúð­kaupið og allt fór á annan end­ann

Myndband
Heimur

Dádýr skall á konu og braust inn í þvotta­hús

Innlent

Fluttur á bráða­mót­töku eftir að eldur kom upp í íbúð

Menning

Laxness slær í gegn hjá The Guardian

Innlent

Innlent

Rétt­ar­höld yfir Írisi „elti­hrelli“ hefj­ast á mánu­dag

Ákæran er 17 blaðsíður og ákæruliðirnir 68
Innlent

Heimir Már biðst afsök­unar á ummælum um kjarn­orku­vopn

Innlent

Hrekkja­vakan tekur yfir göt­urnar og lög­reglan varar öku­menn við

Innlent

Leigusal­inn kenndi utan­lands­ferð um veggjalús­ina

Innlent

Íslenska haustið sýnir klærnar í dag

Innlent

Hrekkja­vöku­skemmtun fór úr bönd­unum í Kópavogi