Anna Kristjánsdóttir
„Ég lokaði af allar tilfinningar og gerðist kall.“
Anna Kristjánsdóttir
Innlent

Neyt­endur beðnir um að farga jógúrt frá Örnu

Innlent

Hörður hót­aði lög­reglu­manni nauðgun og spark­aði í annan

Skoðun

Strætó hefur aldrei verið verri

Innlent

Falsaðar ljós­myndir orðnar algengar í fast­eigna­aug­lýs­ingum

Fólk

Helga­fell á Sel­tjarn­ar­nesi komið á sölu

Innlent

Rað­kúk­ari Ragnars snéri aftur á Hrekkja­vöku

Fólk

„Með­höndla full­orðið fólk sem lifir enn eins og það séu börn“

Innlent

Gleymdi kaffi­bolla og rusli og end­aði fyrir kæru­nefnd

Landið

Nál fannst í hrekkja­vökusúkkulaði á Akureyri

Fólk

Lúxu­sein­býli á Arn­ar­nes­inu komið á sölu fyrir 340 millj­ónir

Halla Tómasdóttir tekin við sem forseti Íslands

Halla Tómasdóttir tekin við sem forseti Íslands
Halla Tóm­as­dóttir og eig­in­maður hennar Mynd: Skjáskot RÚV

Halla Tóm­as­dóttir er tekin við emb­ætti for­seta Íslands og er því sjö­undi for­seti Íslands og hún tekur við emb­ætt­inu af Guðna Th. Jóhann­essyni en gaf ekki kost á sér til end­ur­kjörs. Halla er önnur konan sem er for­seti Íslands en sú fyrsta var Vigdís Finn­boga­dóttir en hún var kosin for­seti Íslands árið 1980.

Hægt er að lesa inn­setn­ing­ar­ræðu Höllu hér fyrir neðan:

Góðir Íslend­ingar.

Ég stend hér í dag með hjartað fullt af þakk­læti fyrir það traust sem mér – og
okkur hjónum – hefur verið sýnt og þann stuðn­ing sem við höfum notið um allt
land.

Ég er þakk­lát for­eldrum mínum sem gáfu mér gott vega­nesti út í lífið og
þakk­lát kjark­miklu kon­unum sem sýndu mér ungri að aldri að með hug­rekki og
sam­taka­mætti getum við hreyft við sam­fé­lag­inu og leitt fram­farir.

Ég er þakk­lát fyrir að hafa fæðst hér á landi – fyrir að fá að vera
Íslend­ingur, sem í dag er öfunds­vert hlut­skipti, þótt það hafi ekki alltaf verið svo
í gegnum ald­irnar.

Ég þakka gengnum kyn­slóðum sem með ein­muna seiglu ekki aðeins héldu
land­inu í byggð heldur sköp­uðu ein­stakan menn­ing­ar­arf sem við Íslend­ingar
megum vera afar stolt af.

Ég þakka öllum sem lagt hafa grunn­inn að því sem við njótum í dag í einu
mesta vel­ferð­ar­ríki heims.

Mér er ljós sú mikla ábyrgð sem ég tekst á hendur og mun leggja mig alla
fram um að vinna landi og þjóð það gagn sem ég má. Ég veit að ég byggi á
traustum grunni þeirra sem á undan fóru og minn­ist með virð­ingu Sveins
Björns­sonar, Ásgeirs Ásgeirs­sonar og Krist­jáns Eldjárns. Þá er heiður að mega
per­sónu­lega þakka Vigdísi Finn­boga­dóttur, Ólafi Ragnari Gríms­syni og Guðna
Th. Jóhann­essyni fyrir þeirra for­seta­tíð og fram­lag í þágu þjóð­ar­innar.
Nú þegar ég vinn dreng­skap­ar­heit að íslensku stjórn­ar­skránni eru aðeins
átta­tíu ár liðin frá stofnun lýð­veld­is­ins. Áttatíu ár eru um það bil einn
manns­aldur. Hvað hefur áunn­ist á þessum tíma? Höfum við gengið til góðs,
göt­una fram eftir veg?

Íslend­ingar eru þrefalt fleiri nú en þá, og allar aðstæður eru gjör­breyttar:
Menntun, efna­hagur, heil­brigð­is­þjón­usta, sam­göngur, sam­setn­ing þjóðar,
atvinnu­lífið, þjóð­ar­tekjur. Við, sem vorum ein fátæk­asta þjóð Norður Evrópu
erum nú meðal rík­ustu þjóða heims. Það hefur orðið umbylt­ing á ein­ungis átta­tíu
árum – og því er vert að spyrja á þessum tíma­mótum, hvert viljum við stefna, já
og hvar viljum við vera stödd, bæði í náinni fram­tíð en jafn­vel líka að átta­tíu
árum liðnum?

Það kom vel í ljós á ferðum okkar hjóna um landið í vor hversu annt
Íslend­ingum er um landið sitt og tungu­mál og hversu stolt við erum af afrekum
okkar og þjóð­ar­arfi.

Það var sér­stak­lega gleði­legt að sjá að nýsköp­un­ar­um­hverfið hefur tekið
stakka­skiptum víða um land. Sjálfbær þróun mat­væla skilar fjöl­breyttum og
góm­sætum vörum sem áður feng­ust bara inn­fluttar, full­nýt­ing sjáv­ar­af­urða gerir
að verkum að áður verð­laus úrgangur er orð­inn að dýr­mætri vöru, fram­þróun í
hug­bún­að­ar­gerð haslar sér völl án landamæra og í menn­ing­ar­tengdri
ferða­þjón­ustu virð­ast tæki­færin óþrjót­andi.

Við eigum að halda áfram að byggja á styrk­leikum okkar, virkja
sköp­un­ar­gáf­una og vanda til verka. Við eigum óhrædd að hvetja kapps­fullt
hæfi­leika­fólk til dáða og ekki gera lítið úr dýr­mætum skóla mis­tak­anna. Sár
reynsla getur og hefur styrkt okkur.

Sköp­un­ar­kraftur Íslend­inga er lík­lega hvað sterkastur í listum, og þar
hefur stjarna bók­mennt­anna lengi skinið skær­ast. En nú bæt­ist hver list­greinin
við af annarri – tón­list, sjón­rænar listir, mynd­list, leik­list, sviðs­listir og
kvik­mynda­gerð blómstra og sýna hvaða árang­urs má vænta ef hlúð er að
vaxt­ar­sprotum með menntun og öðrum stuðn­ingi. Það er löngu ljóst að
list­greinar auðga ekki aðeins and­ann, heldur gegna þær mik­il­vægu hlut­verki
þjóð­hags­lega.

Hvert á land sem við hjónin komum voru íþrótta­vellir og víð­ast
íþrótta­hús. Íþróttir gegna ómet­an­legu hlut­verki fyrir heil­brigði ein­stak­linga og
sam­fé­lags. Heil­brigð sál í hraustum lík­ama, segir mál­tækið. Ekki bara það, því
fátt sam­einar okkar þjóð eins og þegar afreks­fólkið okkar keppir á alþjóð­legum
stór­mótum. Er skemmst að minn­ast frá­bærrar frammi­stöðu íslenska
kvenna­lands­liðs­ins í knatt­spyrnu sem er nú á leið í loka­keppni Evr­ópu­móts­ins á
næsta ári. Og einmitt þessa dag­ana keppa glæsi­legir full­trúar lands og þjóðar á
Ólymp­íu­leik­unum í París. Við sendum þeim heilla­kveðjur! Og við hjónin
hlökkum til að fylgja íslenskum kepp­endum á Ólymp­íu­leika fatl­aðra í lok
mán­aðar.

Við höfum mörgu að fagna en þurfum jafn­framt að mæta áskor­unum. Það
horfir ófrið­lega í heim­inum og harka fær­ist í sam­skipti innan þjóða og milli
þjóða. Mikilvæg mann­rétt­indi, sem áunn­ist hafa með langri bar­áttu, eiga nú
undir högg að sækja. Fólki hættir til að skipa sér í skot­grafir – í and­stæðar
fylk­ingar. Svo læst er það sumt í afstöðu sinni að það heyrir ekki hvert í öðru.
Einn alvar­leg­asti fylgi­fiskur þess er að traustið, mik­il­væg­asti grunnur mann­legs
sam­fé­lags, fer þverr­andi.

Um allan hinn vest­ræna heim hafa yfir­völd, fjár­mála­stofn­anir, fyr­ir­tæki,
fjöl­miðlar og stjórn­kerfi misst til­trú almenn­ings. Þótt flest sinni störfum sínum
af heil­indum, þá hafa þau, sem ekki reyn­ast trausts­ins verð, valdið skaða.
Reynsla og rann­sóknir sýna að minnkað traust veldur sinnu­leysi meðal
kjós­enda. Fólki, og þá sér­stak­lega ungu fólki, finnst ekki taka því að kjósa,

finnst að það breyti engu. Það finnur jafn­vel ekki til­gang í því að taka þátt í
sam­fé­lag­inu. Sífellt fleiri heill­ast af mál­flutn­ingi þeirra sem bjóða ein­faldar og
oft öfga­kenndar lausnir.

Við megum ekki sýna and­vara­leysi í þessum efnum og nú bæt­ist það við
að tæknin gerir kleift að falsa bæði hljóð og mynd – svo nær ómögu­legt verður
að greina sannar fréttir frá fölsuðum. Hverju og hverjum er þá óhætt að trúa?
Hvað verður um traustið? Tækni­þró­unin verður ekki stöðvuð en granda­leysi á
þessu sviði getur haft alvar­legar afleið­ingar fyrir sam­fé­lög og þróun lýð­ræðis.
Mér hefur orðið tíð­rætt um and­lega og sam­fé­lags­lega heilsu. Ég get
ómögu­lega aðskilið þetta tvennt, því and­leg van­líðan dregur mátt úr fólki og
leggur þungan toll á sam­fé­lagið. Því miður fer ein­mana­leiki vax­andi hjá ungum
sem eldri. Margir dvelja lengur í raf­heimum en raun­heimum. Kvíði, þung­lyndi,
neysla og sjálfs­skaði hafa auk­ist stór­lega á skömmum tíma. Hvernig má það
vera að ein ham­ingju­samasta þjóð í heimi skipi sér jafn­framt í fremstu röð hvað
þessa ískyggi­legu þróun varðar?

Páll Skúlason heim­spek­ingur rit­aði eitt sinn:
Getum við þá ekk­ert gert til að vera ham­ingju­söm? Öðru nær: við getum
verið opin fyrir ham­ingj­unni með því að ein­beita okkur að því sem gefur
líf­inu gildi. Og við vitum hvað það er með því að veita því eft­ir­tekt sem
glæðir lífið birtu og hlýju.

Við getum og við verðum að bæta and­lega og sam­fé­lags­lega heilsu. Ég
von­ast til að leggja mitt af mörkum við að ráð­ast að rótum vand­ans í góðri
sam­vinnu við stjórn­völd, fræði­menn, heil­brigð­is­starfs­fólk, félaga­sam­tök,
fjöl­miðla og ekki síst kenn­ara og for­eldra. Á umbreyt­inga­tímum eru sam­tal og
sam­starf kyn­slóða og ólíkra hópa sam­fé­lags­ins lyk­ill­inn að því að hér ríki
jafn­rétti milli kyn­slóða og sam­fé­lags­leg sátt. Það er því mik­il­vægt að unga
fólkið fái sæti við borðið, fái alvöru aðkomu að því að móta sína fram­tíð og njóti
þar reynslu og visku eldra fólks.

Á svona tímum er nauð­syn­legt að staldra við og íhuga hver við viljum
vera, hvert við viljum stefna og hvernig við getum styrkt traust milli manna.
Hvert viljum við beina íslenska lýð­veld­inu næstu 80 árin? Við þurfum að átta
okkur á því og stilla okkur af. Því hvert stefnir þjóð­ar­skúta með illa stilltan
átta­vita og veikan sam­fé­lags­sátt­mála?

Í mínum störfum hef ég farið fyrir nýrri nálgun að úrlausn áskor­ana og
dregið af því lær­dóm. Reynslan hefur kennt mér að far­sæl­ast er að kalla ólíka
saman, spyrja spurn­inga og hlusta á fjöl­breytt sjón­ar­mið. Fá fólk til að greina og
skilja vand­ann og sókn­ar­færin – og sníða lausnir sam­eig­in­lega. Þegar traust er
lítið þurfa stjórn­völd, atvinnu­lífið og sam­fé­lagið allt að koma saman með nýjum
hætti, vinna saman að fram­tíð­ar­sýn á sam­eig­in­legum grunni þjóð­ar­innar. Það er meira fram­boð en eft­ir­spurn eftir þeim sem þykj­ast eiga öll svör, en þjóðin sjálf,
ekki síst unga kyn­slóðin, sættir sig ekki lengur við að fá ekki að svara til um sína
fram­tíð.

Höfum við hug­rekki til að fara nýjar leiðir? Getum við, íslenskt sam­fé­lag,
valið mýkt­ina, talað saman, unnið saman þvert á kyn­slóðir og ólíkar skoð­anir og
stillt kompásinn þannig að við vill­umst síður af leið? Valið sam­stöðu fremur en
sundr­ungu? Spurt stórra spurn­inga og leitað svara með þjóð­inni? Sú nálgun sem
við veljum nú ræður miklu um hvernig íslenska lýð­veld­inu farn­ast næstu átta­tíu
ár. Hvaða veru­leiki bíður barna okkar og barna­barna?

Ekkert eitt okkar hefur svörin við þeim fjöl­breyttu áskor­unum sem við
blasa. En ég mun sem for­seti hvetja okkur til að spyrja spurn­inga og eiga
upp­byggi­legt sam­tal og sam­starf svo móta megi hvert við viljum halda og hvaða
grunn­stef skuli varða þá veg­ferð. Þannig trúi ég að við finnum svörin, saman, og
getum tek­ist af íslenskri seiglu og í sam­heldni á við hverja þá áskorun sem breytt
heims­mynd og staða sam­fé­lags­ins kallar á.

Ég er sann­færð um að Ísland og Íslend­ingar hafa mik­il­vægu hlut­verki að
gegna í heimi í vanda. Ég hef trú á styrk­leikum okkar og veit að við getum
áfram byggt á þeirri sér­stöðu sem við höfum þegar skapað okkur á sviði
jafn­réttis og jarð­varma, í listum, íþróttum og í lýð­ræð­is­legri þróun sam­fé­lags
sem setur mann­rétt­indi á odd­inn. Ég tel styrk okkar ekki síst fel­ast í smæð­inni
og – í mýkt­inni. Smá, en kná og kjark­mikil þjóð sem hefur visku og metnað til
að velja mýkri leiðir í hörðum heimi. Ég trúi því að við getum valið að vera
frið­sæl þjóð sem nýtur vel­sældar og réttir jafn­framt hlýja hönd til þeirra sem á
þurfa að halda. Þannig getum við verið öðrum góð fyr­ir­mynd og ljós í því
myrkri sem víða ríkir.

Kæru landar, það val byrjar hjá hverjum og einum. Hver ætlum við að
vera og hvað veljum við að gera á tímum þegar svo margir velja átök og árásir á
þá sem ekki eru þeim sam­mála? Mætum við hvert öðru með opnum hug og
hjarta, til­búin til að hlusta og leggja okkur fram um að skilja ólík sjón­ar­mið,
ólíka lífs­reynslu og sýn? Sann­leik­ur­inn er sá að það að velja að hlusta, að
ein­setja sér að reyna að skilja hvaðan aðrir koma, krefst kjarks og reynir meira á
okkur til skemmri tíma en að loka og fara í vörn. Höfum við kjarkinn sem þarf
til að velja mennsku og frið í eigin ranni og mynda þannig jarð­veg fyrir
sam­fé­lag þar sem flestum er fært að blómstra á sínum for­sendum? Ég vil að við
stefnum þangað. Virkjum getu okkar til að skapa slíkt sam­fé­lag, saman, fyrir og
með næstu kyn­slóð. Ég veit að við getum það!

Ísland er ein­stakt land og við erum skap­andi þjóð sem leitar nú svara við
mörgum áleitnum spurn­ingum. Ég hlakka til að vinna með ykkur af metn­aði að
bjartri fram­tíð okkar lýð­veldis og geri ljóð Hólm­fríðar Sig­urð­ar­dóttur, Leitum,
að mínum loka­orðum:

Leitum úrræða
látum hendur og orð
fall­ast í faðma
leitum gleð­innar
í ljóð­inu
finnum frelsið
í hönd­unum
leitum regn­bog­ans
finnum ljós­ber­ann
leitum láns
finnum það leika um líf
lands vatns og ljóss.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

Forseti Íslands

Mest lesið í vikunni

3
Minning

Helgi Ólafsson er fall­inn frá

Helgi Ólafsson, raf­virkja­meist­ari á Rauf­ar­höfn, lést á Dval­ar­heim­il­inu Hvammi 27. októ­ber, 97 ára að aldri. Morg­un­blaðið greindi frá and­láti hans. Helgi fædd­ist á Rauf­ar­höfn 31. maí 1929 og ólst þar upp. Hann lauk sveins­prófi í raf­virkjun árið 1950 og hlaut meist­ara­rétt­indi fimm árum síðar. Hann starf­aði við raf­virkjun alla starfsæv­ina, meðal ann­ars fyrir Síld­ar­verk­smiðjur rík­is­ins og SR-mjöl, auk þess að...
5
Slúður

Stjórn­ar­hættir Brynju

Einn und­ar­leg­asti atburður í íslensku atvinnu­lífi síð­ustu ár er brott­hvarf Harðar Arn­ar­sonar úr stóli for­stjóra Lands­virkj­unar eftir far­sæl störf í 17 ár. Hörður, sem hafði byggt upp fyr­ir­tækið Marel með mynd­ar­brag þegar hann tók við Lands­virkjun, hætti einu og hálfu ári eftir að Daði Már Krist­ó­fers­son fjár­mála­ráð­herra skipti alfarið út stjórn rík­is­orku­fyr­ir­tæk­is­ins. Stjórn­ar­for­mað­ur­inn Brynja Bald­urs­dóttir er grjót­harður kap­ít­alisti. Hún hefur...

Mest lesið í vikunni

Heimur

Banka­eig­andi hand­tek­inn grun­aður um að hafa tekið 430 millj­ónir dala úr hirslum

Málið kemur upp eftir stjórnarskipti í Serbíu, þar sem barátta gegn spillingu var í forgrunni
Innlent

Matthías neit­aði að hafa skallað lög­reglu­mann en búk­mynda­vélin sagði annað

Innlent

Erlendur maður grip­inn við skjala­fölsun við Hvera­gerði

Pólitík

Krafði Þorgerði svara vegna kjarn­orku­um­mæla Heimis Más

Heimur

Flaug yfir fjöll og götur á heima­smíð­uðu svif­bretti

Innlent

Innlent

Rúður brotnar í nærri þrjá­tíu bílum á Nesinu

Íbúar og vegfarendur eru hvattir til að kanna hvort upptökur úr eftirlitsmyndavélum eða bifreiðum geti nýst við rannsókn málsins.
Innlent

Einn bak við lás og slá eftir lík­ams­árás í Árbæ

Innlent

Jódís spyr hvar mót­mæl­end­urnir séu nú

Innlent

Tíu nýir leitar- og björg­un­ar­kaf­arar útskrif­aðir

Innlent

Fertugur maður ákærður fyrir 267 kanna­bis­plöntur í bíl

Innlent

Brynjar ók á bíl og far­þegi þurfti í umfangs­mikla aðgerð