Anna Kristjánsdóttir
„Ég lokaði af allar tilfinningar og gerðist kall.“
Anna Kristjánsdóttir
Innlent

Neyt­endur beðnir um að farga jógúrt frá Örnu

Innlent

Hörður hót­aði lög­reglu­manni nauðgun og spark­aði í annan

Skoðun

Strætó hefur aldrei verið verri

Innlent

Falsaðar ljós­myndir orðnar algengar í fast­eigna­aug­lýs­ingum

Innlent

Rað­kúk­ari Ragnars snéri aftur á Hrekkja­vöku

Fólk

Helga­fell á Sel­tjarn­ar­nesi komið á sölu

Fólk

„Með­höndla full­orðið fólk sem lifir enn eins og það séu börn“

Fólk

Lúxu­sein­býli á Arn­ar­nes­inu komið á sölu fyrir 340 millj­ónir

Innlent

Gleymdi kaffi­bolla og rusli og end­aði fyrir kæru­nefnd

Landið

Nál fannst í hrekkja­vökusúkkulaði á Akureyri

Auður ver Höllu forseta: „Að tala dönsku með slælegum framburði gerir mann frekar þreytandi“

Auður ver Höllu forseta: „Að tala dönsku með slælegum framburði gerir mann frekar þreytandi“
Auður Jóns­dóttir Mynd: Kazuma Takigawa

Auður Jóns­dóttir tekur upp hansk­ann fyrir Höllu Tóm­as­dóttur, for­seta Íslands, sem hefur verið gagn­rýnd und­an­far­inn sól­ar­hring. Gagn­rýnin snýr að dönsku­kunn­áttu for­set­ans, eða skort á henni.

Halla Tóm­as­dóttir og eig­in­maður hennar eru í opin­berri rík­is­heim­sókn í Kaup­manna­höfn um þessar mundir, ásamt sendi­nefnd og utan­rík­is­ráð­herra. Það vakti tals­verða athygli á sam­fé­lags­miðl­unum að Halla skyldi hafa að mestu talað ensku við kon­ungs­hjónin dönsku en sitt sýnd­ist hverjum, eins og gengur og ger­ist. Rit­höf­und­ur­inn Auður Jóns­dóttir er ein af þeim sem tekur upp hansk­ann fyrir for­set­ann. Facebook-færsla hennar frá því í morgun hefst svo:

„Fyndið að sjá fólk býsnast yfir að for­set­inn hafi ekki talað dönsku í Köben. Sko, að tala dönsku við Dani er ekki eins og að tala ensku við Breta eða þýsku við Þjóð­verja. Danskur fram­burður er snú­inn og auð­velt fyrir flesta sem hafa ekki búið lengi í Danmörku að vera óskilj­an­legir.“

Segist Auður vera sjálf „flug­læs“ á dönsku en tali þrátt fyrir það oftar ensku við Dani.

„Sjálf er ég flug­læs á dönsku, lærði dönsku heilan vetur í Köben, bjó þar í þrjú ár, gaf lengi út bækur þar, lá í dönskum fjöl­miðlum í mörg ár og kom oft fram á dönsku (til þess að heyra eldri konur á fremsta bekk hvá með vand­læt­ingu). Í dag tala ég samt oftar ensku við Dani – hrein­lega því þannig fæ ég meiri virð­ingu og hlustun. Að tala dönsku með slæ­legum fram­burði, hvað þá með fram­burði þeirra í Kaup­manna­höfn þar sem er talað hratt og stiklað á orðum, gerir mann frekar þreyt­andi og … við­búið að vanti upp á að ýmsi­legt skili sér. Eig­in­lega er maður bara að þreyta fólk.“

Að lokum segir Auður frá vinnu­búðum sem hún tók þátt í á Grænland:

„Ég tók einu sinni þátt í vinnu­búðum með Þorvaldi Þor­steins­syni heitnum í Græn­landi, með fólki frá Færeyjum, Græn­landi og Íslandi, og það fyrsta sem hann lagði til var að við töl­uðum öll bara ensku. Af hverju ættum við, hrúga af rit­höf­undum frá þessum þjóðum, að tala dönsku?! Svo það varð úr. Við töl­uðum ensku.“

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

Forseti Íslands

Mest lesið í vikunni

3
Minning

Helgi Ólafsson er fall­inn frá

Helgi Ólafsson, raf­virkja­meist­ari á Rauf­ar­höfn, lést á Dval­ar­heim­il­inu Hvammi 27. októ­ber, 97 ára að aldri. Morg­un­blaðið greindi frá and­láti hans. Helgi fædd­ist á Rauf­ar­höfn 31. maí 1929 og ólst þar upp. Hann lauk sveins­prófi í raf­virkjun árið 1950 og hlaut meist­ara­rétt­indi fimm árum síðar. Hann starf­aði við raf­virkjun alla starfsæv­ina, meðal ann­ars fyrir Síld­ar­verk­smiðjur rík­is­ins og SR-mjöl, auk þess að...
5
Slúður

Stjórn­ar­hættir Brynju

Einn und­ar­leg­asti atburður í íslensku atvinnu­lífi síð­ustu ár er brott­hvarf Harðar Arn­ar­sonar úr stóli for­stjóra Lands­virkj­unar eftir far­sæl störf í 17 ár. Hörður, sem hafði byggt upp fyr­ir­tækið Marel með mynd­ar­brag þegar hann tók við Lands­virkjun, hætti einu og hálfu ári eftir að Daði Már Krist­ó­fers­son fjár­mála­ráð­herra skipti alfarið út stjórn rík­is­orku­fyr­ir­tæk­is­ins. Stjórn­ar­for­mað­ur­inn Brynja Bald­urs­dóttir er grjót­harður kap­ít­alisti. Hún hefur...

Mest lesið í vikunni

Heimur

Banka­eig­andi hand­tek­inn grun­aður um að hafa tekið 430 millj­ónir dala úr hirslum

Málið kemur upp eftir stjórnarskipti í Serbíu, þar sem barátta gegn spillingu var í forgrunni
Innlent

Matthías neit­aði að hafa skallað lög­reglu­mann en búk­mynda­vélin sagði annað

Innlent

Erlendur maður grip­inn við skjala­fölsun við Hvera­gerði

Pólitík

Krafði Þorgerði svara vegna kjarn­orku­um­mæla Heimis Más

Heimur

Flaug yfir fjöll og götur á heima­smíð­uðu svif­bretti

Innlent

Innlent

Rúður brotnar í nærri þrjá­tíu bílum á Nesinu

Íbúar og vegfarendur eru hvattir til að kanna hvort upptökur úr eftirlitsmyndavélum eða bifreiðum geti nýst við rannsókn málsins.
Innlent

Einn bak við lás og slá eftir lík­ams­árás í Árbæ

Innlent

Jódís spyr hvar mót­mæl­end­urnir séu nú

Innlent

Tíu nýir leitar- og björg­un­ar­kaf­arar útskrif­aðir

Innlent

Fertugur maður ákærður fyrir 267 kanna­bis­plöntur í bíl

Innlent

Brynjar ók á bíl og far­þegi þurfti í umfangs­mikla aðgerð