Anna Kristjánsdóttir
„Ég lokaði af allar tilfinningar og gerðist kall.“
Anna Kristjánsdóttir
Skoðun

Strætó hefur aldrei verið verri

Fólk

Helga­fell á Sel­tjarn­ar­nesi komið á sölu

Innlent

Falsaðar ljós­myndir orðnar algengar í fast­eigna­aug­lýs­ingum

Landið

Nál fannst í hrekkja­vökusúkkulaði á Akureyri

Innlent

Gleymdi kaffi­bolla og rusli og end­aði fyrir kæru­nefnd

Fólk

Breið­holts­laug, Laug­ar­dalur og Hósiló meðal staða sem fá góð með­mæli

Innlent

Vopn komu við sögu þegar ung­lingap­artý fór úr bönd­unum

Heimur

Trúður vakti óhug við grunn­skóla

Innlent

Einn lát­inn og annar á gjör­gæslu eftir hnífstungu­árás í Breið­holti

Innlent

Hörður hót­aði lög­reglu­manni nauðgun og spark­aði í annan

Fuglaflensa drap kettling frá Ísafirði rétt fyrir jól: „Kettir geti smitast við veiðar“

Fuglaflensa drap kettling frá Ísafirði rétt fyrir jól: „Kettir geti smitast við veiðar“
Myndin teng­ist frétt­inni ekki beint

Tíu vikna gam­all kett­lingur drapst eftir að hafa smit­ast af fuglaflensu en Mat­væla­stofnun greinir frá þessu í til­kynn­ingu. MAST telur lík­leg­ast að kett­ling­ur­inn af smit­ast af villtum fugli sem var sýktur en smit­hætta fyrir fólk af völdum fugla­in­flú­ensu­veira er lítil.

„Til­rauna­stöð HÍ í meina­fræði að Keldum til­kynnti Mat­væla­stofnun þann 6. jan­úar að kett­lingur, sem barst rann­sókn­ar­stöð­inni til krufn­ingar, hefði greinst með skætt afbrigði fugla­in­flú­ensu (H5N5). Það er sama afbrigði og hefur greinst í villtum fuglum hér á landi frá því í sept­em­ber í fyrra og á einu ali­fugla­búi í byrjun des­em­ber. Mat­væla­stofnun gaf strax fyr­ir­mæli um sótt­varnir til að hindra smit­dreif­ingu og vinnur nú að því að rekja smitið. Sjúk­dóms­ein­kenni í þessum ketti voru m.a. lyst­ar­leysi, slapp­leiki, stífleiki, skjálfti, krampar og önnur tauga­ein­kenni. Katta­eig­endur eru beðnir um að hafa strax sam­band við dýra­lækni verði þeir varir við slík ein­kenni í köttum sínum,“ segir í til­kynn­ingu MAST um málið.

„Kött­ur­inn sem fugla­in­flú­ensan greind­ist í var 10 vikna kett­lingur sem drapst 22. des­em­ber. Læðan sem kett­ling­ur­inn var undan og annar kett­lingur úr sama goti drápust eftir stutt veik­indi tveimur dögum áður. Þau voru ekki rann­sökuð. Önnur gotsystk­ini kett­lings­ins voru farin af heim­il­inu áður en veik­indi komu upp og eru í dag öll ein­kenna­laus. Kett­irnir eru frá Ísafirði en kett­ling­ur­inn sem sýk­ingin greind­ist í var kom­inn til Reykja­víkur. Samband hefur verið haft við eig­endur allra katt­anna.

Mat­væla­stofnun álítur að lík­leg­ast sé að kett­irnir hafi smit­ast af sýktum villtum fugli. Að svo stöddu eru engar vís­bend­ingar um smit í fleiri köttum, en Mat­væla­stofnun biður katta­eig­endur og dýra­lækna að vera á verði gagn­vart sjúk­dóms­ein­kennum sem geta bent til fugla­in­flú­ensusmits. Nokkuð hefur verið um grein­ingar í villtum fuglum und­an­farna mán­uði og því ein­hver hætta til staðar að kettir geti smit­ast við veiðar eða af hræjum sem þeir kom­ast í.“

MAST telur þó hætt­una ekki það mikla að ástæða sé til að vara við úti­göngu katta eins og staðan er núna en minnir á að gæta ávallt almenns hrein­lætis í umgengni við dýr og umhirðu þeirra. Þá minnir MAST fólk á að til­kynna um villta fugla og villt spen­dýr sem finn­ast dauð.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

3
Minning

Helgi Ólafsson er fall­inn frá

Helgi Ólafsson, raf­virkja­meist­ari á Rauf­ar­höfn, lést á Dval­ar­heim­il­inu Hvammi 27. októ­ber, 97 ára að aldri. Morg­un­blaðið greindi frá and­láti hans. Helgi fædd­ist á Rauf­ar­höfn 31. maí 1929 og ólst þar upp. Hann lauk sveins­prófi í raf­virkjun árið 1950 og hlaut meist­ara­rétt­indi fimm árum síðar. Hann starf­aði við raf­virkjun alla starfsæv­ina, meðal ann­ars fyrir Síld­ar­verk­smiðjur rík­is­ins og SR-mjöl, auk þess að...
5
Slúður

Stjórn­ar­hættir Brynju

Einn und­ar­leg­asti atburður í íslensku atvinnu­lífi síð­ustu ár er brott­hvarf Harðar Arn­ar­sonar úr stóli for­stjóra Lands­virkj­unar eftir far­sæl störf í 17 ár. Hörður, sem hafði byggt upp fyr­ir­tækið Marel með mynd­ar­brag þegar hann tók við Lands­virkjun, hætti einu og hálfu ári eftir að Daði Már Krist­ó­fers­son fjár­mála­ráð­herra skipti alfarið út stjórn rík­is­orku­fyr­ir­tæk­is­ins. Stjórn­ar­for­mað­ur­inn Brynja Bald­urs­dóttir er grjót­harður kap­ít­alisti. Hún hefur...

Mest lesið í vikunni

Innlent

Fertugur maður ákærður fyrir 267 kanna­bis­plöntur í bíl

Plönturnar fundust í tveimur gróðurkössum í farangursrýminu
Innlent

Brynjar ók á bíl og far­þegi þurfti í umfangs­mikla aðgerð

Peningar

Samkaup semja um kaup á Fjarð­ar­kaupum

Fólk

„Með­höndla full­orðið fólk sem lifir enn eins og það séu börn“

Fólk

Lúxu­sein­býli á Arn­ar­nes­inu komið á sölu fyrir 340 millj­ónir

Landið

Landið

Límdu yfir hraða­mynda­vél lög­reglu

„Það er svo sannarlega þörf á hraðamælingum“
Landið

Forbes vekur athygli á nýju ferða­manna­gjaldi á Íslandi

Landið

Breskur stór­mið­ill velur fimm stór­kost­leg­ustu fossa Íslands

Landið

Vilja vernda nátt­úruperlu í Skriðdal

Landið

Skortur á leik­skóla­plássum tefur end­ur­komu starfs­fólks HSA

Landið

Björg­un­ar­bún­aður og bætt öryggi til skoð­unar við Stuðla­gil