Anna Kristjánsdóttir
„Ég lokaði af allar tilfinningar og gerðist kall.“
Anna Kristjánsdóttir
Skoðun

Strætó hefur aldrei verið verri

Fólk

Helga­fell á Sel­tjarn­ar­nesi komið á sölu

Innlent

Falsaðar ljós­myndir orðnar algengar í fast­eigna­aug­lýs­ingum

Landið

Nál fannst í hrekkja­vökusúkkulaði á Akureyri

Innlent

Gleymdi kaffi­bolla og rusli og end­aði fyrir kæru­nefnd

Fólk

Breið­holts­laug, Laug­ar­dalur og Hósiló meðal staða sem fá góð með­mæli

Innlent

Vopn komu við sögu þegar ung­lingap­artý fór úr bönd­unum

Heimur

Trúður vakti óhug við grunn­skóla

Innlent

Einn lát­inn og annar á gjör­gæslu eftir hnífstungu­árás í Breið­holti

Innlent

Hörður hót­aði lög­reglu­manni nauðgun og spark­aði í annan

Samtökin ’78 hafa kært fimm einstaklinga frá 2023: „Við látum reyna á þau lög sem eru í landinu“

Samtökin ’78 hafa kært fimm einstaklinga frá 2023: „Við látum reyna á þau lög sem eru í landinu“
Kári Garðars­son fram­kvæmda­stjóri Sam­tak­anna 78 – Myndin er sam­sett

Mikið hefur verið fjallað um mál­efni trans fólks á Íslandi á und­an­förnum árum og hefur umræðan að miklu leyti snú­ist um bakslag sem sumir telja hafa mynd­ast í bar­áttu trans fólks. Hluti af þessu bakslagi er orð­ræða ein­stak­linga sem eru lítið hrifnir af til­vist trans fólks og hafa nokkrir þekktir ein­stak­lingar, þar á meðal fram­bjóð­endur til Alþingis, tjáð sig á nei­kvæðan máta um hinsegin fólk.

Fyrir stuttu var fjallað um að Samtökin ’78 hefðu kært Eld Smára Krist­ins­son, for­mann Sam­tak­anna ’22, til lög­reglu fyrir ummæli sem hann hefur látið falla í gegnum árin. Eldur er þó aðeins einn af fimm sem sam­tökin hafa kært frá lok 2023 fyrir ýmiss ummæli. Kári Garð­ars­son, fram­kvæmda­stjóri Sam­tak­anna ’78, stað­festi í sam­tali við Mannlíf að sam­tökin hefðu einnig kært Pál Vil­hjálms­son, Friðgeir Sveins­son, Helgu Dögg Sverr­is­dóttur og ónefndan með­lim Sam­tak­anna ’22.

Samtökin telja ummæli þeirra og mál­flutn­ing vera brot á almennum hegn­ing­ar­lögum (233. gr. a).

Af hverju eru Samtökin ’78 að kæra þetta fólk?

„Við erum félag hinsegin fólks á Íslandi og við látum reyna á þau lög sem eru í land­inu til verndar hinsegin fólki. Þegar fólk kallar okkur eða hópa innan okkar raða ofbeld­is­fólk, jafn­vel barn­a­níð­inga og full­yrða að við séum að tæla börn eða beita þau ofbeldi þá tökum við það alvar­lega. Það eru lygar og mál­flutn­ingur sem vegur að öryggi alls hinsegin fólks og sem við sitjum ekki undir aðgerða­laus,“ sagði Kári í svari til Mannlífs um málið.

Hvað vilja sam­tökin fá úr þessum kærum?

„Samtökin ‘78 hafa ekki gert sér upp neina drauma­n­ið­ur­stöðu í þessum málum. Við treystum lög­reglu og dóms­kerf­inu að með­höndla þessi mál af fag­mennsku.“

„Öll eru þessi mál enn til með­ferðar hjá lög­reglu, annað hvort í rann­sókn eða ákæru­með­ferð, eftir því sem við vitum best,“ sagði fram­kvæmda­stjór­inn að lokum.

Hægt er að lesa ummæli þeirra sem samtökin hafa kært hér fyrir neðan

Páll Vilhjálmsson (kæra lögð fram 25. október 2023)

[…] ummælum sem birt­ust á vef­miðl­inum www.pallvill.blog.is hinn 13. sept­em­ber 2023 og hljóða svo:

„Samtökin 78: Regnhlíf fyrir tæl­ingu barna

Í grunn­skólum Reykja­víkur er BDSM-kyn­lífi haldið að börnum. BDSM stendur fyrir drottnun, und­ir­gefni, kval­ar­losta og pín­ing­ar­nautn. Samtökin 78 reka BDSM-deild. En það eru einmitt Samtökin 78 sem útvega kennslu­efni í kyn- og kyn­lífs­fræðslu grunn­skóla Reykja­víkur og sjá um þjálfun og kennslu.

Samtökin 78 eru regn­hlíf­ar­sam­tök og lífs­skoð­un­ar­fé­lag full­orð­inna sem áhuga­samir eru um klám, kyn­líf, kynja­ver­öld og tæl­ingu barna. Þegar sam­tökin eru afhjúpuð er það kallað upp­lýs­inga­óreiða. En það er ekki óreiða að sjá hlut­ina í réttu sam­hengi.

Á RÚV segir Helgi Grímsson, sviðs­stjóri skóla- og frí­stunda­sviðs Reykja­vík­ur­borgar, ,,að náms­efn­inu ætlað að sporna gegn áhrifum kláms.“ Það er léleg afsökun fyrir að klæm­ast í kennslu­efni.

Náms­efnið kennir börnum að fróa sér í baðk­ari og segir um nekt­ar­mynd­ar­töku barna: ,,Þú átt þinn lík­ama og mátt taka myndir af honum, en þarft þess alls ekki.“

Mennta­mála­stofnun gefur út rit í anda boð­skapar Sam­tak­anna 78. For­stjór­inn segir í Kast­ljósi að ekki sé fjallað um sjálfs­fróun í rit­inu. Fréttin afhjúpar ósann­indin. Í rit­inu grass­erar efni sem á ekki heima í leik- og grunn­skólum.

Kennslu­efnið er tæl­ing dul­búin sem upp­lýs­ingar. Meðfædd blygð­un­ar­semi barna er skipu­lega brotin niður. Börn eru gerð mót­tæki­leg fyrir þátt­töku í kyn­lífi og það jafn­vel ofbeld­iskyn­lífi – BDSM. Börn eru gerð efins um eigin sjálfs­mynd og talin trú um að þau séu mögu­lega fædd í röngu kyni. Ringluð börn og óör­ugg eru síður í stakk búin að veita við­nám full­orðnum með eitt­hvað mis­jafnt í huga. Út á það gengur tæl­ingin.

Samtökin 78 er líf­skoð­un­ar­fé­lag full­orð­inna með jað­ar­hug­myndir um kyn og kyn­líf. Líkt og aðrir sér­trú­ar­hópar á félags­skap­ur­inn sinn til­veru­rétt – í heimi full­orð­inna. Á RÚV er haft eftir Helga sviðs­stjóra að kennslu­efnið sé unnið af sér­fræð­ingum Sam­tak­anna 78.

Vottar Jehóva eru sér­fræð­ingar í trú­málum. Ekki er þeim boð­inn aðgangur að leik- og grunn­skóla­börnum. Ekki er kennslu­efni frá vott­unum notað í skólum. Almennt hafa lífs­skoð­un­ar­fé­lög ekki aðgang að leik- og grunn­skólum. Sér­visku­sjón­ar­mið um lífið og til­ver­una hafa sinn vett­vang í félaga­sam­tökum full­orð­inna. Ágengni sam­taka gagn­vart börnum sýnir að undir fag­ur­gala um fjöl­breyti­leika er ráð­ist á garð­inn þar sem hann er lægstur, vamm­lausri og óreyndri æsku sem býr ekki að stálp­aðri
dóm­greind. Full­orð­inn sem talar fávisku ofan í börnin, t.d. að hægt sé að fæð­ast í röngu kyni, nýtir sér barns­legt sak­leysi óharðn­aðra ung­menna. Foreldar vakna upp við þann vonda draum að kyn- og kyn­lífspæl­ingar sem þeim dytti aldrei í hug að halda að börnum sínum er skipu­lega flaggað framan í börnin þegar for­eldar eru fjarri.“

Friðgeir Sveinsson (kæra lögð fram 25. október 2023)

18. júlí 2023: „Ég ætla bara að segja það upp­hátt!! Þetta er fyrr­ver­andi fræðslu­stjóri Sam­tak­anna78.. Og þetta er „KARLMAÐUR“ Samtökin78 eru í mínum huga ekk­ert annað í dag en hags­muna­sam­tök barn­a­níð­inga og ann­ara perverta sem eru að leita að auð­veldum fórn­ar­lömbum.. Og svo má ég alls ekki ræða það af því að þá er ég víst „Trans­fó­bískur“… Ég er ekk­ert hræddur við kyn­ferð­is­lega brenglað fólk.. Og ég vill ekki sjá þessa perverta í umgengni við börn.. Og alls ekki að þetta brenglaðra fólk stundi ein­hvers­konar „Kyn­fræðslu“ í skólum.. Þar sem börn þurfa, og verða að sitja undir þessum perverta áróðri er ekki í lagi.. Í raun alger skandall að umburð­ar­lindi með geð­sjúk­dómum leiði til 2 þess að kyn­ferð­is­lega stór­brengl­uðu fólkisé bók­staf­lega hleypt að börnum…. Vænt­an­lega til að skoða hvað er í boði…Finna hentug fórn­ar­lömb.. þetta er sturlun.. Alger sturlun… Og Nei, ég mun ekki biðj­ast afsök­unar á því að benda á hið aug­ljósa“

26. ágúst 2023: „Og það þarf líka að fara stoppa þetta hér­lendis.. Samtökin 78 hafa að mínu mati verið stór­hættu­leg börnum síðan að Trans Geð­sjúk­ling­arnir tóku þau yfir. Samtökin 78 hafa sett ofurá­herslu á að ná til barna… Og ég end­ur­tek her með þá skoðun mína að hegðun og áherslur Sam­tak­anna 78 er að mínu mati ekk­ert annað en hegðun barn­a­níð­inga á veiðum.“

9. sept­em­ber 2023: „Það er blákalt mat mitt að hegðun sam­tak­anna 78 er ekk­ert annað en barnanýð. Þetta er að mínu mati bæði geð­veikt og kyn­ferð­is­lega brenglað fólk sem hefur með orgi, ofsóknum og yfir­gangi hrætt þetta auma lið hjá Reykja­vík­ur­borg og Mennta­stofnun til að gefa eftir.. Það eru pervertar að fara inní kennslu­stofur að inn­ræta börn á mót­un­ar­aldri með lygum og per­vert­isma… Vænt­an­lega til að geta byrjað að mis­nota þessi börn sem fyrst.. Má segja að þessir kyn­ferð­is­lega brengl­uðu geð­sjúk­lingar séu að und­ir­búa veislu­borð fram­tíð­ar­innar… Það eru bara til tvö kyn.. Restin er alger geð­veiki og þessi geð­veiki er komin mark­visst inní grunn­skóla ungra barna.. Það á að kalla hlut­ina réttum nöfnum!!“

10. sept­em­ber 2023: „Sem betur fer eru ein­stak­lingar að þora standa í lapp­irnar gegn þess­ari geðsturluðu þróun sem Trans Activistar eru að troða uppá börn. – Ég ítreka hér þá skoðun mína að Samtökun 78 séu ekk­ert annað en Hags­muna­fé­lög Barn­a­níð­inga á veiðum.. Og það á að halda slíku fólki frá börnum.. Það á ekki að hleypa per­vertum í greddukasti inní kennslu­stofur að skoða börn til að inn­ræta með geð­veiki..“

Meðlimur Samtakanna 22 (kæra lögð fram 25. október 2023)

[…] með færslu sem birt var á sam­fé­lags­miðlum Sam­tak­anna 22, þ.e. „Facebook“, hinn 29. ágúst 2023 og hljóðar svo: „I mean, that rag! Using infants to sat­isfy an obvious paraphilic sexual fet­ish in men is called P-e-d-o-p-h-i-l-i-a!“

Hinn 29. ágúst 2023 deildi með­limur Sam­tak­anna 22 áður­nefndum ummælum með eft­ir­far­andi orðum: „Þetta er ekki hreyf­ing sem við heyrum til í. Ef það er ekki aug­ljóst núna, þá hvenær ?“.

Helga Dögg Sverrisdóttir (kæra lögð fram 8. febrúar 2024)

1. 20. febr­úar 2023: „Kyn­ferð­is­leg áreitni í boði þing­manna í bún­ings­klefum kvenna: og fleiri verða fyrir því þegar fjölgun karl­manna sem skil­greina sig sem konu er veru­leiki í bún­ings­klefum kvenna í sund­laugum lands­ins. […] Að karl­maður, sem ski­greinir sig sem konu, og hefur líf­færi karl­manns lætur sjá sig í bún­ings­klefa stúlkna er auð­mýkj­andi og móðg­andi aðstæður. Verið að msi­bjóða virð­ingu stúlkna og kvenna. Það þarf ekki mikið til að karl­maður sem skil­greinir sig sem komu geti við­haft gróf­ari kyn­ferð­is­lega áreitni við sund­lauga­gesti, konur, ung­lings­stúlkur og stúlku­börn. Gæti orðið stutt í nauðgun. Þingmenn bjóða upp á mögu­leik­ann og hætt­una. End­ur­heimtum svæði kvenna og látum ekki bjóða stúlku­börn­unum okkar upp á þetta.“

2. 23. mars 2023: „Í skjóli hug­mynda­fræði kvenna má ýmis­legt gera. Karlar ger­ast trans­konur til að kom­ast í kvenna­fang­elsi, í kvenna­í­þróttir og inn á einka­svæði kvenna.“

3. 13. apríl 2023: „Styttir í að trans aðgerða­sinnar verði eins og hryðju­verka­menn. Taka þarf á þeim sem slíkum, fyrr en seinna.“

4. 14. apríl 2023: „Flestar hafa horfið í kyn­leysu­vit­leys­una og geta ekki varið rétt­indi kvenna. Engin kona er með lim. Líf­fræðin er ein­föld. Annað tveggja karl eða kona. Þessi bar­áttu­kona segir rétti­lega í við­tal­inu, trans-aðgerð­ar­sinnar gera alla vinn­una fyrir mig. Þeir hafa sér dólgs­lega, trufla konur þegar þær tala, ógna þeim og til­búnir að drepa til að þagga niður í konum. Hún vill ekki láta gelda börnin með lyfjum. Hún vill ekki tran­svæða börn. Hún vill ekki trans­konur inn í kvenna­rými, s.s. íþróttum, fang­elsi.“

5. 2. júlí 2023: „Í því sam­hengi er bent á að ungar stúlkur mega þola að karl sem skil­greinir sig sem konu kemur í einka­rými kvenna. Samtökin hafna, stúlkn­anna vegna að það sé laga­legur réttur karl­anna. Sama gildir um konur sem skil­greina sig sem karl­mann og aðgang að einka­rýmum karla. Orðið hér að neðan voru smíðuð þannig að orðið kona og karl komi ekki fyrir þegar talað er um trans fólk. Slíkt ruglar marga. Trans kona- er ekki kven­maður. Trans maður- er ekki karl­maður. Finnum góð íslensk orð yfir þessi orð og komum þeim inn í tungu­málið. Trans­vestite: Einhver sem hefur ánægju af að klæð­ast fötum hins kyns­ins. Trans­sexual: Sá sem fer í kyn­skipti­að­gerð.“

6. 14. ágúst 2023: „Þeir karl­menn sem líkar að ganga í kjólum og vera mál­aðir af því það trekkir þá og þeim þykir það skemmti­legt ásamt fleiru eigum við að kalla klæð­skipt­inga ekki trans. Hægt að þéna vel á öllum þeim karl­mönnum sem venju­lega ganga ekki í konu­fötum og nota farða ef bara aðeins lít­ill hluti þeirra byrj­aði á því.“

7. 25. ágúst 2023: „Áróð­ur­inn að trans-kona sé kona er lygi“

8. 11. sept­em­ber 2023: „Að troða þessu upp á börn í grunn­skóla er fyrir neðan allar hellur. Í list­anum má sjá ,,cis“ eða ,,sis“ sem eng­inn notar um konur nema trans-fólk. Það eru ekki til neinar aðrar konur nema líf­fræði­lega fæddar konur og því er þetta upp­nefni óþarft, 3 óvið­eig­andi og móðg­andi. Hvað þá að heila­þvo 7-10 ára börn með þessum orðum.“

Eldur Smári Kristinsson (kæra lögð fram 25. júní 2024)

1. 19. nóv­em­ber 2022: „Það er okkar upp­lýsta skoðun að hér átti að greiða götur kynja­fræð­inga og trans öfga­sinna til að gera ólög­ráða börn að lyfja­þrælum fyrir lífs­tíð.“

2. 1. júní 2023: „It‘s this month again folks. Now every big corporation will alter their logos to app­e­ase all the little führers in the cult of validation and we will hear not­hing else than trans, trans, trans, trans­les­bi­ans, girl dick this and that and all in the name diversity and compassion. They love the Berlin 1939 style decor don‘t they? (Image is from Regents Street in London 2022)“

3. 29. ágúst 2023: „I mean, that rag! Using infants to sat­isfy an obvious paraphilic sexual fet­ish in men called P-e-d-o-p-h-i-l-i-a!“

4. 2. apríl 2024: „Þessi ,,löngun‘ ‘ er kyn­ferð­is­legt blæti sem kall­ast „autog­y­nephilia“ á ensku, en ég hef sjálfur íslenskað hug­takið í ,,kven­sjálfsí­mynd­un­ar­blæti“. Þegar karl­menn eru farnir að nota UNGABÖRN til þess að sinna kyn­ferð­is­legum per­vert­skap sínum, þá erum við kom­inn í algjöra botn­leðju. Hversu djúp er hún og hversu með­virkt er sam­fé­lagið til í að vera!?“

5. 3. apríl 2024: „Alþingi heldur að karl­menn geti fætt börn. Þessi lög eru í bága við bæði barna­sátt­mála SÞ og í bága við úrskurð Mann­rétt­inda­dóm­stóls Evrópu er varðar rétt barns til þess að þekkja líf­fræði­legan upp­runa sinn. Mann­eskjur sem fæða börn kall­ast konur. Konursem fæða börn eru alltaf líf­fræði­legar mæður barna sinna. Alveg óháð hvað van­stillt Alþingi segir.“

6. 9. apríl 2024: „Af hverju eru Samtökin ’78 að grooma 10 ára krakka í 5.bekk? Hversu lengi ætlar fólk að vera með­virkt?“

7. 8. maí 2024: „Sumir láta sér ekki nægja að koma fram fyrir þjóð sína, heldur veifa fána satanísks ser­trú­ar­safn­aðar sem vill helst gelda eins mörg börn og mögu­legt er. #FreakShow #Eurovision2024 #12stig“

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

3
Minning

Helgi Ólafsson er fall­inn frá

Helgi Ólafsson, raf­virkja­meist­ari á Rauf­ar­höfn, lést á Dval­ar­heim­il­inu Hvammi 27. októ­ber, 97 ára að aldri. Morg­un­blaðið greindi frá and­láti hans. Helgi fædd­ist á Rauf­ar­höfn 31. maí 1929 og ólst þar upp. Hann lauk sveins­prófi í raf­virkjun árið 1950 og hlaut meist­ara­rétt­indi fimm árum síðar. Hann starf­aði við raf­virkjun alla starfsæv­ina, meðal ann­ars fyrir Síld­ar­verk­smiðjur rík­is­ins og SR-mjöl, auk þess að...
5
Slúður

Stjórn­ar­hættir Brynju

Einn und­ar­leg­asti atburður í íslensku atvinnu­lífi síð­ustu ár er brott­hvarf Harðar Arn­ar­sonar úr stóli for­stjóra Lands­virkj­unar eftir far­sæl störf í 17 ár. Hörður, sem hafði byggt upp fyr­ir­tækið Marel með mynd­ar­brag þegar hann tók við Lands­virkjun, hætti einu og hálfu ári eftir að Daði Már Krist­ó­fers­son fjár­mála­ráð­herra skipti alfarið út stjórn rík­is­orku­fyr­ir­tæk­is­ins. Stjórn­ar­for­mað­ur­inn Brynja Bald­urs­dóttir er grjót­harður kap­ít­alisti. Hún hefur...

Mest lesið í vikunni

Innlent

Fertugur maður ákærður fyrir 267 kanna­bis­plöntur í bíl

Plönturnar fundust í tveimur gróðurkössum í farangursrýminu
Innlent

Brynjar ók á bíl og far­þegi þurfti í umfangs­mikla aðgerð

Peningar

Samkaup semja um kaup á Fjarð­ar­kaupum

Fólk

„Með­höndla full­orðið fólk sem lifir enn eins og það séu börn“

Fólk

Lúxu­sein­býli á Arn­ar­nes­inu komið á sölu fyrir 340 millj­ónir

Innlent

Innlent

Einn bak við lás og slá eftir lík­ams­árás í Árbæ

Innlent

Íslenska haustið sýnir klærnar í dag

Innlent

Fluttur á bráða­mót­töku eftir að eldur kom upp í íbúð

Innlent

Rétt­ar­höld yfir Írisi „elti­hrelli“ hefj­ast á mánu­dag

Innlent

Hrekkja­vakan tekur yfir göt­urnar og lög­reglan varar öku­menn við

Innlent

Leigusal­inn kenndi utan­lands­ferð um veggjalús­ina