Anna Kristjánsdóttir
„Ég lokaði af allar tilfinningar og gerðist kall.“
Anna Kristjánsdóttir
Skoðun

Strætó hefur aldrei verið verri

Fólk

Helga­fell á Sel­tjarn­ar­nesi komið á sölu

Innlent

Falsaðar ljós­myndir orðnar algengar í fast­eigna­aug­lýs­ingum

Landið

Nál fannst í hrekkja­vökusúkkulaði á Akureyri

Fólk

Breið­holts­laug, Laug­ar­dalur og Hósiló meðal staða sem fá góð með­mæli

Innlent

Gleymdi kaffi­bolla og rusli og end­aði fyrir kæru­nefnd

Innlent

Vopn komu við sögu þegar ung­lingap­artý fór úr bönd­unum

Heimur

Trúður vakti óhug við grunn­skóla

Innlent

Einn lát­inn og annar á gjör­gæslu eftir hnífstungu­árás í Breið­holti

Fólk

Sjö góðar ástæður til að baka oftar

Hinn dauðvona „Harold Bishop“ fékk gleðitíðindi: „Þeir geta ekki sagt að krabbameinið sé farið“

Hinn dauðvona „Harold Bishop“ fékk gleðitíðindi: „Þeir geta ekki sagt að krabbameinið sé farið“
Er til meira krútt? Nei, hélt ekki. Mynd: Trausti Hafsteinsson

Nágranna­goð­sögnin Ian Smith var sagt að hann myndi ekki lifa fram að mars­mán­uði, eftir að hafa barist við árás­ar­gjarnt form lungna­krabba­meins, en nýlegar fréttir frá lækn­unum hafa gefið honum von um fram­leng­ingu á lífi.

Ian Smith, ást­sæli leik­ar­inn sem lék Harold Bishop í áströlsku sápu­óp­er­unni Nágrönnum (e. Neighbours) í ára­tugi, var sagt að hann myndi ekki lifa fram í mars eftir að hafa verið greindur með árás­ar­gjarnt og sjald­gæft lungna­krabba­mein. Nú, í gleði­legri upp­færslu, sýnir hinn 86 ára gamli leik­ari að hann er að storka lík­unum.

„Þess vegna er ég með þetta heil­steypta glott á and­lit­inu,“ segir Smith þegar Sian Cain hjá The Guardian ræddi við hann. „Fyrir utan að vera 86 ára líður mér vel. Ég er ekki með verki. Ég veit að ég er með krabba­mein því lækn­arnir eru alltaf að segja mér að ég sé með það.“

Í des­em­ber 2024 til­kynnti Smith að hann væri að yfir­gefa Nágranna fyrir fullt og allt eftir að hafa verið greindur með lungna­krabba­mein. Lækn­ir­inn hans, yfir­bug­aður af til­finn­ingum, grét meðan hann flutti frétt­irnar. Smith neydd­ist til að sjá heim­inn á annan hátt. „Ég byrj­aði að gera mjög dramat­íska hluti, eins og að horfa á hvert sól­setur, horfa á börn leika sér. Vikuna áður hefði ég drepið þau!“ grín­ast hann.

Eftoir að honum var sagt að hann myndi ekki lifa lengur en fram að mars, bjó Smith sig undir hið óum­flýj­an­lega. „Að deyja breytir því hvernig þú lifir,“ við­ur­kennir hann. „Ég segi til einskis að ég sé betri mann­eskja núna, en ég held að ég fyr­ir­gefi meira, sé skiln­ings­rík­ari. Það er synd að ég hefði ekki getað kom­ist að öllum þessum skiln­ingi [áður en] ég var veikur, ég hefði getað gert ein­hverjum gott í heim­inum.“

En svo kom plott sem eng­inn höf­undur sápu­ópera gat skrifað. Eftir að hafa byrjað lyfja­með­ferð og ónæm­is­með­ferð hringdi lækn­ir­inn hans með óvæntar fréttir. Hann sagði Guardian hvernig það væri „ekki rauður blettur í sjón­máli“ í síð­ustu skoðun hans.

Lífslíkur hans hafa nú verið færðar aftur til jól­anna 2026 „Ég er á þessum fyndna, tóma stað,“ útskýrir hann. „Þeir geta ekki sagt að krabba­meinið sé farið, í raun mega þeir ekki, því það hefur komið aftur í annað fólk og það hefur dáið af því. En satt að segja, ef þeir segðu mér að það væri komið aftur núna, þá væri ég til­bú­inn í þetta skiptið.“

Smith gaf Harold Bishop líf af og til í meira en 21 ár, og varð kunn­ug­legt and­lit áhorf­enda Ástralíu og Bret­lands og reyndar Íslands líka. Svo mikið að honum fannst eins og það yrði erf­ið­ara að líta á hann sem aðra per­sónu á ferl­inum.

Fyrir mann sem átti að deyja innan nokk­urra vikna er Smith eins skarpur og alltaf. „Menn­ing­ar­legt mik­il­vægi!“ fagnar hann eftir að hafa frétt að heim­ild­ar­mynd um reynslu hans var gefið grænt ljós fyrir styrk. „Ég hringdi í umboðs­mann minn og sagði: „Ég gef þér leyfi til að segja vinum þínum að þú þekktir mig.“

Þrátt fyrir per­sónu­legar sorgir, þar á meðal að missa eig­in­konu sína Gail úr krabba­meini árið 2019, er Smith enn þakk­látur fyrir að lifa „mesta for­rétt­inda­líf­inu“.

Það reyndi aldeilis á átríðu hans fyrir líf­inu fyrir ára­mót þegar hann upp­fyllti hæf­is­skil­yrði fyrir dán­ar­að­stoð (VAD).

Síðan, sagði hann, spurði lyfja­fræð­ingur hvort hann vildi fá lyfin send heim til sín. Hann neit­aði því fljótt þar sem það hefði freistað honum að taka lyfin þegar hann yrði í lægð. En í stað þess að skipu­leggja dauð­ann, fagnar hann nú þeim tíma sem hann á eftir.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

3
Minning

Helgi Ólafsson er fall­inn frá

Helgi Ólafsson, raf­virkja­meist­ari á Rauf­ar­höfn, lést á Dval­ar­heim­il­inu Hvammi 27. októ­ber, 97 ára að aldri. Morg­un­blaðið greindi frá and­láti hans. Helgi fædd­ist á Rauf­ar­höfn 31. maí 1929 og ólst þar upp. Hann lauk sveins­prófi í raf­virkjun árið 1950 og hlaut meist­ara­rétt­indi fimm árum síðar. Hann starf­aði við raf­virkjun alla starfsæv­ina, meðal ann­ars fyrir Síld­ar­verk­smiðjur rík­is­ins og SR-mjöl, auk þess að...
5
Slúður

Stjórn­ar­hættir Brynju

Einn und­ar­leg­asti atburður í íslensku atvinnu­lífi síð­ustu ár er brott­hvarf Harðar Arn­ar­sonar úr stóli for­stjóra Lands­virkj­unar eftir far­sæl störf í 17 ár. Hörður, sem hafði byggt upp fyr­ir­tækið Marel með mynd­ar­brag þegar hann tók við Lands­virkjun, hætti einu og hálfu ári eftir að Daði Már Krist­ó­fers­son fjár­mála­ráð­herra skipti alfarið út stjórn rík­is­orku­fyr­ir­tæk­is­ins. Stjórn­ar­for­mað­ur­inn Brynja Bald­urs­dóttir er grjót­harður kap­ít­alisti. Hún hefur...

Mest lesið í vikunni

Innlent

Einn bak við lás og slá eftir lík­ams­árás í Árbæ

Heimur

Bauð inter­net­inu í brúð­kaupið og allt fór á annan end­ann

Myndband
Heimur

Dádýr skall á konu og braust inn í þvotta­hús

Innlent

Fluttur á bráða­mót­töku eftir að eldur kom upp í íbúð

Menning

Laxness slær í gegn hjá The Guardian

Heimur

Heimur

Dóm­ara­deilan sýður upp úr í Póllandi

Heimur

Skoska lög­reglan rann­sakar tengsl Andrews við Epstein

Heimur

Fá borgað fyrir að ganga með vél­hunda um San Francisco

Heimur

Dul­ar­fullt ákall á net­inu vekur ótta við óeirðir á Tenerife

Heimur

Átta ára drengur skot­inn til bana

Heimur

Beit lög­reglu­hund í háls­inn eftir þriggja tíma flótta