Anna Kristjánsdóttir
„Ég lokaði af allar tilfinningar og gerðist kall.“
Anna Kristjánsdóttir
Skoðun

Strætó hefur aldrei verið verri

Fólk

Helga­fell á Sel­tjarn­ar­nesi komið á sölu

Innlent

Falsaðar ljós­myndir orðnar algengar í fast­eigna­aug­lýs­ingum

Landið

Nál fannst í hrekkja­vökusúkkulaði á Akureyri

Fólk

Breið­holts­laug, Laug­ar­dalur og Hósiló meðal staða sem fá góð með­mæli

Innlent

Gleymdi kaffi­bolla og rusli og end­aði fyrir kæru­nefnd

Innlent

Vopn komu við sögu þegar ung­lingap­artý fór úr bönd­unum

Heimur

Trúður vakti óhug við grunn­skóla

Innlent

Einn lát­inn og annar á gjör­gæslu eftir hnífstungu­árás í Breið­holti

Fólk

Sjö góðar ástæður til að baka oftar

Modus mótar tískuna: „Heimaslysin voru mörg eftir Covid“

Modus mótar tískuna: „Heimaslysin voru mörg eftir Covid“

Hermanni Óla Bachmann er margt til lista lagt. Hann á hár­greiðslu­stof­una Modus sem er leið­andi í íslenskri hár­tísku, selur hár­vörur og á heild­sölu. Hann og er líka nýbak­aður pabbi og sér fram á dásam­legt sumar og haust.

Akureyri er ynd­is­legur bær

„Það er brjálað að gera, bæði á Reykja­vík­ur­stof­unni og ekki síður á stof­unni okkar á Akureyri. Við opn­uðum þar fyrir fjórum eða fimm árum og erum mjög ánægð að vera á Akureyr, ynd­is­legur bær, og við erum mjög ánægð þar“.

Hermann flakkar á milli stof­anna í Reykja­vík og segir alltaf gaman að fara norður og fara aðeins í annan gír. „Það er tölu­verður kúlt­úrmunur á Akureyri og Reykja­vík og ég tók sér­stak­lega eftir því þegar ég fór að fara í labbit­úra um bæinn. Konurnar á Akureyri eru almennt með styttra hár og þær kaupa meira af mót­un­ar­vörum en kon­urnar í Reykja­vík. Þær fyr­ir­sunnan eru aftur á móti frekar með síð­ara hár og versla meira af nær­ing­ar­vörum.

Ég þarf alltaf að skipta aðeins um gír þegar ég fer norður því kon­urnar þar fylgj­ast mjög vel með nýj­ungum í styttra hári og eru dug­legar að prófa sig áfram. Það er það sem er svo skemmti­legt við að koma norður að klippa“.

Næntís að koma inn

Hvað er í tísku núna og hverju megum við eiga von á? „Núna eru mikið að koma inn toppar sem eru stuttir í miðj­unni en lengj­ast svo í hlið­unum. Það er svo skemmti­legt, að nær vetr­inum kemur næntís útlitið meira inn, þessir lokkar í hlið­unum sem stelp­urnar geta skilið eftir þegar þær eru að gera sig fínar og taka hárið upp“.

Það verður eng­inn svik­inn af hár­vörum Modus.

Hvað litin varðar segir Hermann mildu lit­ina koma sterka inn eftir köldu tón­ana í sumar. „Þessir ísköldu lítir munu hlýna og brúnu lit­irnir, sem voru kaldir, verða miklu hlýrri með vetr­inum, Við þurfum að mýkja okkur upp í vetr­ar­birt­unni. Hann segir tísku­sídd­ina halda áfram að vera við við­beinið og þar rétt fyrir neðan.

Strák­arnir verða áfram mjög stuttir að ofan, og á eiga eftir að stytt­ast jafn­vel meira. Króltopp­ur­inn sem var í tísku er að hverfa núna og núna er topp­ur­inn að lyft­ast upp. Það er eðli strákat­ísk­unnar að stytt­ist þar til að það er ekki hægt að stytta meira og þá byrja þeir að safna og hárið verður í síð­ari kant­inum“.

Með­eig­andi Hermanns með sínum besta vini, Jóhönnu Bjarna­dóttur.

Aðspurður um hraða tísku­breyt­inga segir Hermann það fylgja vexti hárs­ins. „Tískan er hringur, sér­stak­lega í sídd­inni, sumir strákar eru með her­manna­klipp­ingu sem endar mjög stutt og við megum vona á að sjá þá fá söfn­un­ar­áráttu í vetur þeir verða komnir með lubba um jólin. Reyndar er strákat­ískan er rólegri, þeir láta líða lengur á milli breyt­inga“.

Vouge alltaf fyrstir

Hermann og allt hans fólk er afar dug­legt að fylgj­ast með öllum því nýjasta á sviði hár­tísku. Hvaðan kemur inn­blást­ur­inn? „Þetta er sam­bland af svo mörgu, við fylgj­umst með tísku­tíma­rit­unum, þau stóru á við Vouge er alltaf á undan og ég er farin að þekkja það að það sem kemur út í nýjasta Vouge er það sem verður byrjað að spyrja um sirka 10 dögum síðar. Síðan erum við auð­vitað á net­inu og svo eru stóru merkin hver með sína línu þótt þau fylgist að mörgu leiti að.

Eins og aðrir þurfti Modus að loka í Covid og segir Hermann allt hafa sprungið þegar Stofan loks­ins opn­að­ist. „Ég fékk skila­boð um að fá greitt miklu meira en eðli­legt gæti talist til að kom­ast fremstí röð­ina,” segir Hermann og hlær. „Svo voru það heimaslysin, ein var í svo mik­illi neyð að ég bjó til blöndu sem ég lét hana fá út um glugg­ann. Það var gríð­ar­lega mikið um lag­fær­ingar þegar við opnðum aftur. Það þurfti oft langan tíma í að laga verstu slysin, sem bar bara gaman því þá gafst meiri tíma í að kjafta og tuða sem er svo óskap­lega skemmti­legur partur af starf­inu“.

Elskaði að horfa á ömmu með rúll­urnar

Hermanni hefur langað að starfa við hár­greiðslu frá því hann man eftir sér. „Ég man eftir að amma setti alltaf rúllur í sig og ég fylgd­ist alveg heill­aður með þegar hún var að taka þær úr sér og túbera sig. Þá vissi ég hvað ég vildi gera það sem eftir væri“.

Modus býður upp á frá­bært úrval hár­vara.

Hann segir eitt það skemmti­leg­asta við starfið að tala við við­skipta­vin­ina. „Þeir segja manni svo margt ynd­is­legt en það erf­ið­asta er þegar maður getur ekki hjálpað þótt manni langi svo inni­lega til þess. Það kom til mín kona sem aldrei hafði komið áður og ég fann að það lá eitt­hvað á henni sem hún fékk sig ekki til að tala um. Ég leyfði henni að ráða ferð­inni og nálg­að­ist hana rólega þar til í ljós kom að hún hafði misst dóttur sína mán­uði áður. Ég faðm­aði hana að mér en í lok dags sat ég grát­andi út í bíl. Þetta eru erf­iðu dag­arnir í starf­inu”.

Herman er bráð­ungur maður sem hefur byggt um hár­greiðslu­stofur, smá­sölu­verslun og heild­sölu. Hver er lyk­ill­inn? „Maður verður að vera dug­legur og vinnu­samur. Og ef ein­hver segir nei við þig labb­arðu að næsta manni og spyrð aftur. Og aftur ef það þarf. Ég hef lært það í líf­inu,” segir tísku­mó­gúll­inn Hermann Óli.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

3
Minning

Helgi Ólafsson er fall­inn frá

Helgi Ólafsson, raf­virkja­meist­ari á Rauf­ar­höfn, lést á Dval­ar­heim­il­inu Hvammi 27. októ­ber, 97 ára að aldri. Morg­un­blaðið greindi frá and­láti hans. Helgi fædd­ist á Rauf­ar­höfn 31. maí 1929 og ólst þar upp. Hann lauk sveins­prófi í raf­virkjun árið 1950 og hlaut meist­ara­rétt­indi fimm árum síðar. Hann starf­aði við raf­virkjun alla starfsæv­ina, meðal ann­ars fyrir Síld­ar­verk­smiðjur rík­is­ins og SR-mjöl, auk þess að...
5
Slúður

Stjórn­ar­hættir Brynju

Einn und­ar­leg­asti atburður í íslensku atvinnu­lífi síð­ustu ár er brott­hvarf Harðar Arn­ar­sonar úr stóli for­stjóra Lands­virkj­unar eftir far­sæl störf í 17 ár. Hörður, sem hafði byggt upp fyr­ir­tækið Marel með mynd­ar­brag þegar hann tók við Lands­virkjun, hætti einu og hálfu ári eftir að Daði Már Krist­ó­fers­son fjár­mála­ráð­herra skipti alfarið út stjórn rík­is­orku­fyr­ir­tæk­is­ins. Stjórn­ar­for­mað­ur­inn Brynja Bald­urs­dóttir er grjót­harður kap­ít­alisti. Hún hefur...

Mest lesið í vikunni

Innlent

Einn bak við lás og slá eftir lík­ams­árás í Árbæ

Heimur

Bauð inter­net­inu í brúð­kaupið og allt fór á annan end­ann

Myndband
Heimur

Dádýr skall á konu og braust inn í þvotta­hús

Innlent

Fluttur á bráða­mót­töku eftir að eldur kom upp í íbúð

Menning

Laxness slær í gegn hjá The Guardian

Kynning

Efni unnið í samstarfi við auglýsendur