Anna Kristjánsdóttir
„Ég lokaði af allar tilfinningar og gerðist kall.“
Anna Kristjánsdóttir
Innlent

Neyt­endur beðnir um að farga jógúrt frá Örnu

Innlent

Hörður hót­aði lög­reglu­manni nauðgun og spark­aði í annan

Skoðun

Strætó hefur aldrei verið verri

Innlent

Rað­kúk­ari Ragnars snéri aftur á Hrekkja­vöku

Innlent

Falsaðar ljós­myndir orðnar algengar í fast­eigna­aug­lýs­ingum

Fólk

„Með­höndla full­orðið fólk sem lifir enn eins og það séu börn“

Fólk

Lúxu­sein­býli á Arn­ar­nes­inu komið á sölu fyrir 340 millj­ónir

Landið

Nál fannst í hrekkja­vökusúkkulaði á Akureyri

Innlent

Jódís spyr hvar mót­mæl­end­urnir séu nú

Fólk

Breið­holts­laug, Laug­ar­dalur og Hósiló meðal staða sem fá góð með­mæli

Halldór var ungur er hann missti föður sinn -segir gaman að geta tekið við rekstri hans

Halldór var ungur er hann missti föður sinn -segir gaman að geta tekið við rekstri hans

„Hann stofn­aði fyr­ir­tækið í kringum 1950, hann var úrsmiður og rak við­gerð­ar­verk­stæði og verslun til 1984, þá deyr hann frekar ungur.“

Versl­unin Halldór Ólafsson úr og skart er stað­sett á Gler­ár­torgi á Akureyri. Versl­unin hefur verið starf­rækt í rúm sjö­tíu ár og má með sanni segja að hún hafi stækkað og dafnað með árunum. Árið 2000 flutt­ist verslun Halldórs Ólafs­sonar úr Hafn­ar­stræti 83 þar sem hún hafði verið frá stofnun í litlu nota­legu hús­næði, norður á Gler­ár­torg. Á Gler­ár­torgi hefur versl­unin í tvígang stækkað við sig og er óhætt að full­yrða að hún sé orðin ein af stærstu og glæsi­leg­ustu úra- og skart­gripa­versl­unum lands­ins. Bæði flytur versl­unin inn sína eigin skart­gripi, ásamt því að vera með ótal vöru­merki og eru íslenskir hönn­uðir þar áber­andi.

Ákvað að prufa úrsmíði

Halldór Hall­dórs­son tók við rekstri föður síns, Halldórs Ólafs­sonar, eftir að hafa lokið úrsmiðsnámi árið 1989. Halldór var í fram­halds­skóla þegar faðir hans féll frá og seg­ist hann hafa ákveðið að stúd­ents­prófi loknu að prufa nám í úrsmíði og sjá hvernig honum lík­aði. „Ég er enn að þannig að mér hefur lík­leg­ast líkað þetta ágæt­lega,“ segir Halldór og brosir.

Halldór segir að í byrjun hafi þetta ein­göngu verið úra­verslun, en nú séu þau komin með ansi mörg vöru­merki og mikið úrval af skarti ásamt úrunum.

Mikið úrval af glæsi­legum skarti

„Við byrj­uðum að vera með skart árið 2002, þá vorum við lang­mest með inn­flutt skart. Síðan var svo­lítið gaman af því í hrun­inu, þá fannst mér verða vakn­ing hjá öllum að velja íslenskt, segir Halldór og heldur áfram. „Og það held ég að hafi verið sprauta fyrir íslenska skart­fram­leið­endur og gull­smiði að koma þá með sínar eigin línur.“

Meðal íslenskra vöru­merkja sem fást hjá Halldóri má nefna Sif Jakobs, Sign, Jens, Vera Design og By Lovisa.

„Alltaf ein­hver úr að gera við“

Halldór segir alltaf nóg að gera.

Aðspurður hvort alltaf sé nóg að gera á úra­verk­stæð­inu svarar Halldór því til að svo sé. „Já það eru alltaf ein­hver úr að gera við,“ segir hann, snjallúrin hafi þó sett strik í reikn­ing­inn.
„Hérna í gamla daga voru menn kannski að gera meira við úr. Þau voru þá hlut­falls­lega mikið dýr­ari en í dag og því frekar gert við þau. Sumir skilja ekk­ert hvað úrsmiðir eru þá að gera, en það sem gerð­ist var að fólk á orðið svo mörg úr, þannig það er svo mikið af úrum í gangi og alls­konar þjón­usta í kringum þau,“ segir Halldór og bætir við að alltaf borgi sig að halda við góðum úrum. „Menn tengj­ast líka oft til­finn­inga­lega þeim hlutum sem þeir bera á sér og vilja halda í.“

Fjöl­skyldu­fyr­ir­tæki

Halldór segir það vissu­lega hafa verið gaman að geta tekið við fyr­ir­tæki föður síns.

„Ég fór oft til hans þegar maður var búinn í ung­linga­vinn­unni hérna í gamla daga og fór að læra af honum, gerði við vekjara­klukkur til að byrja með, svo stofu­klukkur,“ segir hann og brosir við minn­ing­unni. „Það er leiðin að ansi mörgu held ég að kíkja á verk­stæðið með pabba sínum. Eins og Íslend­ingar þekkja þá er vinnu­tím­inn ansi stór hluti dags­ins, þannig að það getur nú verið ansi gaman að umgang­ast for­eldra sína þar.“

Sjálfur á Halldór tvo syni, gerir hann ráð fyrir því að þeir taki við rekstr­inum þegar hann láti af störfum?

„Ég er nú ekki viss um það, þeir eru nú ekki á sömu braut og pabbi þeirra,“ segir Halldór kím­inn á svip. „Strák­arnir mínir báðir hafa verið hérna tals­vert, þannig þeir eru svo sem aðeins búnir að fá smjör­þef­inn af þessu og annar þeirra hefur mik­inn áhuga á þessu, þannig að við skulum bara sjá til. Best að ákveða ekk­ert, maður veit aldrei hvað fram­tíðin ber í skauti sér,“ segir Halldór bros­andi að lokum.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

3
Minning

Helgi Ólafsson er fall­inn frá

Helgi Ólafsson, raf­virkja­meist­ari á Rauf­ar­höfn, lést á Dval­ar­heim­il­inu Hvammi 27. októ­ber, 97 ára að aldri. Morg­un­blaðið greindi frá and­láti hans. Helgi fædd­ist á Rauf­ar­höfn 31. maí 1929 og ólst þar upp. Hann lauk sveins­prófi í raf­virkjun árið 1950 og hlaut meist­ara­rétt­indi fimm árum síðar. Hann starf­aði við raf­virkjun alla starfsæv­ina, meðal ann­ars fyrir Síld­ar­verk­smiðjur rík­is­ins og SR-mjöl, auk þess að...
5
Slúður

Stjórn­ar­hættir Brynju

Einn und­ar­leg­asti atburður í íslensku atvinnu­lífi síð­ustu ár er brott­hvarf Harðar Arn­ar­sonar úr stóli for­stjóra Lands­virkj­unar eftir far­sæl störf í 17 ár. Hörður, sem hafði byggt upp fyr­ir­tækið Marel með mynd­ar­brag þegar hann tók við Lands­virkjun, hætti einu og hálfu ári eftir að Daði Már Krist­ó­fers­son fjár­mála­ráð­herra skipti alfarið út stjórn rík­is­orku­fyr­ir­tæk­is­ins. Stjórn­ar­for­mað­ur­inn Brynja Bald­urs­dóttir er grjót­harður kap­ít­alisti. Hún hefur...

Mest lesið í vikunni

Heimur

Geymdi milljón myndir og mynd­skeið af mis­notkun eig­in­kon­unnar

Níu aðrir menn neita sök
Heimur

Banka­eig­andi hand­tek­inn grun­aður um að hafa tekið 430 millj­ónir dala úr hirslum

Innlent

Matthías neit­aði að hafa skallað lög­reglu­mann en búk­mynda­vélin sagði annað

Innlent

Erlendur maður grip­inn við skjala­fölsun við Hvera­gerði

Pólitík

Krafði Þorgerði svara vegna kjarn­orku­um­mæla Heimis Más

Kynning

Efni unnið í samstarfi við auglýsendur