Anna Kristjánsdóttir
„Ég lokaði af allar tilfinningar og gerðist kall.“
Anna Kristjánsdóttir
Innlent

Neyt­endur beðnir um að farga jógúrt frá Örnu

Innlent

Hörður hót­aði lög­reglu­manni nauðgun og spark­aði í annan

Skoðun

Strætó hefur aldrei verið verri

Innlent

Rað­kúk­ari Ragnars snéri aftur á Hrekkja­vöku

Innlent

Falsaðar ljós­myndir orðnar algengar í fast­eigna­aug­lýs­ingum

Fólk

„Með­höndla full­orðið fólk sem lifir enn eins og það séu börn“

Fólk

Lúxu­sein­býli á Arn­ar­nes­inu komið á sölu fyrir 340 millj­ónir

Innlent

Jódís spyr hvar mót­mæl­end­urnir séu nú

Innlent

Erlendur maður grip­inn við skjala­fölsun við Hvera­gerði

Landið

Nál fannst í hrekkja­vökusúkkulaði á Akureyri

Yngsta listasafn Íslands

Yngsta listasafn Íslands
Mynd af vef Lista­safns­ins á Akureyri.

Lista- og menn­ing­ar­líf á Akureyri blómstrar nú sem aldrei fyrr. Bærinn sjálfur og nágrenni hans eru í raun og veru eitt stórt lista­verk, en vilji fólk heim­sækja „aðeins“ minna lista­safn þá er klár­lega hægt að mæla með heim­sókn í Lista­safnið á Akureyri.

Lista­safnið leggur ríka áherslu á að virkja sem flesta til þátt­töku; fræða almenn­ing um sjón­listir og efla umræðu um sam­fé­lagið, menn­ingu og listir þar sem safn­kennsla og fyr­ir­lestra­hald skipar stóran sess. Einnig er lögð mikil áhersla á sam­starf við erlenda aðila, ekki hvað síst á Norð­ur­löndum.

Safnið leit­ast við að setja upp árlega nokkrar metn­að­ar­fullar sýn­ingar til að efla menn­ing­ar­líf bæj­ar­ins, auka við þekk­ingu, áhuga og efla skiln­ing á sjón­listum.

Varð að veru­leika á afmæl­is­degi Akur­eyr­ar­bæjar

Mynd af vef Lista­safns­ins á Akureyri.

Lista­safnið á Akureyri er yngsta lista­safnið á Íslandi, en hug­myndin að stofnun þess kom upp­haf­lega frá Jónasi Jónssyni frá Hriflu, í blaða­grein sem hann skrif­aði árið 1960. En þó liðu þrír ára­tugir frá áður­nefndri blaða­grein Jónasar uns hug­myndin um Lista­safnið á Akureyri komst aftur í umræð­una; varð hún loks­ins að veru­leika á afmæl­is­degi Akur­eyr­ar­bæjar þann 29. ágúst árið 1993, bæj­ar­búum og bara öllum Íslend­ingum og útlend­ingum sem koma hér sem ferða­menn til mik­illar gleði og ánægju.

Lista­safnið á Akureyri er til húsa þar sem áður var Mjólk­ur­sam­lag KEA, en bygg­ingin er undir sterkum áhrifum frá Bauhaus-skól­anum og hinni alþjóð­legu funkis-hreyf­ingu; safnið á Akureyri er mið­punktur og sam­ein­ing­ar­tákn þess­arar Lista­mið­stöðvar sem er í Gróf­ar­gili.

Fyrir þremur árum síðan var safnið stækkað og gerðar á því gagn­gerar end­ur­bætur Sýn­ing­ar­sölum var fjölgað og aðgengi bætt til muna. Húsnæði safns­ins er hið glæsi­leg­asta og aðstaðan eins og best verður á kosið. Mannlíf mælir ein­dregið með því að allir áhuga­menn um listir og menn­ingu heim­sæki safnið, en um opn­un­ar­tíma þess og aðrar upp­lýs­ingar er að finna hér: Opn­un­ar­tímar: Maí – sept­em­ber: Opið alla daga kl. 10-17 og svo frá októ­ber – apríl er opið alla daga kl. 12-17. Aðgangs­eyrir er afar vægur, 1.900 krónur, en fyrir
eldri borg­ara og náms­menn kostar aðgang­ur­inn aðeins 650 krónur.

Þá býðst gestum Lista­safns­ins að kaupa árskort á mjög hag­stæðu verði – eða á aðeins 4.000 krónur og með kort­inu getur fólk heim­sótt safnið eins oft og það lystir í heilt ár frá og með kaup­degi. Árskortið er til sölu í and­dyri Lista­safns­ins á opn­un­ar­tíma. Þá má því við bæta að ókeypis er fyrir 18 ára og

yngri, öryrkja, nem­endur, félags­menn í ICOM, Físos, SÍM, Gil­fé­lag­inu og Mynd­list­arfélag­inu.

Mannlíf hvetur alla list­unn­endur að heim­sækja safnið og gefa sér góðan tíma því það er svo sann­ar­lega þess virði.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

3
Minning

Helgi Ólafsson er fall­inn frá

Helgi Ólafsson, raf­virkja­meist­ari á Rauf­ar­höfn, lést á Dval­ar­heim­il­inu Hvammi 27. októ­ber, 97 ára að aldri. Morg­un­blaðið greindi frá and­láti hans. Helgi fædd­ist á Rauf­ar­höfn 31. maí 1929 og ólst þar upp. Hann lauk sveins­prófi í raf­virkjun árið 1950 og hlaut meist­ara­rétt­indi fimm árum síðar. Hann starf­aði við raf­virkjun alla starfsæv­ina, meðal ann­ars fyrir Síld­ar­verk­smiðjur rík­is­ins og SR-mjöl, auk þess að...
6
Slúður

Stjórn­ar­hættir Brynju

Einn und­ar­leg­asti atburður í íslensku atvinnu­lífi síð­ustu ár er brott­hvarf Harðar Arn­ar­sonar úr stóli for­stjóra Lands­virkj­unar eftir far­sæl störf í 17 ár. Hörður, sem hafði byggt upp fyr­ir­tækið Marel með mynd­ar­brag þegar hann tók við Lands­virkjun, hætti einu og hálfu ári eftir að Daði Már Krist­ó­fers­son fjár­mála­ráð­herra skipti alfarið út stjórn rík­is­orku­fyr­ir­tæk­is­ins. Stjórn­ar­for­mað­ur­inn Brynja Bald­urs­dóttir er grjót­harður kap­ít­alisti. Hún hefur...

Mest lesið í vikunni

Heimur

Geymdi milljón myndir og mynd­skeið af mis­notkun eig­in­kon­unnar

Níu aðrir menn neita sök
Heimur

Banka­eig­andi hand­tek­inn grun­aður um að hafa tekið 430 millj­ónir dala úr hirslum

Innlent

Matthías neit­aði að hafa skallað lög­reglu­mann en búk­mynda­vélin sagði annað

Pólitík

Krafði Þorgerði svara vegna kjarn­orku­um­mæla Heimis Más

Heimur

Flaug yfir fjöll og götur á heima­smíð­uðu svif­bretti

Kynning

Efni unnið í samstarfi við auglýsendur