Anna Kristjánsdóttir
„Ég lokaði af allar tilfinningar og gerðist kall.“
Anna Kristjánsdóttir
Skoðun

Strætó hefur aldrei verið verri

Fólk

Helga­fell á Sel­tjarn­ar­nesi komið á sölu

Innlent

Falsaðar ljós­myndir orðnar algengar í fast­eigna­aug­lýs­ingum

Landið

Nál fannst í hrekkja­vökusúkkulaði á Akureyri

Fólk

Breið­holts­laug, Laug­ar­dalur og Hósiló meðal staða sem fá góð með­mæli

Innlent

Gleymdi kaffi­bolla og rusli og end­aði fyrir kæru­nefnd

Innlent

Vopn komu við sögu þegar ung­lingap­artý fór úr bönd­unum

Heimur

Trúður vakti óhug við grunn­skóla

Innlent

Einn lát­inn og annar á gjör­gæslu eftir hnífstungu­árás í Breið­holti

Fólk

Sjö góðar ástæður til að baka oftar

Ein elsta dragdrottning heims látin

Maisie Trollette, sem hét réttu nafni David Raven, lést í gærnótt, 91 árs að aldri.

Ein elsta dragdrottning heims látin
David Raven David Raven í gerfi Maisie Trollette.

Maisie Trollette, sem hét réttu nafni David Raven, er lát­inn 91 árs að aldri. Maisie eitt helsta aðdrátt­ar­afl Brighton Pride-hátíð­ar­innar frá því hún hófst á átt­unda ára­tugnum.

Samkvæmt heim­ildum stað­bund­inna fjöl­miðla lést David aðfara­nótt mið­viku­dags. Dán­ar­or­sök hefur ekki verið gefin upp. Maisie var elsta starf­andi dragdrottn­ing Bret­lands og ein elsta dagdrottn­ing heims.

David Raven

Raven fædd­ist í Cornwall og lærði fyrst kaup­mennsku áður en hann starf­aði sem bar­þjónn og síðar þjónn í sum­ar­leyf­is­þorp­inu Great Yarmouth Holiday Camp. Þegar hann var 26 ára, á tímum þegar það var ólög­legt að vera sam­kyn­hneigður, kom hann út úr skápnum og flutti til Lundúna, þar sem hann próf­aði sig áfram í drag á skemmti­staðnum The Black Cap í Camden Town.

Goðsögn

Í við­tali árið 2022 sagði hann: „Alla ævi var ég hræddur við að koma út. Þú þurftir að vera mjög, mjög fal­inn inni í skápnum og auð­vitað var þetta ólög­legt. Hugtakið gay var ekki einu sinni til.“

Svið­s­per­sóna hans, Maisie, var annar helm­ing­ur­inn af grín-dragdu­ó­inu Trollettes, ásamt Jimmy Court. LGBTQ+ kab­ar­ett­stað­ur­inn Two Brewers, þar sem Maisie kom oft fram, birti hjart­næma kveðju til heið­urs draggoð­sögn­inni:

„Við erum harmi slegin yfir fregnum af and­láti Maisie Trollette.

David Raven var braut­ryðj­andi í breskri draglist. Hann var fæddur árið 1933 en hóf sinn stór­kost­legan feril á sjö­unda ára­tugnum og mynd­aði dúett­inn The Trollettes með James Court. Þeir heill­uðu áhorf­endur á þekktum stöðum eins og The Black Cap og RVT.

The Trollettes

Framkoma Maisie Trollette var fastur liður á Two Brewers, þar sem hún skemmti gestum í troð­fullum sal árum saman. David var einnig mjög virkur í góð­gerð­ar­málum og safn­aði þús­undum punda til styrktar góð­gerð­ar­sam­tökum um allt Bretland. Arfleifð hans og fram­lag til LGBTQ+ sam­fé­lags­ins voru heiðruð í heim­ild­ar­mynd­inni Maisie árið 2022.

David lést í morgun, 91 árs að aldri, og skilur eftir sig arf af gleði, seiglu og óbilandi ástríðu fyrir list sinni. Hans verður sárt saknað.“

Minnst á sam­fé­lags­miðl­unum

Eftir and­lát hans hafa aðdá­endur og frægir ein­stak­lingar vottað honum virð­ingu sína. Stjarna RuPaul’s Drag Race UK, Tia Kofi, deildi bleiku hjarta í kveðju­skyni.

„Þvílík goð­sögn, vel lifað líf. Sendi ást og styrk,“ skrif­aði einn aðdá­andi. Annar bætti við: „Guð blessi David. Margar skemmti­legar minn­ingar með honum á Brewers.“ Þriðji skrif­aði: „Ó, þetta er sorg­legt. Ég hitti Maisie árið 2006 á Gran Canaria, algjör goð­sögn! Sofðu vært, David.“

Á sam­fé­lags­miðl­inum X (áður Twitter) skrif­aði einn aðdá­andi: „Kveðjum elstu starf­andi dragdrottn­ingu Bret­lands, David Raven, einnig þekktan sem Maisie Trollette. Farinn 91 árs. Ég sá hann með Jimmy á átt­unda ára­tugnum, þeir virt­ust hafa verið til að eilífu, jafn­vel þá.“ Annar bætti við: „Goðsögn og braut­ryðj­andi. Hvíl í friði, Maisie Trollette.“

Líf Davids var fagnað árið 2023 á 90 ára afmæli hans með sér­stökum við­burði, David at 90, sem hald­inn var í Brighton Dome. Þar var farið yfir tón­list­ina sem fylgdi lífi hans í gegnum tíð­ina. Hann ákvað að allur ágóð­inn færi til Brighton Rainbow Fund, sem styrkir LGBTQ+ og HIV sam­tök í Brighton & Hove.

Á lífs­leið­inni safn­aði David þús­undum punda fyrir AIDS-sam­tök, í minn­ingu maka síns, Don Coull, sem hvatti hann til að gera drag­frammi­stöðu sína enn glæsi­legri.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

3
Minning

Helgi Ólafsson er fall­inn frá

Helgi Ólafsson, raf­virkja­meist­ari á Rauf­ar­höfn, lést á Dval­ar­heim­il­inu Hvammi 27. októ­ber, 97 ára að aldri. Morg­un­blaðið greindi frá and­láti hans. Helgi fædd­ist á Rauf­ar­höfn 31. maí 1929 og ólst þar upp. Hann lauk sveins­prófi í raf­virkjun árið 1950 og hlaut meist­ara­rétt­indi fimm árum síðar. Hann starf­aði við raf­virkjun alla starfsæv­ina, meðal ann­ars fyrir Síld­ar­verk­smiðjur rík­is­ins og SR-mjöl, auk þess að...
5
Slúður

Stjórn­ar­hættir Brynju

Einn und­ar­leg­asti atburður í íslensku atvinnu­lífi síð­ustu ár er brott­hvarf Harðar Arn­ar­sonar úr stóli for­stjóra Lands­virkj­unar eftir far­sæl störf í 17 ár. Hörður, sem hafði byggt upp fyr­ir­tækið Marel með mynd­ar­brag þegar hann tók við Lands­virkjun, hætti einu og hálfu ári eftir að Daði Már Krist­ó­fers­son fjár­mála­ráð­herra skipti alfarið út stjórn rík­is­orku­fyr­ir­tæk­is­ins. Stjórn­ar­for­mað­ur­inn Brynja Bald­urs­dóttir er grjót­harður kap­ít­alisti. Hún hefur...

Mest lesið í vikunni

Innlent

Einn bak við lás og slá eftir lík­ams­árás í Árbæ

Heimur

Bauð inter­net­inu í brúð­kaupið og allt fór á annan end­ann

Myndband
Heimur

Dádýr skall á konu og braust inn í þvotta­hús

Innlent

Fluttur á bráða­mót­töku eftir að eldur kom upp í íbúð

Menning

Laxness slær í gegn hjá The Guardian

Heimur

Heimur

Dóm­ara­deilan sýður upp úr í Póllandi

Heimur

Skoska lög­reglan rann­sakar tengsl Andrews við Epstein

Heimur

Fá borgað fyrir að ganga með vél­hunda um San Francisco

Heimur

Dul­ar­fullt ákall á net­inu vekur ótta við óeirðir á Tenerife

Heimur

Átta ára drengur skot­inn til bana

Heimur

Beit lög­reglu­hund í háls­inn eftir þriggja tíma flótta