Anna Kristjánsdóttir
„Ég lokaði af allar tilfinningar og gerðist kall.“
Anna Kristjánsdóttir
Innlent

Neyt­endur beðnir um að farga jógúrt frá Örnu

Innlent

Hörður hót­aði lög­reglu­manni nauðgun og spark­aði í annan

Skoðun

Strætó hefur aldrei verið verri

Innlent

Rað­kúk­ari Ragnars snéri aftur á Hrekkja­vöku

Innlent

Falsaðar ljós­myndir orðnar algengar í fast­eigna­aug­lýs­ingum

Fólk

„Með­höndla full­orðið fólk sem lifir enn eins og það séu börn“

Fólk

Lúxu­sein­býli á Arn­ar­nes­inu komið á sölu fyrir 340 millj­ónir

Innlent

Jódís spyr hvar mót­mæl­end­urnir séu nú

Innlent

Erlendur maður grip­inn við skjala­fölsun við Hvera­gerði

Landið

Nál fannst í hrekkja­vökusúkkulaði á Akureyri

Össur beinir spjótum sínum að Áslaugu Örnu: „Hvað gerði hún við þær upplýsingar sem henni bárust um málið?“

Össur segir þögn Áslaugar Örnu um málið vera ærandi

Össur beinir spjótum sínum að Áslaugu Örnu: „Hvað gerði hún við þær upplýsingar sem henni bárust um málið?“
Össur talar af reynslu Blandar Mogganum í málið Mynd: Nordic.org

Össur Skarp­héð­ins­son fyrr­ver­andi ráð­herra og rit­stjóri spyr hvort ekki þurfi að rann­saka þátt Áslaugar Örnu Sig­ur­björns­dóttur fyrr­ver­andi ráð­herra Sjálf­stæð­is­flokks­ins þegar kemur að máli Ást­hildar Lóu Þórs­dóttur sem sagði af sér ráð­herra­emb­ætti í vik­unni.

Össur segir að „Hrúta­kof­inn á Mogganum og ýmsir þing­menn Sjálf­stæð­is­flokks­ins ásamt öðrum hafa velt sér upp úr „lekum“ úr for­sæt­is­ráðu­neyt­inu og reynt að koma höggi á Kristrúnu Frosta­dóttur for­sæt­is­ráð­herra. Af þing­mönnum má nefna Hildi Sverr­is­dóttur og jafn­vel nýkjör­inn for­mann Guðrúnu Haf­steins­dóttur.“

Össur færir í tal það sem hann kallar “ ærandi þögn Áslaugar Örnu, yfir­lýs­ingaglað­asta þing­manns flokks­ins, sem þó hefur ekki sparað sig um hvers kyns mál­efni eftir fallið í nýaf­stöðnu for­manns­kjöri. Nú er hins vegar upp­lýst að Áslaug Arna vissi af mál­inu löngu áður en það breik­aði í fjöl­miðlum. Það setur mein­tan „leka“ á upp­lýs­ingum Ólafar í allt annað og alvar­legra sam­hengi.“

Hann heldur áfram:

„Grafin inn í frétt RÚV í gær­kvöldi er frá­sögn af því að degi eftir að Ólöf tengda­móðir sendi for­sæt­is­ráðu­neyt­inu „langan og ítar­legan tölvu­póst þar sem hún rakti erindi sitt“ sendi hún líka tölvu­póst á Áslaugu Örnu. Var það kanski sami tölvu­póst­ur­inn?“

Össur bætir því við að „sam­kvæmt frétt RÚV hafði því fólk í innsta hring Sjálf­stæð­is­flokks­ins upp­lýs­ingar um málið undir höndum löngu áður en það komst til fjöl­miðla . RÚV hefir til þessa kosið að fara ekki dýpra í málið. Er það til að vernda heim­ild­ar­menn sína?“

Össur segir að lokum að það sé for­ystu Sjálf­stæð­is­flokks­ins „til minnk­unar að freista þess að nota þetta mál til að sverta mann­orð for­sæt­is­ráð­herra. Sér­stak­lega þegar haft er í huga að skv. RÚV hafði fallin erfða­prinsessa í flokknum upp­lýs­ingar um málið. Ætlar RÚV virki­lega ekki að ganga eftir því að Áslaug Árna skýri stöðu sína í mál­inu? Eftir ásak­anir úr Sjálf­stæð­is­flokknum um að for­sæt­is­ráð­herra sé ábyrg fyrir lekum af erindi sem henni barst er það ský­laus krafa að Áslaug Arna geri hreint fyrir sínum dyrum. Hvað gerði hún við þær upp­lýs­ingar sem henni bár­ust um málið?“

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

3
Minning

Helgi Ólafsson er fall­inn frá

Helgi Ólafsson, raf­virkja­meist­ari á Rauf­ar­höfn, lést á Dval­ar­heim­il­inu Hvammi 27. októ­ber, 97 ára að aldri. Morg­un­blaðið greindi frá and­láti hans. Helgi fædd­ist á Rauf­ar­höfn 31. maí 1929 og ólst þar upp. Hann lauk sveins­prófi í raf­virkjun árið 1950 og hlaut meist­ara­rétt­indi fimm árum síðar. Hann starf­aði við raf­virkjun alla starfsæv­ina, meðal ann­ars fyrir Síld­ar­verk­smiðjur rík­is­ins og SR-mjöl, auk þess að...
6
Slúður

Stjórn­ar­hættir Brynju

Einn und­ar­leg­asti atburður í íslensku atvinnu­lífi síð­ustu ár er brott­hvarf Harðar Arn­ar­sonar úr stóli for­stjóra Lands­virkj­unar eftir far­sæl störf í 17 ár. Hörður, sem hafði byggt upp fyr­ir­tækið Marel með mynd­ar­brag þegar hann tók við Lands­virkjun, hætti einu og hálfu ári eftir að Daði Már Krist­ó­fers­son fjár­mála­ráð­herra skipti alfarið út stjórn rík­is­orku­fyr­ir­tæk­is­ins. Stjórn­ar­for­mað­ur­inn Brynja Bald­urs­dóttir er grjót­harður kap­ít­alisti. Hún hefur...

Mest lesið í vikunni

Heimur

Geymdi milljón myndir og mynd­skeið af mis­notkun eig­in­kon­unnar

Níu aðrir menn neita sök
Heimur

Banka­eig­andi hand­tek­inn grun­aður um að hafa tekið 430 millj­ónir dala úr hirslum

Innlent

Matthías neit­aði að hafa skallað lög­reglu­mann en búk­mynda­vélin sagði annað

Pólitík

Krafði Þorgerði svara vegna kjarn­orku­um­mæla Heimis Más

Heimur

Flaug yfir fjöll og götur á heima­smíð­uðu svif­bretti

Pólitík

Pólitík

Segir vinstri menn hafa yfir­tekið Sjálf­stæð­is­flokk­inn

„Slíkur fals-flokkur á engan tilvistarrétt, því hann gerir meira ógagn en gagn“
  • Pólitík

    Dorrit skorar á for­seta Ísraels að hleypa arab­ískum flokkum í rík­is­stjórn

  • Pólitík

    Segir öfga­ísla­mista og öfga hægri­menn eiga margt sam­eig­in­legt

  • Pólitík

    „Ég sakna þess enn meira að heyra rödd mann­rétt­inda á Alþingi“

  • Pólitík

    Kína vill efla tengslin við Ísland á lyk­ilsviðum

  • Pólitík

    Sig­mundur Davíð svarar fyrir fjar­veru sína úr öllum atkvæða­greiðslum