Anna Kristjánsdóttir
„Ég lokaði af allar tilfinningar og gerðist kall.“
Anna Kristjánsdóttir
Skoðun

Strætó hefur aldrei verið verri

Fólk

Helga­fell á Sel­tjarn­ar­nesi komið á sölu

Innlent

Falsaðar ljós­myndir orðnar algengar í fast­eigna­aug­lýs­ingum

Landið

Nál fannst í hrekkja­vökusúkkulaði á Akureyri

Fólk

Breið­holts­laug, Laug­ar­dalur og Hósiló meðal staða sem fá góð með­mæli

Innlent

Gleymdi kaffi­bolla og rusli og end­aði fyrir kæru­nefnd

Innlent

Vopn komu við sögu þegar ung­lingap­artý fór úr bönd­unum

Heimur

Trúður vakti óhug við grunn­skóla

Innlent

Einn lát­inn og annar á gjör­gæslu eftir hnífstungu­árás í Breið­holti

Fólk

Sjö góðar ástæður til að baka oftar

Frambjóðandi til rektors svaraði fyrir plastbarkamálið

Rekt­ors­fram­bjóð­andi spurður af sið­fræð­ingi. Hræðsla við umræðu.

Frambjóðandi til rektors svaraði fyrir plastbarkamálið
Magnús Karl Magn­ús­son Kosningu til rekt­ors lýkur á morgun og þar er Magnús Karl annar tveggja fram­bjóð­enda. Mynd: Háskóli Íslands

Magnús Karl Magn­ús­son rekt­ors­fram­bjóð­andi var með opinn fund á Þjóð­minja­safn­inu í gær en til­gang­ur­inn fund­ar­ins var að ræða mál­efni sem brenna á háskóla­fólki. Þar var Magnús Karl þrá­spurður um plast­barka­málið. Magnús er annar af tveimur fram­bjóð­endur sem komnir eru í loka­um­ferð í rek­stors­kjöri við Háskóla Íslands, en hinn er Silja Bára Ómars­dóttir alþjóða­stjórn­mála­fræð­ingur.

Í fyrri hluta fund­ar­ins fór Magnús Karl með tölu og var með kynn­ingu upp á töflu um sín bar­áttu­mál en tók síðan við spurn­ingum úr sal. Meðal þeirra sem spurðu Magnús Karl spurn­inga var Ástríður Stef­áns­dóttir, læknir og sið­fræð­ingur, en hún spurði hann út í hið svo­kall­aða plast­barka­mál.

Uppfært: Í upp­haf­legri frétt kom fram að lækna­deild Háskóla Íslands, undir for­sæti Magnúsar Karls, hefði kom­ist að þeirri nið­ur­stöðu að „ekki þyrfti væri að rann­saka“ plast­barka­málið frekar á fundi sínum 2016. Var það til­vitnun í frétt frá þeim tíma. Rétt er að taka fram að deildin hvatti til rann­sóknar en taldi rétt að bíða eftir nið­ur­stöðum rann­sóknar í Svíþjóð. Í athuga­semd frá Magnúsi Karli kemur fram að ein­hugur hafi verið um rann­sókn á fundi lækna­deildar, en ágrein­ingur um aðferða­fræði. Afstaða Lækna­deildar og HÍ hafi verið sú að styðja með öllum ráðum rann­sókn á mál­inu og að deildin studdi ein­dregið skipan sjálf­stæðra nefnda til að upp­lýsa málið. Þá hafi mörgum öngum máls­ins verið vísað til rekt­ors, enda sneri málið að sam­starfs­manni stjórnar lækna­deildar. Árið 2017 kom síðan út skýrsla rann­sókn­ar­nefndar sem skipuð var af rektor Háskóla Íslands og for­stjóra Land­spít­al­ans. Í til­vísun í eldri frétt um fund lækna­deildar 2016 skorti þetta sam­hengi og ekki kom fram yfir­lýstur stuðn­ingur deildar hans við að rann­sókn færi fram á mál­inu. Magnús Karl er beð­inn vel­virð­ingar á því.

Blandaðist inn í plastbarkamálið

Magnús Karl er einn þeirra sem voru í hring­iðu plast­barka­máls­ins svo­kall­aða. Umræðan hefur haldið áfram. Málið hófst með því að plast­barki var græddur í Andemariam Beyene, sjúk­ling af Land­spít­al­anum, í til­rauna­skyni 2011, en hann lést síðar kval­ar­fullum dauð­daga. Sá sem leiddi til­rauna­að­gerð­irnar, ítalski lækn­ir­inn Paolo Macchiarini, hefur reynst hafa beitt marg­vís­legum blekk­ingum í starfi og einka­lífi. Hann var dæmdur í tveggja og hálfs árs fang­elsi fyrir til­rauna­að­gerðir sínar í Svíþjóð. Lögmaður ekkju Andemari­ams, Sigurður G. Guð­jóns­son, hefur viljað beina spjótum sínum að íslenskum læknum sem komu að mál­inu. Nánar til­tekið Tómasi Guð­bjarts­syni, lækni og vini Magnúsar Karls, sem fram­kvæmdi aðgerð undir hand­leiðslu Macchiarinis. Lækna­deild HÍ, þar sem Magnús Karl var deild­ar­for­seti, komst að þeirri nið­ur­stöðu 2016 að lækna­deildin, en styðja þó „með öllum ráðum rann­sókn á ásök­unum“. Síðar komu fram upp­lýs­ingar um svika­vef Macchiarinis.

Lærdómur plastbarkamálsins

Spurning Ástríðar Stef­áns­dóttur snéri að innviðum í sam­bandi við vís­indasið­fræði, van­fjár­mögnun á mik­il­vægum stofn­unum, eins og Sið­fræði­stofnun. Þá tal­aði hún einnig um að nefndir hefðu verið stofn­aðar á sínum tíma til þess að nýta umræð­urnar sem sköp­uð­ust í kjöl­far Plast­barka­máls­ins til að skerpa á til­teknum þáttum, en að lítið sem ekk­ert hefði þó breyst. Ástríður sagði að þegar Plast­barka­málið hefði komið upp hefði hún og Magnús bæði fundið fyrir því hversu veikir inn­við­irnir hefðu verið til að takast á við málið.
Magnús Karl sagði í svari sínu að Vís­inda­siða­nefnd heil­brigð­is­rann­sókna sem stund­aði ein­hvers konar for­varnir og væri í ágætis standi. „En hinn end­inn er á að þegar eitt­hvað kemur upp, þá höfum við ekki góðan mekk­an­isma,“ bætti hann við. Sagðist hann „sann­ar­lega“ vera til í að vinna í því að bæta þann mekk­an­isma.

„Svartur blettur á sögu Háskólans“

Vil­hjálmur Árnason, pró­fessor emeritus í sið­fræði og fyrrum stjórn­ar­for­maður Sið­fræði­stofn­unnar, spurði Magnús Karl einnig út í Plast­barka­málið. Spurði hann rekt­ors­fram­bjóð­and­ann hvaða lær­dóm hann dragi úr mál­inu, hvort hann telji að hann hefði átt að gera eitt­hvað öðru­vísi og þá jafn­vel hvort hann hefði átt að víkja sem deild­ar­for­seti vegna tengsla hans við málið. Þá spurði hann einnig út í mál­þing sem haldið var í Háskóla Íslands 2012 um plast­barka­að­gerð­ina, en Vil­hjálmur sagði að það mál­þing hefði verið „eftir á að hyggja, svartur blettur á sögu Háskól­ans“. Bætti hann við að það væri ekki hægt að finna neitt um mál­þingið, hvergi sé hægt að lesa um það hverjir komu þar fram né annað sem snýr að þing­inu. Velti hann því fyrir sér hvort efnið hefði verið fjar­lægt.
Magnús Karl svar­aði Vil­hjálmi varð­andi hæfni sína til að gegna starfi deild­ar­for­stjóra lækna­deildar, að þá hafi málið verið rætt á þeim lýð­ræð­is­lega vett­vangi sem lækna­deildin hefur, á deild­ar­þingi, sem hafi verið fjöl­mennt. Þar hafi verið líf­legar umræður. Fólk hafi ekki verið sam­mála í öllu en að end­ingu hafi nið­ur­staðan verið sú að um 80 til 90 pró­sent gesta þings­ins töldu þá aðferð­ar­fræði sem stjórn deild­ar­innar beitti, hafi verið rétt. Hvað varð­aði mál­þingið, benti Magnús Karl mál­þingið hafi verið haldið ári eftir að plast­bark­inn var græddur á fyrsta sjúk­ling­inn en að þá hafi ekki verið minnsti grunur í vís­inda­sam­fé­lag­inu í heild, um að eitt­hvað mis­jafnt hefði átt sér stað.

Nið­ur­staða rann­sókn­ar­nefndar um plast­a­barka­málið var að „ekki [hafi verið] komin fram sönnun um það að fyr­ir­svars­mönnum Háskóla Íslands hafi mátt vera ljóst að laga­legir og sið­ferði­legir ann­markar hefðu verið á vís­inda­að­gerð þeirri sem Andemariam und­ir­gekkst í Svíþjóð þegar ákveðið var að halda mál­þingið á Íslandi.“

Ótti við umræðu

Hvað varð­aði það hvort Magnús dragi ein­hvern lær­dóm af mál­inu sagði hann að hann hefði kannski ekki átt að stýra deild­ar­þing­inu, sem deild­ar­for­seti. „Auðvitað þurfum við sem stjórn­endur að vera til­búnir að horfa í bak­sýn­is­speg­il­inn,“ svar­aði Magnús og bætti við að hann teldi að vís­inda­sam­fé­lagið hefði átt að tala meira eftir á um lær­dóma sem hægt væri að draga af mál­inu. Vil­hjálmur bætti því við að hann skynj­aði hræðslu í vís­inda­sam­fé­lag­inu, að fólk þori ekki að tala um þetta. Þessu sam­sinnti Magnús Karl og sagði að hann væri einn af þeim fáum sem hefði rætt þetta opin­ber­lega.

Að þessu loknu kvaðst Magnús vilja nú svara spurn­ingum frá öðrum deildum.

Tillögur um umbætur í skýrslu

Samkvæmt heim­ildum Mannlífs voru und­ir­liggj­andi áhyggjur og umræður innan háskól­ans að aðkoma Magnúsar að plast­barka­mál­inu yrði honum fjötur um fót.

Magnús seg­ist í sam­tali við Mannlíf telja órétt­mætt að tengja hann við plast­barka­málið með þeim hætti sem gert hefur verið í óljósum ásök­unum. Þó þakki hann fyrir að fá að hreinsa loftið.

„Við sem stjórn­uðum deild­inni á þeim tíma þegar málið kom upp lögðum okkur fram um að taka á því með eins vönd­uðum og ábyrgum hætti og okkur var unnt. Þar komu einnig að ábyrgð á rann­sókn máls­ins rektor Háskóla Íslands og for­stjóri Land­spít­ala og báru þeir einnig loka­á­byrgð á að vinna úr nið­ur­stöðu og tillmælum rann­sókn­ar­skýrsl­unnar. Ég ber hins vegar enga ábyrgð á, né hafði ég hafði ég aðkomu að sjálfu plast­barka­mál­inu, þ.e. því máli sem var til rann­sóknar,“ segir hann í sam­tali við Mannlíf.

Meðal nið­ur­staðna skýrslu­höf­unda var að „afla hefði þurft afla hefði þurft leyfis vís­inda­siða­nefndar fyrir rann­sóknum sem gerðar voru á Andemariam á Land­spít­ala í til­efni af skrifum á vís­inda­grein þeirri sem birt var í Lancet 2011.“

Þá eru lagðar til umbætur.

„Að mati nefnd­ar­innar er það æski­legt að Land­spít­ali óski eftir því við vís­inda­siða­nefnd að útbúið verði leið­bein­andi álit um mörkin á milli gagna­rann­sókna og vís­inda­rann­sókna á mönnum svo ekki leiki vafi á í hvorn flokk­inn rann­sókn fellur hverju sinni þegar heil­brigð­is­starfs­menn Land­spít­ala und­ir­búa rann­sókn­ar­á­ætl­anir sínar,“ sagði í til­lögum skýrslu­höf­unda.
Hér fyrir neðan má sjá fund­inn en þar má meðal ann­ars heyra svör Magnúsar Karls í heild sinni.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

3
Minning

Helgi Ólafsson er fall­inn frá

Helgi Ólafsson, raf­virkja­meist­ari á Rauf­ar­höfn, lést á Dval­ar­heim­il­inu Hvammi 27. októ­ber, 97 ára að aldri. Morg­un­blaðið greindi frá and­láti hans. Helgi fædd­ist á Rauf­ar­höfn 31. maí 1929 og ólst þar upp. Hann lauk sveins­prófi í raf­virkjun árið 1950 og hlaut meist­ara­rétt­indi fimm árum síðar. Hann starf­aði við raf­virkjun alla starfsæv­ina, meðal ann­ars fyrir Síld­ar­verk­smiðjur rík­is­ins og SR-mjöl, auk þess að...
5
Slúður

Stjórn­ar­hættir Brynju

Einn und­ar­leg­asti atburður í íslensku atvinnu­lífi síð­ustu ár er brott­hvarf Harðar Arn­ar­sonar úr stóli for­stjóra Lands­virkj­unar eftir far­sæl störf í 17 ár. Hörður, sem hafði byggt upp fyr­ir­tækið Marel með mynd­ar­brag þegar hann tók við Lands­virkjun, hætti einu og hálfu ári eftir að Daði Már Krist­ó­fers­son fjár­mála­ráð­herra skipti alfarið út stjórn rík­is­orku­fyr­ir­tæk­is­ins. Stjórn­ar­for­mað­ur­inn Brynja Bald­urs­dóttir er grjót­harður kap­ít­alisti. Hún hefur...

Mest lesið í vikunni

Innlent

Einn bak við lás og slá eftir lík­ams­árás í Árbæ

Heimur

Bauð inter­net­inu í brúð­kaupið og allt fór á annan end­ann

Myndband
Heimur

Dádýr skall á konu og braust inn í þvotta­hús

Innlent

Fluttur á bráða­mót­töku eftir að eldur kom upp í íbúð

Menning

Laxness slær í gegn hjá The Guardian

Innlent

Innlent

Rétt­ar­höld yfir Írisi „elti­hrelli“ hefj­ast á mánu­dag

Ákæran er 17 blaðsíður og ákæruliðirnir 68
Innlent

Heimir Már biðst afsök­unar á ummælum um kjarn­orku­vopn

Innlent

Hrekkja­vakan tekur yfir göt­urnar og lög­reglan varar öku­menn við

Innlent

Leigusal­inn kenndi utan­lands­ferð um veggjalús­ina

Innlent

Íslenska haustið sýnir klærnar í dag

Innlent

Hrekkja­vöku­skemmtun fór úr bönd­unum í Kópavogi