Anna Kristjánsdóttir
„Ég lokaði af allar tilfinningar og gerðist kall.“
Anna Kristjánsdóttir
Innlent

Neyt­endur beðnir um að farga jógúrt frá Örnu

Innlent

Hörður hót­aði lög­reglu­manni nauðgun og spark­aði í annan

Innlent

Rað­kúk­ari Ragnars snéri aftur á Hrekkja­vöku

Fólk

„Með­höndla full­orðið fólk sem lifir enn eins og það séu börn“

Innlent

Jódís spyr hvar mót­mæl­end­urnir séu nú

Fólk

Lúxu­sein­býli á Arn­ar­nes­inu komið á sölu fyrir 340 millj­ónir

Innlent

Erlendur maður grip­inn við skjala­fölsun við Hvera­gerði

Innlent

Brynjar ók á bíl og far­þegi þurfti í umfangs­mikla aðgerð

Heimur

Banka­eig­andi hand­tek­inn grun­aður um að hafa tekið 430 millj­ónir dala úr hirslum

Pólitík

Krafði Þorgerði svara vegna kjarn­orku­um­mæla Heimis Más

Netanyahu viðurkennir að vopnaður glæpahópur starfi fyrir Ísrael á Gaza

Hefur verið sak­aðir um glæp­sam­legar árásir og rán á hjálp­ar­gögnum

Netanyahu viðurkennir að vopnaður glæpahópur starfi fyrir Ísrael á Gaza
Benjamin Net­anyu­ahu For­sæt­is­ráð­herra Ísraels ber ábyrgð á drápum tug­þús­unda sak­lausra borg­ara. Mynd: RONEN ZVULUN/POOL/AFP

Benjamin Net­anyahu, for­sæt­is­ráð­herra Ísraels, hefur opin­berað að Ísrael beiti vopn­uðum glæpa­hópum á Gaza í bar­átt­unni gegn Hamas. Þetta kom fram í mynd­bands­yf­ir­lýs­ingu sem hann birti á sam­fé­lags­miðl­inum X á fimmtu­dag, skömmu eftir að fyrr­ver­andi varn­ar­mála­ráð­herra Avigdor Lieberman sak­aði hann um að beita þess­ari aðferð.

Yfir­lýs­ingin markar í fyrsta sinn sem ísra­elsk stjórn­völd við­ur­kenna opin­ber­lega að þau styðji vopn­aða palest­ínska hópa sem byggja á valda­miklum ætt­bálkum. Mann­úð­ar­að­ilar hafa sakað þessa hópa um glæp­sam­legar árásir og að ræna hjálp­ar­gögnum úr flutn­inga­bílum á sama tíma og hungur og neyð ríkir á Gaza vegna gríð­ar­legs umsát­urs Ísraels.

Samkvæmt frétt frá Associated Press er einn þess­ara hópa svo­kall­aður Popular Forces, undir stjórn Yasser Abu Shabab, ætt­bálks­leið­toga í Rafah. Í síð­asta mán­uði greindi ísra­elska blaðið Haaretz frá starf­semi hóps­ins, nefndur þar „Anti-Terror Service“, og full­yrti að um 100 vopn­aðir menn væru í hópnum og að Ísra­els­her veitti honum þegj­andi sam­þykki.

Á síð­ustu vikum hefur hópur Abu Shabab lýst því yfir á net­inu að hann verji birgða­send­ingar til nýrra dreif­ing­ar­stöðva á vegum Gaza Human­it­arian Foundation (GHF), sem styðst við banda­rísk og ísra­elsk yfir­völd.

Frétta­rit­ari Al Jazeera í Amman, Hamdah Salhut, sagði: „Net­anyahu heldur því fram að þessir vopn­uðu glæpa­hópar geti í raun hjálpað Ísraelum að sigra Hamas á Gasza.“ Hún bætti við: „En þetta mætir mik­illi and­stöðu innan Ísraels. Margir segja að um glæpa­sam­tök sé að ræða, og að ísra­elsk vopn séu komin í hendur þeirra.“

„Slát­ur­húsið“ á Gasa

Yfir­lýs­ing Net­anyahu kom á enn einum blóð­ugum degi í Gasa. Ísra­els­her réðst á fjölda skot­marka í strand­hér­að­inu þar sem umsátur hefur sett íbú­ana á barm hung­ursneyðar.

Frá síð­ustu viku hafa meira en 100 manns verið drepnir og margir fleiri særst við hjálp­ar­dreif­ing­ar­stöðvar GHF. Í fjögur skipti hafa ísra­elskir her­menn skotið á Palest­ínu­menn sem leita sér aðstoðar.

Chris Gunness, fyrr­ver­andi tals­maður UNRWA, Flótta­manna­stofn­unar Sam­ein­uðu þjóð­anna fyrir Palest­ínu, sagði við Al Jazeera að aðgerðir GHF hefðu breytt Gaza í „slát­ur­hús“

„Hund­ruðum óbreyttra borg­ara er smalað eins og skepnum inn í afgirt svæði og þeim slátrað eins og naut­gripum,“ sagði hann.

GHF lok­aði starf­semi sinni á mið­viku­dag vegna gagn­rýni en til­kynnti dag­inn eftir að tvær dreif­ing­ar­stöðvar yrðu opn­aðar aftur í Rafah. Ekki var greint frá því hvenær aðstoð myndi hefj­ast á ný.

Að minnsta kosti 52 Palest­ínu­menn voru drepnir á fimmtu­dag, sam­kvæmt heim­ildum sjúkra­húsa sem Al Jazeera ræddi við. Þar af bár­ust 31 lík til Nasser-sjúkra­húss­ins í Khan Younis og 21 til al-Ahli Arab og al-Shifa sjúkra­hús­anna í Gaza borg.

Fjórir blaða­menn lét­ust í árás á al-Ahli sjúkra­húsið, einnig þekkt sem Baptista­sjúkra­húsið.

Fadi al-Hindi, íbúi í Gaza borg, lýsti því að hann hefði séð árás við al-Nasser götu nálægt al-Shifa sjúkra­hús­inu:

„Ég sá mann í tætlum, hann var á reið­hjóli og neðri hluti lík­am­ans var horf­inn. Allir í göt­unni voru særðir. Við fórum að safna saman lík­ams­leifum.“

Að minnsta kosti þrír lét­ust í þeirri árás, þar á meðal börn.

Palest­ínska frétta­stofan Wafa greindi einnig frá fimm dauðs­föllum í grennd við Khan Younis, fjórum vestan við Beit Lahiya í norðri, einu suður af Gaza borg og særðu barni nálægt Bureij á mið-Gaza. Hún sagði einnig frá því að ísra­elskir her­menn hefðu skotið á Palest­ínu­menn sem reyndu að kom­ast að hjálp­ar­stöð við Wadi Gaza.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

3
Minning

Helgi Ólafsson er fall­inn frá

Helgi Ólafsson, raf­virkja­meist­ari á Rauf­ar­höfn, lést á Dval­ar­heim­il­inu Hvammi 27. októ­ber, 97 ára að aldri. Morg­un­blaðið greindi frá and­láti hans. Helgi fædd­ist á Rauf­ar­höfn 31. maí 1929 og ólst þar upp. Hann lauk sveins­prófi í raf­virkjun árið 1950 og hlaut meist­ara­rétt­indi fimm árum síðar. Hann starf­aði við raf­virkjun alla starfsæv­ina, meðal ann­ars fyrir Síld­ar­verk­smiðjur rík­is­ins og SR-mjöl, auk þess að...
6
Slúður

Stjórn­ar­hættir Brynju

Einn und­ar­leg­asti atburður í íslensku atvinnu­lífi síð­ustu ár er brott­hvarf Harðar Arn­ar­sonar úr stóli for­stjóra Lands­virkj­unar eftir far­sæl störf í 17 ár. Hörður, sem hafði byggt upp fyr­ir­tækið Marel með mynd­ar­brag þegar hann tók við Lands­virkjun, hætti einu og hálfu ári eftir að Daði Már Krist­ó­fers­son fjár­mála­ráð­herra skipti alfarið út stjórn rík­is­orku­fyr­ir­tæk­is­ins. Stjórn­ar­for­mað­ur­inn Brynja Bald­urs­dóttir er grjót­harður kap­ít­alisti. Hún hefur...

Mest lesið í vikunni

Heimur

Segir Net­anyahu þrýsta á Trump um kjarn­orku­árás

„Eftir fyrstu kjarnorkuárásina er þriðja heimsstyrjöldin óhjákvæmileg“
Pólitík

Reykja­vík ætlar að snúa millj­arða­halla í afgang á aðeins einu ári

Heimur

Úkraínsk dróna­árás olli miklum eldi í rúss­neskri olíu­hreinsi­stöð

Landið

Sváfu undir berum himni og heill­uð­ust af íslenska hálend­inu

Pólitík

Rússar undr­andi á Þorgerði Katrínu

Heimur

Heimur

Flug­velli í Póllandi lokað eftir sprengju­hótun

Annað sambærilegt atvik á skömmum tíma
Myndband
Heimur

Dádýr skall á konu og braust inn í þvotta­hús

Heimur

Óvenju­leg inn­rás mar­íu­bjalla vekur óhug

Heimur

Geymdi milljón myndir og mynd­skeið af mis­notkun eig­in­kon­unnar

Heimur

Flaug yfir fjöll og götur á heima­smíð­uðu svif­bretti

Heimur

Bauð inter­net­inu í brúð­kaupið og allt fór á annan end­ann