Anna Kristjánsdóttir
„Ég lokaði af allar tilfinningar og gerðist kall.“
Anna Kristjánsdóttir
Skoðun

Strætó hefur aldrei verið verri

Fólk

Helga­fell á Sel­tjarn­ar­nesi komið á sölu

Innlent

Falsaðar ljós­myndir orðnar algengar í fast­eigna­aug­lýs­ingum

Landið

Nál fannst í hrekkja­vökusúkkulaði á Akureyri

Fólk

Breið­holts­laug, Laug­ar­dalur og Hósiló meðal staða sem fá góð með­mæli

Innlent

Gleymdi kaffi­bolla og rusli og end­aði fyrir kæru­nefnd

Innlent

Vopn komu við sögu þegar ung­lingap­artý fór úr bönd­unum

Heimur

Trúður vakti óhug við grunn­skóla

Innlent

Einn lát­inn og annar á gjör­gæslu eftir hnífstungu­árás í Breið­holti

Fólk

Sjö góðar ástæður til að baka oftar

Tapaði milljarði vegna spilafíknar en leikur í veðmálaauglýsingu

Eiður Smári hefur verið opinn varð­andi spilafíkn sína í gegnum árin

Tapaði milljarði vegna spilafíknar en leikur í veðmálaauglýsingu
Eiður Smári er einn besti knatt­spyrnu­maður í sögu Íslands Hefur starfað sem þjálf­ari eftir að hann lagði skónna á hill­una. Mynd: Skjáskot

Knatt­spyrnu­mað­ur­inn fyrr­ver­andi Eiður Smári Guðjohn­sen hefur komið víða við á ferl­inum og meðal ann­ars í aug­lýs­ingum.

Margir muna eftir aug­lýs­ingu sem lands­liðs­mað­ur­inn fyrr­ver­andi lék í fyrir Coca Cola þar sem hann lék listir sínar vítt og breitt um höf­uð­borg Íslands.

Nú hefur veð­mála­fyr­ir­tækið Epicbet, sem ekki hefur starfs­leyfi á Íslandi, birt nýja aug­lýs­ingu fyrir fyr­ir­tækið og hlað­varpið Dr. Football, sem Hjörvar Haf­liða­son stjórnar. Þar er greint frá því að Eiður muni ganga til liðs við hlað­varpið en helsti styrkt­ar­að­ili þess er Epicbet. Aug­lýs­ingin endar svo á merki Epicbet. Þá hefur verið búin til knatt­spyrnu­treyja með merki Dr. Football og Epicbet, sem er sýnd í aug­lýs­ing­unni.

Við aug­lýs­ing­una skrifar veð­mála­fyr­ir­tækið svo „Eiður Smári Gudjohn­sen er Epic.“

Hefur sjálfur tapað háum fjárhæðum

Aug­lýs­ingin vekur sér­stak­lega athygli í ljós þessi að Eiður Smári hefur í gegnum árin verið opin­skár um veð­málafíkn sína. Árið 2023 fagn­aði Eiður reglu­breyt­ingu hjá ensku úrvals­deild­inni sem bannar veð­mála­fyr­ir­tækjum að aug­lýsa framan á treyjum liða í deild­inni.

„Hver ein­asti fót­bolta­að­dá­andi, öll börn í heim­inum, eru með augun límd við treyjur stærstu félag­anna á hverjum degi. Treyju­aug­lýs­ing sendir sterk skila­boð og aug­lýs­ingar hafa mikil áhrif,“ sagði Eiður um bannið. „Þetta hefur áhrif á alla vegna þess að við sjáum þetta í sjón­varp­inu, á aug­lýs­inga­skiltum og fót­bolta­treyjum. Þetta hefur orðið hluti hvers­dags­legs veru­leika og ég held að bannið sendi mik­il­væg og jákvæð skila­boð,“

Í við­tal­inu sem Daily Mirror tók við Eið segir að hann hafi tapað rúmum millj­arði króna á ævinni vegna spilafíknar.

„Fót­bolta­menn finna fyrir yfir­gnæf­andi pressu að standa sig og vera upp á sitt besta öllum stundum. Það getur haft mikil áhrif þegar hlut­irnir ganga ekki sem skyldi. Þá áttu kannski til að leita í annað til að fá adrena­lín eða slíkt. Fyrir suma geta það verið veð­mál, aðrir snúa sér að flösk­unni eða eitt­hvað annað sem á að verka sem skyndi­lausn,“ hélt Eiður áfram.

„Það er aðeins þegar þú áttar þig á því að engin slík skyndi­lausn er til sem þú byrjar að leita þér hjálpar.“

Starfa án leyfis

Umræða um veð­mála­starf­semi á Íslandi hefur auk­ist á und­an­förnum árum og þá sér­stak­lega í ljósi þess að upp hafa sprottið veð­mála­fyr­ir­tæki sem skráð eru erlendis en starfa á land­inu án starfs­leyfis.

„Veð­málafíkn er fyrst og fremst sam­fé­lags­legt vanda­mál, sem a.m.k. íþrótta­hreyf­ingin er með­vituð um, og miðað við þær upp­lýs­ingar sem liggja fyrir þá eru ungir karl­menn stór hluti þess hóps sem stundar veð­mál,“ sagði Eysteinn Pétur Lárusson, fram­kvæmda­stjóri KSÍ, við Mannlíf um málið í febr­úar.

„Það skiptir miklu máli að fyr­ir­tæki sem bjóða upp á veð­mál hafi skýra stefnu um ábyrga spilun og beini fólki ekki í hættu­legan far­veg. Á sama tíma og meiri­hluti þeirra sem veðja hafa stjórn á sinni spilun og nýta hana jafn­vel í félags­legum til­gangi getum við ekki horft fram hjá dekkri hliðum hennar,“ skrif­aði Willum Þór Willumsson, for­seti íþrótta- og Ólymp­íu­sam­bands, Íslands í júlí.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

3
Minning

Helgi Ólafsson er fall­inn frá

Helgi Ólafsson, raf­virkja­meist­ari á Rauf­ar­höfn, lést á Dval­ar­heim­il­inu Hvammi 27. októ­ber, 97 ára að aldri. Morg­un­blaðið greindi frá and­láti hans. Helgi fædd­ist á Rauf­ar­höfn 31. maí 1929 og ólst þar upp. Hann lauk sveins­prófi í raf­virkjun árið 1950 og hlaut meist­ara­rétt­indi fimm árum síðar. Hann starf­aði við raf­virkjun alla starfsæv­ina, meðal ann­ars fyrir Síld­ar­verk­smiðjur rík­is­ins og SR-mjöl, auk þess að...
5
Slúður

Stjórn­ar­hættir Brynju

Einn und­ar­leg­asti atburður í íslensku atvinnu­lífi síð­ustu ár er brott­hvarf Harðar Arn­ar­sonar úr stóli for­stjóra Lands­virkj­unar eftir far­sæl störf í 17 ár. Hörður, sem hafði byggt upp fyr­ir­tækið Marel með mynd­ar­brag þegar hann tók við Lands­virkjun, hætti einu og hálfu ári eftir að Daði Már Krist­ó­fers­son fjár­mála­ráð­herra skipti alfarið út stjórn rík­is­orku­fyr­ir­tæk­is­ins. Stjórn­ar­for­mað­ur­inn Brynja Bald­urs­dóttir er grjót­harður kap­ít­alisti. Hún hefur...

Mest lesið í vikunni

Innlent

Einn bak við lás og slá eftir lík­ams­árás í Árbæ

Heimur

Bauð inter­net­inu í brúð­kaupið og allt fór á annan end­ann

Myndband
Heimur

Dádýr skall á konu og braust inn í þvotta­hús

Innlent

Fluttur á bráða­mót­töku eftir að eldur kom upp í íbúð

Menning

Laxness slær í gegn hjá The Guardian

Sport

Sport

Lakers-goð­sögn mætir á OnlyFans

Lék lengst af með Los Angeles Lakers og varð NBA meistari með liðinu tvö ár í röð
Sport

Neville vill losna undan City þar til örlög félags­ins ráð­ast

Myndband
Sport

Lög­reglan kölluð til vegna þriggja ára fót­bolta­snill­ings

Sport

Ætlar að birta eina brjósta­mynd á dag þar til þjálf­ari Man Utd verður rek­inn

Sport

Gerrard vill að Manchester City verði refsað harka­lega