Anna Kristjánsdóttir
„Ég lokaði af allar tilfinningar og gerðist kall.“
Anna Kristjánsdóttir
Skoðun

Strætó hefur aldrei verið verri

Fólk

Helga­fell á Sel­tjarn­ar­nesi komið á sölu

Innlent

Falsaðar ljós­myndir orðnar algengar í fast­eigna­aug­lýs­ingum

Landið

Nál fannst í hrekkja­vökusúkkulaði á Akureyri

Fólk

Breið­holts­laug, Laug­ar­dalur og Hósiló meðal staða sem fá góð með­mæli

Innlent

Gleymdi kaffi­bolla og rusli og end­aði fyrir kæru­nefnd

Innlent

Vopn komu við sögu þegar ung­lingap­artý fór úr bönd­unum

Heimur

Trúður vakti óhug við grunn­skóla

Innlent

Einn lát­inn og annar á gjör­gæslu eftir hnífstungu­árás í Breið­holti

Fólk

Sjö góðar ástæður til að baka oftar

Sveitarfélög á Austurlandi saka ríkið um svikin loforð

Til að und­ir­strika óánægju sína mættu sveit­ar­stjórn­ar­full­trúar Múla­þings klæddir svörtu á fund.

Sveitarfélög á Austurlandi saka ríkið um svikin loforð
Egils­staðir Múlaþing og Fjarða­byggð sam­ein­ast í nýrri bókun Mynd: Eysteinn Guðni Guðnason/Wikipedia

Bæjarráð Fjarða­byggðar og sveit­ar­stjórn Múla­þings hafa sam­ein­ast um að lýsa yfir miklum von­brigðum með þá áherslu­röðun sem fram kemur í nýjum drögum að sam­göngu­á­ætlun rík­is­ins. Þar þyki óvið­un­andi að engar stórar fram­kvæmdir séu fyr­ir­hug­aðar á svæð­inu á næstu árum og að þar með séu fyrri lof­orð um nýt­ingu tekna af hækkun veiði­gjalda ekki efnd. Þetta kemur fram í frétt Aust­ur­fréttar.

Afstaðan kemur fram í sam­eig­in­legri bókun sem sam­þykkt var í bæj­ar­ráði Fjarða­byggðar í síð­ustu viku og í sveit­ar­stjórn Múla­þings á fundi í dag. Sá fundur átti upp­haf­lega að fara fram í síð­ustu viku en var frestað vegna óvissu um færð yfir Fjarð­ar­heiði. Til að und­ir­strika óánægju sína mættu sveit­ar­stjórn­ar­full­trúar Múla­þings klæddir svörtu.

Sér­stak­lega hafa áform um að færa Fjarð­ar­heið­ar­göng af for­gangs­lista og setja þau á athug­un­ar­stig vakið hörð við­brögð. Þá lýsir Múlaþing einnig óánægju með að fram­kvæmdir við Axarveg, sem þegar er full­hann­aður, verði ekki hafnar fyrr en seint á fyrsta tíma­bili áætl­un­ar­innar og að þeim ljúki ekki fyrr en á því næsta. Í Fjarða­byggð eru jafn­framt gagn­rýn­is­raddir um að ekki sé gert ráð fyrir meiri upp­bygg­ingu á Suð­ur­fjarða­vegi.

Í bók­un­inni er sam­göngu­á­ætl­unin, sem kynnt var fyrir um tveimur vikum, sögð fela í sér „kalda kveðju“ til Aust­ur­lands, þar sem fjórð­ung­ur­inn sé í raun settur til hliðar og „frystur“ í áætl­un­ar­gerð­inni.

Bent er á að frá árinu 2019 hafi Fjarð­ar­heið­ar­göng verið efst á lista jarð­ganga­verk­efna og að þau hafi haldið þeirri stöðu þegar Seyð­is­fjörður sam­ein­að­ist Múla­þingi. Í bók­un­inni er lögð áhersla á að allar breyt­ingar á slíkri áætlun verði að byggj­ast á fag­legum rökum og traustum for­sendum.

Sam­göngu­á­ætl­unin sé lyk­il­verk­færi til að tryggja skýra og fyr­ir­sjá­an­lega upp­bygg­ingu inn­viða og að þróun sveit­ar­fé­laga eigi ekki að ráð­ast af breyti­legum póli­tískum áherslum ráð­herra. Án skýrrar og trú­verð­ugrar for­gangs­röð­unar sé erfitt fyrir sveit­ar­fé­lög og atvinnu­líf að skipu­leggja lang­tíma­upp­bygg­ingu.

Í nið­ur­lagi bók­un­ar­innar segir að það sé með öllu óásætt­an­legt að engar stór­fram­kvæmdir séu á fyrsta tíma­bili áætl­un­ar­innar fyrir Aust­ur­land. Slík nið­ur­staða gangi gegn yfir­lýs­ingum um að hækkun veiði­gjalda myndi skila sér aftur til byggð­anna og skapa svig­rúm til inn­viða­fjár­fest­inga. Þar sé Aust­ur­land næst í röð stórra jarð­ganga­verk­efna og ekki verði við það unað að litið sé fram hjá þeirri stað­reynd.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

3
Minning

Helgi Ólafsson er fall­inn frá

Helgi Ólafsson, raf­virkja­meist­ari á Rauf­ar­höfn, lést á Dval­ar­heim­il­inu Hvammi 27. októ­ber, 97 ára að aldri. Morg­un­blaðið greindi frá and­láti hans. Helgi fædd­ist á Rauf­ar­höfn 31. maí 1929 og ólst þar upp. Hann lauk sveins­prófi í raf­virkjun árið 1950 og hlaut meist­ara­rétt­indi fimm árum síðar. Hann starf­aði við raf­virkjun alla starfsæv­ina, meðal ann­ars fyrir Síld­ar­verk­smiðjur rík­is­ins og SR-mjöl, auk þess að...
5
Slúður

Stjórn­ar­hættir Brynju

Einn und­ar­leg­asti atburður í íslensku atvinnu­lífi síð­ustu ár er brott­hvarf Harðar Arn­ar­sonar úr stóli for­stjóra Lands­virkj­unar eftir far­sæl störf í 17 ár. Hörður, sem hafði byggt upp fyr­ir­tækið Marel með mynd­ar­brag þegar hann tók við Lands­virkjun, hætti einu og hálfu ári eftir að Daði Már Krist­ó­fers­son fjár­mála­ráð­herra skipti alfarið út stjórn rík­is­orku­fyr­ir­tæk­is­ins. Stjórn­ar­for­mað­ur­inn Brynja Bald­urs­dóttir er grjót­harður kap­ít­alisti. Hún hefur...

Mest lesið í vikunni

Innlent

Einn bak við lás og slá eftir lík­ams­árás í Árbæ

Heimur

Bauð inter­net­inu í brúð­kaupið og allt fór á annan end­ann

Myndband
Heimur

Dádýr skall á konu og braust inn í þvotta­hús

Innlent

Fluttur á bráða­mót­töku eftir að eldur kom upp í íbúð

Menning

Laxness slær í gegn hjá The Guardian

Landið

Landið

Límdu yfir hraða­mynda­vél lög­reglu

„Það er svo sannarlega þörf á hraðamælingum“
Landið

Forbes vekur athygli á nýju ferða­manna­gjaldi á Íslandi

Landið

Breskur stór­mið­ill velur fimm stór­kost­leg­ustu fossa Íslands

Landið

Vilja vernda nátt­úruperlu í Skriðdal

Landið

Skortur á leik­skóla­plássum tefur end­ur­komu starfs­fólks HSA

Landið

Björg­un­ar­bún­aður og bætt öryggi til skoð­unar við Stuðla­gil