Kristrún Frostadóttir
„Það verður að virða fullveldi og alþjóðalög“
Kristrún Frostadóttir
Menning

Martröð í Mið­húsa­skógi

Fólk

Hvenær verður daður að fram­hjá­haldi?

Innlent

Hekla inn­kallar til­tekna Audi-, Volkswagen- og Skoda-bíla

Heimur

Verkfall á Kanarí­eyjum getur raskað ferðum til og frá flug­völlum

Heimur

Ísra­elskir ferða­menn gagn­rýndir eftir að leið­sögu­manni var ýtt í sjó­inn

Peningar

Segir hluta­fjár­út­boð Bláa lóns­ins ótíma­bært vegna eldsum­brota

Peningar

Tveir þekktir skyndi­bita­staðir inn­sigl­aðir að beiðni Skatts­ins

Heimur

Katta­eig­endur sér­stak­lega varaðir við hættu­legri fuglaflensu

Innlent

Varað við neyslu á wasabi-hrískexi

Heimur

Kim Kar­dashian neyð­ist til að end­ur­greiða við­skipta­vinum

Þrír handteknir grunaðir um að kveikja í einbýlishúsi

Barn slas­að­ist í flug­eldaslysi

Eftir eril­sama nótt eru sex vistaðir í fanga­geymslu lög­regl­unnar á höf­uð­borg­ar­svæð­inu. Hér má sjá dæmi um verk­efni hennar frá klukkan 17:00 í gær, til 05:00 í morgun.

Til­kynn­ing barst um yfir­staðna lík­ams­árás á bar í mið­borg Reykja­víkur. Var árás­ar­að­il­inn sagður vera fyrir utan bar­inn en þegar lög­reglu bar að garði voru báðir aðilar máls­ins, árás­ar­að­il­inn og árás­ar­þol­inn, hvergi sjá­an­legir og var því ekk­ert aðhafst frekar.

Tveir leigu­bíl­stjórar ósk­uðu eftir aðstöð lög­regl­unnar vegna hvers ann­ars. Annar sak­aði hinn um lík­ams­árás en hinn sak­aði þann um að hafa ekið svo mikið hætta var af. Var málið afgreitt á vett­vangi þar sem skýrsla­taka fór fram.

Þá hand­tók lög­reglan frá sömu lög­reglu­stöð konu eftir að hún hafði ekið á aðra bif­reið og yfir­gefið vett­vang­inn án þess að gera ráð­staf­anir. Er hún einnig grunuð um að hafa ekið bílnum undir áhrifum áfengis. Var hún vistuð í fanga­klefa í þágu rann­sóknar máls­ins.

Einnig barst lög­regl­unni ósk um aðstoð fyrir aðila sem sagð­ist hafa orðið fyrir lík­ams­árás af hendi dyra­varða en málið er í rann­sókn.

Í dag­bók lög­regl­unnar kemur aukreitis fram að karl­maður hafi verið hand­tek­inn grun­aður um akstur undir áhrifum ávana- og fíkni­efna. Einnig má hann búast við sekt þar sem of margir far­þegar voru í bif­reið­inni. Var hann laus eftir sýna­töku.

Lög­reglu­stöð­inni á Hverf­is­götu barst til­kynn­ing um eld í fjöl­býl­is­húsi. Þegar lög­regla kom á vett­vang var mik­ill reykur og eldur í íbúð­inni. Slökkvi­liðið ann­að­ist slökkvi­starf en lög­reglan tók svo við vett­vang­inum eftir að slökkt hafði verið í eld­inum. Málið er í rann­sókn.

Þá barst lög­regl­unni til­kynn­ing um ofurölv­aða konu í miðbæ Reykja­víkur. Var konan sjá­an­lega ölvuð þegar lög­reglu bar að garði en var við­ræðu­hæf. Afþakk­aði hún alla aðstoð lög­reglu og hélt sína leið.

Lög­reglan sem ann­ast útköll í Hafn­ar­firði, Garðabæ og Álfta­nesi stöðv­aði fjóra öku­menn, þrjá þeirra vegna gruns um akstur undir áhrifum áfengis og einn þeirra vegna gruns um akstur sviptur öku­rétt­indum. Einn þeirra drukknu hafði einnig ekið yfir á rauðu ljósi.

Kópavogs- og Breið­holtslög­regl­unni barst til­kynn­ing um eld í ein­býl­is­húsi. Annaðist slökkvi­liðið slökkvi­starf en lög­reglan tók síðan við vett­vang­inum eftir að því lauk. Voru þrír hand­teknir á vett­vangi grun­aðir um íkveikju og vistaðir í fanga­klefa í þágu rann­sóknar máls­ins.

Lögeglan á Vín­lands­leið stöðv­aði öku­tæki við almennt umferð­ar­eft­ir­lit. Er öku­mað­ur­inn grun­aður um að aka undir áhrifum áfengis, undir áhrifum ávana- og fíknefna auk þess að aka sviptur öku­rétt­indum. Var hann laus að lok­inni sýna­töku.

Sömu lög­reglu barst til­kynn­ing vegna flug­eldaslyss. Þegar lög­reglan mætti á svæðið mátti sjá að hinn slas­aði, sem var barn undir lög­aldri, var sár­þjáður og mátti sjá áverka á hönd barns­ins. Var barnið fært í sjúkra­bif­reið sem flutti hann á bráða­mót­töku til frek­ari skoð­unar.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

3
Minning

Lárus Heið­ars­son lát­inn

Lárus Heið­ars­son, skóg­ar­bóndi og fyrr­ver­andi odd­viti Fljóts­dals­hrepps, var bor­inn til grafar á föstu­dag. Hann lést 28. októ­ber síð­ast­lið­inn eftir skamma en erf­iða bar­áttu við bráða­hvít­blæði. Aust­ur­frétt greindi frá and­lát­inu. Lárus gegndi fjöl­mörgum trún­að­ar­störfum fyrir Fljóts­dals­hrepp og sat í sveit­ar­stjórn frá árinu 2010, fyrst sem vara­odd­viti og síðar odd­viti. Hann kom einnig að mótun Svæð­is­skipu­lags Aust­ur­lands og var í stjórn Sambands...
6
Slúður

Leyni­fé­lag Guðlaugs

Mis­mun­andi er hve sam­visku­samir alþing­is­menn eru við að skrá hags­muni sína eins og vera ber. Morg­un­blaðið er á eftir Kristrúnu Frosta­dóttur for­sæt­is­ráð­herra vegna hluta­fé­lags­ins Munn­bit­ans þar sem eig­in­maður hennar átti 10 pró­senta hlut. Félagið var í hags­muna­skrá Kristrúnar þar til það fór í þrot. Mogginn hefur aftur á móti ekk­ert gert með þá stað­reynd að Ágústa Johnson, eig­in­kona Guðlaugs Þórs...

Mest lesið í vikunni

Heimur

Sendi­herra Rúss­lands í Banda­ríkj­unum lést skyndi­lega

Alexander Darchiev hafði aðeins gegnt embættinu frá því snemma árs 2025.
Heimur

HPV-bólu­setn­ingar taldar hafa komið í veg fyrir um 200 dauðs­föll í Englandi

Heimur

Rétt­ar­höld hafin vegna ban­vænnar hnífa­árásar á sextán ára stúlku

Landið

Andri Snær rifjar upp fórn­irnar sem fylgdu Kára­hnjúka­virkjun

Heimur

Leik­ar­inn Stacy Keach lát­inn 85 ára að aldri

Innlent

Innlent

Þarf að greiða 834 þús­und eftir tap í máli gegn gisti­stað

Heitavatnsleysið í kjölfar eldgossins í febrúar 2024 var að mati dómsins óviðráðanlegt atvik sem gat leyst gististaðinn undan ábyrgð.
Innlent

Mat­vöru­verð hækkar þrátt fyrir boð­aðar verð­lækk­anir

Innlent

Inn­köllun vegna eld­hættu í þremur teg­undum Volkswagen-raf­bíla

Innlent

Öskurapi í Vest­ur­bænum fannst ekki þrátt fyrir leit

Innlent

Krefjast opin­berrar afsök­un­ar­beiðni frá Morg­un­blað­inu

Innlent

Sonurinn áfram í gæslu­varð­haldi vegna mann­dráps í Breið­holti