Anna Kristjánsdóttir
„Ég lokaði af allar tilfinningar og gerðist kall.“
Anna Kristjánsdóttir
Skoðun

Strætó hefur aldrei verið verri

Fólk

Helga­fell á Sel­tjarn­ar­nesi komið á sölu

Innlent

Falsaðar ljós­myndir orðnar algengar í fast­eigna­aug­lýs­ingum

Innlent

Hörður hót­aði lög­reglu­manni nauðgun og spark­aði í annan

Landið

Nál fannst í hrekkja­vökusúkkulaði á Akureyri

Innlent

Gleymdi kaffi­bolla og rusli og end­aði fyrir kæru­nefnd

Fólk

Breið­holts­laug, Laug­ar­dalur og Hósiló meðal staða sem fá góð með­mæli

Innlent

Vopn komu við sögu þegar ung­lingap­artý fór úr bönd­unum

Heimur

Trúður vakti óhug við grunn­skóla

Innlent

Einn lát­inn og annar á gjör­gæslu eftir hnífstungu­árás í Breið­holti

Þorgerður Katrín sökuð um hræsni í minningarfærslu um helförina

„Orðin, aldrei aftur, á greini­lega ekki við um alla!“

Þorgerður Katrín sökuð um hræsni í minningarfærslu um helförina
Þor­gerður Katrín Gunn­ars­dóttir Utan­rík­is­ráð­herra við minn­is­varða um fórn­ar­lömb helfar­ar­innar í Berlín Mynd: Facebook

Facebook-færsla Þor­gerður Katrín Gunn­ars­dóttir, utan­rík­is­ráð­herra, þar sem hún minnt­ist fórn­ar­lamba helfar­ar­innar, vakti hörð og til­finn­inga­þrungin við­brögð á sam­fé­lags­miðlum. Fjöldi not­enda sak­aði ráð­herr­ann um tví­skinn­ung og benti á að orð hennar um „aldrei aftur“ stang­ist á við afstöðu íslenskra stjórn­valda gagn­vart stríð­inu á Gaza.

Í færslu sinni skrif­aði Þor­gerður Katrín meðal ann­ars að Helförin væri áminn­ing um að „orð skipta máli“, að for­dómar og sundr­ung vaxi þegar ótti og afskipta­leysi fái rými, og að „sagan megi aldrei end­ur­taka sig“. Hún hvatti jafn­framt til sam­stöðu gegn hatri „í dag og alla daga“.

Hér er færsla Þor­gerðar Katrínar í heild sinni:

„Í dag minn­umst við þeirra sex millj­óna gyð­inga sem voru myrtir vegna hat­urs og ofstækis í hel­för­inni.

Þetta er dagur til að staldra við og minna okkur á að orð skipta máli. Að for­dómar og sundr­ung spretta ekki upp úr engu, heldur vaxa þegar ótti og afskipta­leysi fá rými.

Frelsi og lýð­ræði krefj­ast ábyrgðar. Og byggj­ast á sam­stöðu, virð­ingu og því að við stöndum saman gegn hatri. Í dag og alla daga.“

Sagan má aldrei end­ur­taka sig. Og það er á ábyrgð okkar allra að tryggja að svo verði ekki.

Margir sem brugð­ust við töldu hins vegar að þessi orð hljóm­uðu hol þegar þau væru sett í sam­hengi við stöðu Palest­ínu­manna. Rebekka Hrafn­tinna skrif­aði:

„Svo mik­ill tví­skinn­ungur í gangi! Eftir 80 ár verður nákvæm­lega svona minn­ing­ar­at­höfn fyrir palest­ínu­menn og hryll­ing­inn á Gaza þar sem ALLT er/var lagt í rúst! WWII var ekki í beinni útsend­ingu fyrir allra augum en Þjóð­ar­morðið á Gaza og gjör­eyð­ingin, þjóð­ern­is­hreinsun og land­rán í Palest­ínu er það! Helförin var hryll­ingur, ekki mis­skilja. Orðin, aldrei aftur, á greini­lega ekki við um alla! Alveg eins og öll lög sem til eru.“

Pétur Eggerz var einnig harð­orður og sagði athuga­semda­kerfið sýna að „allir sjái í gegnum þennan hvít­þvott“. Hann vís­aði til tengsla íslenskra stjórn­valda við ísra­elsk fyr­ir­tæki og kall­aði Þorgerði Katrínu „nöðru“.

„Jahá… Eins og þetta kommenta­kerfi sýnir greini­lega þá sjá allir í gegnum þennan hvít­þvott. Hvað eru Rapyd - Ísra­elskir þáttak­endur í yfir­stand­andi þjóð­ar­morði búnir að þéna marga millj­arða á rík­is­samn­ingum sem þinn flokkur skrif­aði undir? Aumk­un­ar­verð auð­stéttar naðra.“

Guddi Magg segir það „ótrú­legt“ að lesa orð ráð­herr­ans „í miðju þjóð­ar­morði sem hefur verið að eiga sér stað síð­ustu ára­tugi“ og sak­aði stjórn­völd um að hafa for­dæmt en ekki gripið til raun­veru­legra aðgerða. Hann hélt því einnig fram að stjórn­mála­flokkar hefðu notað mál­efnið í kosn­inga­bar­áttu.

„Það er ótru­legt að geta sagt þessi orð í miðju þjóð­ar­morði sem hefur verið að eiga sér stað sið­ustu ára­tugi en síð­asti naglinn á kist­una núna síð­ustu 2.5 ár, og heldur enn áfram fyrir framan nefið á okkur öllum. Þú ját­aðir því fyrir kostn­ingar Þor­gerður að það væri verið að fremja þjóð­ar­morð, þið ætl­uðuð í aðgerðir eins og að styðja við kæru suður afriku. ENGAR aðgerðir voru gerðar, ein­ungis for­dæm­ingar til að reyna hvít­þvo ísland af aðgerð­ar­leysi sem gerir okkur með­sek. Það að Viðreisn og Sam­fylk­ingin hafi notað þjóð­ar­morð til atkvæða­veiða er eitt­hvað annað stig af sið­leysi. Megi æðri mættir fyr­ir­gefa Íslensku þjóð­inni bæði vegna Palest­ínu og að á sínum tíma fyrir að hafa neitað þeim Gyðingum sem hingað reyndu að koma sem flótta­menn í seinni heim­styrj­öld en fengu ekki.“

Haraldur nokkur gekk enn lengra og spurði hvort Þor­gerður Katrín hefði „fengið borgað fyrir þessa slepju hjá zíónista-lobbý­inu“, og sagði hana taka þátt í að „normalísera“ það að sagan sé að end­ur­taka sig aftur.

„Fékkstu borgað fyrir þessa slepju hjá zíónasista-lobbý­inu Þor­gerður? Það er ekk­ert vanda­mál hér varð­andi gyð­inga­hatur eða Helfarar-afneitun, hins­vegar sér allt hugs­andi fólk að sagan ER að end­ur­taka sig, og þú KÝST að taka þátt í að normalisera það með mön­trum upp úr hand­ritum zionasista áróð­ursmask­ín­unnar...það er skömm að þér.“

Oddný Björg skrif­aði að henni „fall­ist hendur“ við að lesa færsl­una og sagði við ráð­herr­ann: „Þín verður minnst sem einum af leið­togum heims­ins sem stóð hjá… og í mínum augum tók þátt í þjóð­ar­morði.“ Hún lagði þó áherslu á að senda gyð­ingum hlýju á minn­ing­ar­deg­inum.

„Úff, lestu það sem þú skrif­aðir!!! Mér fall­ast bara hendur. Algjör­lega galið að lesa þessi orð frá þér þegar ég sit með þolendum þjóð­ar­morðs alla daga og hef gert í tvö ár. Þín verður minnst sem einum af leið­togum heims­ins sem stóð hjá, hunds­aði, gerðir lítið úr og í mínum augum tókst þátt í þjóð­ar­morði. Til allra gyð­inga sendi hlýju, á þessum deg­inum sem öðrum. Til síon­ista sendi ég minna en ekk­ert!!!“

Hanna tók í sama streng og spurði hvort ráð­herr­ann hefði „stein­gleymt þjóð­ar­morð­inu sem verið er að fremja í Palest­ínu í dag og síð­ustu rúm­lega 800 daga“, og sagði að Ísland hefði ekki sýnt þá ábyrgð sem þyrfti, til dæmis með því að styðja mál Suður-Afríku fyrir Alþjóða­dóm­stólnum.

„Getur verið að þú hafir stein­gleymt þjóð­ar­morð­inu sem verið er að fremja í Palest­ínu í dag og síð­ustu rúm­lega 800 daga? Allt sem þú skrifar á við þar: drepið af ofstæki, for­dómar og sundr­ung hafa vaxið, afskipta­leysi hefur fengið rými og svo fram­vegis. Sagan er að end­ur­taka sig og Ísland hefur alls ekki sýnt þá ábyrgð sem skiptir máli, t.d. að styðja kæru suður afr­íku fyrir alþjóða dóm­stólnum. Það eru svo margir sem gætu gert miklu betur til að stöðva þjóð­ar­morð, þar á meðal íslensk stjórn­völd. Sagan mun ekki eld­ast vel með okkur því miður.“

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

3
Minning

Helgi Ólafsson er fall­inn frá

Helgi Ólafsson, raf­virkja­meist­ari á Rauf­ar­höfn, lést á Dval­ar­heim­il­inu Hvammi 27. októ­ber, 97 ára að aldri. Morg­un­blaðið greindi frá and­láti hans. Helgi fædd­ist á Rauf­ar­höfn 31. maí 1929 og ólst þar upp. Hann lauk sveins­prófi í raf­virkjun árið 1950 og hlaut meist­ara­rétt­indi fimm árum síðar. Hann starf­aði við raf­virkjun alla starfsæv­ina, meðal ann­ars fyrir Síld­ar­verk­smiðjur rík­is­ins og SR-mjöl, auk þess að...
5
Slúður

Stjórn­ar­hættir Brynju

Einn und­ar­leg­asti atburður í íslensku atvinnu­lífi síð­ustu ár er brott­hvarf Harðar Arn­ar­sonar úr stóli for­stjóra Lands­virkj­unar eftir far­sæl störf í 17 ár. Hörður, sem hafði byggt upp fyr­ir­tækið Marel með mynd­ar­brag þegar hann tók við Lands­virkjun, hætti einu og hálfu ári eftir að Daði Már Krist­ó­fers­son fjár­mála­ráð­herra skipti alfarið út stjórn rík­is­orku­fyr­ir­tæk­is­ins. Stjórn­ar­for­mað­ur­inn Brynja Bald­urs­dóttir er grjót­harður kap­ít­alisti. Hún hefur...

Mest lesið í vikunni

Innlent

Neyt­endur beðnir um að farga jógúrt frá Örnu

Plastbiti fannst í 200 gramma dós af jógúrt
Innlent

Tíu nýir leitar- og björg­un­ar­kaf­arar útskrif­aðir

Innlent

Rað­kúk­ari Ragnars snéri aftur á Hrekkja­vöku

Innlent

Fertugur maður ákærður fyrir 267 kanna­bis­plöntur í bíl

Innlent

Brynjar ók á bíl og far­þegi þurfti í umfangs­mikla aðgerð

Innlent

Innlent

Einn bak við lás og slá eftir lík­ams­árás í Árbæ

Innlent

Íslenska haustið sýnir klærnar í dag

Innlent

Fluttur á bráða­mót­töku eftir að eldur kom upp í íbúð

Innlent

Rétt­ar­höld yfir Írisi „elti­hrelli“ hefj­ast á mánu­dag

Innlent

Hrekkja­vakan tekur yfir göt­urnar og lög­reglan varar öku­menn við

Innlent

Leigusal­inn kenndi utan­lands­ferð um veggjalús­ina