Anna Kristjánsdóttir
„Ég lokaði af allar tilfinningar og gerðist kall.“
Anna Kristjánsdóttir
Skoðun

Strætó hefur aldrei verið verri

Fólk

Helga­fell á Sel­tjarn­ar­nesi komið á sölu

Innlent

Falsaðar ljós­myndir orðnar algengar í fast­eigna­aug­lýs­ingum

Innlent

Hörður hót­aði lög­reglu­manni nauðgun og spark­aði í annan

Landið

Nál fannst í hrekkja­vökusúkkulaði á Akureyri

Innlent

Gleymdi kaffi­bolla og rusli og end­aði fyrir kæru­nefnd

Fólk

Breið­holts­laug, Laug­ar­dalur og Hósiló meðal staða sem fá góð með­mæli

Innlent

Vopn komu við sögu þegar ung­lingap­artý fór úr bönd­unum

Heimur

Trúður vakti óhug við grunn­skóla

Innlent

Einn lát­inn og annar á gjör­gæslu eftir hnífstungu­árás í Breið­holti

Krefst stuðnings Íslands við Francescu Albanese

„Í stað þess að fylgja lögum reyna ríki að þagga niður í henni.“

Krefst stuðnings Íslands við Francescu Albanese
Francesca Albanese Albanese hefur mátt þola umfangs­miklar árásir und­an­farið Mynd: RODGER BOSCH / AFP

Hjálmtýr Heiðdal, for­maður félags­ins Ísland–Palest­ína, kallar eftir því að íslensk stjórn­völd lýsi yfir skýrum stuðn­ingi við Francescu Albanese, sér­staks skýrslu­gjafa Sam­ein­uðu þjóð­anna um mann­rétt­inda­mál á hernumdum palest­ínskum svæðum. Í Facebook-færslu sem hann birti nýverið segir Hjálmtýr að Albanese sæti umfangs­miklum árásum vegna starfa sinna og gagn­rýni á aðgerðir Ísraels. Hann lýsir Albanese með sterkum orðum og segir: „ÞETTA ER DROTTNINGIN, KONAN SEM SEGIR SANNLEIKANN!“ Að hans sögn hafi hún orðið „skot­mark fjöl­margra ólög­mætra til­rauna til að grafa undan trú­verð­ug­leika hennar þegar hún skýrir frá brotum Ísraels á alþjóða­lögum án þess að láta undan póli­tískum þrýst­ingi ýmissa ríkja“.

Hjálmtýr rifjar upp að í fyrstu skýrslu sinni hafi Albanese lagt til afger­andi aðgerðir af hálfu ríkja. „Í fyrstu skýrslu sinni mælti hún með því að ríki þró­uðu áætlun til að binda enda á her­námið í Palest­ínu og aðskiln­að­ar­stefnu Ísraels,“ skrifar hann. Þá segir hann að hún hafi einnig upp­lýst Mann­réttinda­ráð Sam­ein­uðu þjóð­anna um alvar­leika ástands­ins á Gaza. „…og hún hefur skýrt frá því í Mann­réttinda­ráði Sam­ein­uðu þjóð­anna hvernig aðgerðir Ísraels á Gaza jafn­gilda þjóð­ar­morði sam­kvæmt alþjóða­lögum.“

Samkvæmt Hjálmtý segir hann að í stað þess að farið sé eftir alþjóða­lögum sé reynt að þagga niður í Albanese. „Í stað þess að fylgja lögum reyna ríki að þagga niður í henni.“ Hann full­yrðir að álagið á hana fari vax­andi. „Nú er sótt að henni úr öllum áttum. Hún getur ekki ferð­ast hindr­un­ar­laust, það er verið að svipta hana fjár­hags­legu frelsi að und­ir­lægi Trump­stjórn­ar­innar.“

Hjálmtýr nefnir jafn­framt til­tekin ríki sem hann segir beita þrýst­ingi. „Stjórn­völd í Frakk­landi, Bret­landi og Þýsklandi krefj­ast þess að hún verði rekin úr starfi hjá Sam­ein­uðu þjóð­unum.“ Þrátt fyrir það segir hann að mik­il­vægi starfs hennar hafi hlotið alþjóð­lega við­ur­kenn­ingu

„Alþjóða­dóm­stóll­inn hefur lýst yfir mik­il­vægi starfs Francescu og snú­ist gegn rógs­her­ferð­inni sem ýmis stjórn­völd heyja.“

Í lok færsl­unnar beinir Hjálmtýr skýru ákalli til íslenskra stjórn­valda. „Íslensk stjórn­völd eiga að lýsa yfir stuðn­ingi við Francescu Albanese – það er hið eina rétta!“

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

3
Minning

Helgi Ólafsson er fall­inn frá

Helgi Ólafsson, raf­virkja­meist­ari á Rauf­ar­höfn, lést á Dval­ar­heim­il­inu Hvammi 27. októ­ber, 97 ára að aldri. Morg­un­blaðið greindi frá and­láti hans. Helgi fædd­ist á Rauf­ar­höfn 31. maí 1929 og ólst þar upp. Hann lauk sveins­prófi í raf­virkjun árið 1950 og hlaut meist­ara­rétt­indi fimm árum síðar. Hann starf­aði við raf­virkjun alla starfsæv­ina, meðal ann­ars fyrir Síld­ar­verk­smiðjur rík­is­ins og SR-mjöl, auk þess að...
5
Slúður

Stjórn­ar­hættir Brynju

Einn und­ar­leg­asti atburður í íslensku atvinnu­lífi síð­ustu ár er brott­hvarf Harðar Arn­ar­sonar úr stóli for­stjóra Lands­virkj­unar eftir far­sæl störf í 17 ár. Hörður, sem hafði byggt upp fyr­ir­tækið Marel með mynd­ar­brag þegar hann tók við Lands­virkjun, hætti einu og hálfu ári eftir að Daði Már Krist­ó­fers­son fjár­mála­ráð­herra skipti alfarið út stjórn rík­is­orku­fyr­ir­tæk­is­ins. Stjórn­ar­for­mað­ur­inn Brynja Bald­urs­dóttir er grjót­harður kap­ít­alisti. Hún hefur...

Mest lesið í vikunni

Innlent

Tíu nýir leitar- og björg­un­ar­kaf­arar útskrif­aðir

Að lokinni fimm vikna þjálfun hafa nemendurnir réttindi til að kafa niður á 30 metra dýpi
Innlent

Rað­kúk­ari Ragnars snéri aftur á Hrekkja­vöku

Innlent

Fertugur maður ákærður fyrir 267 kanna­bis­plöntur í bíl

Innlent

Brynjar ók á bíl og far­þegi þurfti í umfangs­mikla aðgerð

Peningar

Samkaup semja um kaup á Fjarð­ar­kaupum

Innlent

Innlent

Einn bak við lás og slá eftir lík­ams­árás í Árbæ

Innlent

Íslenska haustið sýnir klærnar í dag

Innlent

Fluttur á bráða­mót­töku eftir að eldur kom upp í íbúð

Innlent

Rétt­ar­höld yfir Írisi „elti­hrelli“ hefj­ast á mánu­dag

Innlent

Hrekkja­vakan tekur yfir göt­urnar og lög­reglan varar öku­menn við

Innlent

Leigusal­inn kenndi utan­lands­ferð um veggjalús­ina