Anna Kristjánsdóttir
„Ég lokaði af allar tilfinningar og gerðist kall.“
Anna Kristjánsdóttir
Innlent

Neyt­endur beðnir um að farga jógúrt frá Örnu

Innlent

Hörður hót­aði lög­reglu­manni nauðgun og spark­aði í annan

Skoðun

Strætó hefur aldrei verið verri

Innlent

Rað­kúk­ari Ragnars snéri aftur á Hrekkja­vöku

Innlent

Falsaðar ljós­myndir orðnar algengar í fast­eigna­aug­lýs­ingum

Fólk

„Með­höndla full­orðið fólk sem lifir enn eins og það séu börn“

Fólk

Lúxu­sein­býli á Arn­ar­nes­inu komið á sölu fyrir 340 millj­ónir

Innlent

Jódís spyr hvar mót­mæl­end­urnir séu nú

Innlent

Erlendur maður grip­inn við skjala­fölsun við Hvera­gerði

Landið

Nál fannst í hrekkja­vökusúkkulaði á Akureyri

Ráðgátan um eitt dularfyllsta flugslys Íslandssögunnar

Kafari fann flak Glitfaxa

Ráðgátan um eitt dularfyllsta flugslys Íslandssögunnar

Í febr­úar 2023 rifj­aði Mannlíf upp eitt dul­ar­fyllsta flug­slys Íslands­sög­unnar, Glit­faxaslysið árið 1951, þar sem 20 manns lét lífið en flug­vélin fannst aldrei. Um var að ræða svo­kall­aðan Bak­sýn­is­spegil þar sem gömul frétta­mál voru rifjuð upp. Ekki óraði blaða­manni Mannlífs fyrir því sem gerð­ist í kjöl­far Bak­sýn­ins­speg­ils­ins en glæ­nýjar upp­lýs­ingar tóku að ber­ast Mannlífi varð­andi hið dul­ar­fulla flug­slys.

Hér fyrir neðan má sjá frétta­skýr­ingu um slysið og hinar nýju upp­lýs­ingar sem litu dags­ins ljós í kjöl­far Bak­sýn­is­speg­ils­ins en hún birt­ist í tölu­blaði Mannlífs árið 2023 en seinni hluti frétta­skýr­ing­ar­innar birt­ist á morgun. Frétta­skýr­ing­arnar birt­ast óbreyttar frá 2023.

Hið dularfulla flugslys

Kafari sem Mannlíf ræddi við fann flak Glitfaxa fyrir þó nokkrum árum. Vill hann alls ekki að það verði sótt af botni Faxaflóa enda um vota gröf að ræða. Um er að ræða upp­lýs­ingar sem aldrei hafa áður litið dags­ins ljós.

Þann 31. jan­úar 1951 lagði Glitfaxi, Dakota-vél Flug­fé­lags Íslands, af stað í áætl­un­ar­flug frá Vest­manna­eyjum til Reykja­víkur. Um borð var þriggja manna áhöfn og sautján far­þegar. Veðrið var vafa­samt og hríð­ar­bylur. Ekki hafði verið flogið til eða frá Eyjum í þrjá daga vegna veð­urs. Opin­ber­lega segir að rétt fyrir klukkan fimm hafi Glitfaxi verið staddur yfir stefnu­vita Reykja­vík­ur­flug­vallar á Álfta­nesi. Flug­stjór­anum, Ólafi Jóhanns­syni, hafi verið gefin heim­ild til að lækka flugið og stefna í átt að flug­braut­inni í sjón­flugi. Þá hafi flug­stjór­inn flogið vél­inni niður en þá hafi flug­brautin hvergi verið sjá­an­leg. Því hafi Ólafur stýrt vél­inni aftur upp að ráði flug­turns­ins og flogið út á Faxaflóa. Hafi honum þá verið til­kynnt af flug­turn­inum að nú væri veðrið orðið skárra og honum ráð­lagt að reyna annað aðflug. Því hafi Ólafur lækkað flugið og sett flug­vél­ina í stefnu, en skyndi­lega rofn­aði allt sam­band við vél­ina. Glitfaxi hvarf í sæinn.

Um er að ræða eitt dul­ar­fyllsta flug­slys Íslands­sög­unnar en flak flug­vél­ar­innar hefur aldrei fund­ist. Að minnsta kosti ekki opin­ber­lega.

Minntist afa síns

Sigfús Gutt­orms­son, frá Krossi í Fella­sveit fyrir austan, var einn 17 far­þega sem fór­ust í flug­slys­inu árið 1951. Son­ar­sonur hans og alnafni skrif­aði færslu á Facebook til að minn­ast afa síns, en í færsl­unni segir hann frá ástæð­unni fyrir ferða­lagi afa síns til Vest­manna­eyja.

„Í jan­úar 1951 fór afi á Krossi, Sigfús Gutt­orms­son, til Vest­manna­eyja. Hann hafði kennt sér meins og fór að hitta Einar bróður sinn sem var lengi læknir í Eyjum til að ráð­færa sig við hann. Reyndar bjó Guð­laugur bróðir þeirra líka í Vest­manna­eyjum.

Mið­viku­dag­inn 31. jan­úar vildi afi fara með flugi frá Eyjum til Reykja­víkur. Hann vildi fara að koma sér áleiðis heim þar sem amma, Sólrún Eiríks­dóttir, var ein heima á Krossi með sjö af börnum þeirra. Oddur, Guðný Sólveig, Gutt­ormur, Sveinn Eiríkur, Baldur, Jón og Oddbjörg voru heima. Páll elsti son­ur­inn var þennan vetur í skóla á Eiðum. Þórey ólst upp á Reyð­ar­firði. Níu börn afa og ömmu komust til full­orð­ins­ára.

Hjónin á KrossiSólrún Eiríks­dóttir og Sigfús Gutt­orms­son

Veður var ekki sem best og það mok­aði niður snjó í logni í Vest­manna­eyjum. Að afi skyldi endi­lega vilja fara með flugi þennan dag í þessu veðri lagð­ist illa í Margréti konu Einars, bróður afa. Hún reyndi hvað hún gat að telja afa hug­hvarf og bað hann að um að fresta för sinni til morg­uns. Afi hélt sínu striki með þá ætlun sína að kom­ast sem fyrst heim til fjöl­skyldu sinnar sem beið hans.

Seinni part­inn tók flug­vélin Glitfaxi á loft frá flug­vell­inum í Vest­manna­eyjum. Áfanga­staður var Reykja­vík­ur­flug­völlur. Flug­vélin kom til aðflugs en varð frá að hverfa vegna þess að dimmt él gekk yfir borg­ina. Flug­menn­irnir fengu skila­boð frá flug­turni um að fljúga hring og bíða þess að birti til. Í þessu flugi lenti Glitfaxi í haf­inu og fórst. Önnur flug­vél fór, á svip­uðum tíma þetta síð­degi, sömu flug­leið frá Eyjum og til Reykja­víkur. Hún lenti heilu og höldnu í Reykja­vík.

Margar spurn­ingar og kenn­ingar vökn­uðu í kjöl­farið á slys­inu og hafa lifað með fjöl­skyldum allra þeirra sem fór­ust. Svör hafa ekki legið á lausu. Mörgum sem tengj­ast harm­leiknum hefur fund­ist að hægt væri að varpa ljósi á eitt og annað. Opin­ber­lega er stað­setn­ing flaks Glitfaxa óþekkt. Með Glitfaxa fór­ust 20 manns.

Frá­sögnin hér að ofan kemur til mín frá pabba, systk­inum hans, tveimur börnum Einars læknis og fleirum. Þetta er okkar saga. Fjöl­skyldur allra hinna sem fór­ust eiga sér sínar sögur.

Í dag eru 72 ár liðin frá því að afi fórst. Í kvöld logar á kerti á ferða­koff­orti afa hér í stof­unni.

Hvíl í friði!“

Vitni stígur fram

Nikulás Sveins­son var staddur í flug­turni Kefla­vík­ur­flug­vallar er Dakota-flug­vélin Glitfaxi fórst 31. jan­úar árið 1951. Hann man orð­rétt hvað fór fram milli flug­um­ferð­ar­stjórnar og flug­stjóra vél­ar­innar.

„Ég er búinn að lúra á þessu alla tíð frá því að þetta skeði, þetta hefur legið á mér eins og mara“ sagði Nikulás Sveins­son, 94 ára í sam­tali við Mannlíf en hann vann við raf­ör­ygg­is­mál á Kefla­vík­ur­flug­velli. „Ég hef ekki viljað hafa hátt um þetta vegna aðstand­enda og ég var bund­inn þagn­areið á þessum vinnu­stað mínum,“ sagði Nikulás en hann var staddur í flug­turn­inum í Keflavík en hann var að end­ur­nýja raf­lagnir í turn­inum þennan örlaga­ríka dag árið 1951.

„Ég man orða­skipti aðflugs­stjórnar, flug­um­ferð­ar­stjóra og flug­manns vél­ar­innar alveg orð­rétt. Þetta situr svo í mér, þetta er búið að pirra mig alla mína tíð,“ sagði Nikulás og bætti við að hann hefði lengi spáð í að segja frá þessu en ekki viljað það því þá myndu kannski ein­hverjir vilja „pumpa upp úr“ honum frek­ari upp­lýs­ingar sem hann hefði ekki.

Orðaskiptin

„Það var þannig að það var vél að koma frá Banda­ríkj­unum, Dakota-vél en hún kom inn á radar eða það sem kallað var GCA sem stendur fyrir Ground Control Approach. Þegar hún var lent segir ungur maður í rad­ar­tæk­inu frá aðflugs­stjórn­inni í Reykja­vík: „Heyrðu, ég sé hérna flug­vél suð-austan við völl­inn, er hún ekki næst að koma inn á rad­arnum, því það er alveg ólend­andi í Reykja­vík?“.“

Flug­vélin sem hafði komið stuttu áður frá Banda­ríkj­unum hafði þá fengið aðstoð við að lenda í gegnum leið­bein­ingar frá rad­arnum á Kefla­vík­ur­flug­velli og ungi mað­ur­inn frá aðflugs­stjórn­inni á Reykja­vík­ur­flug­velli var að spyrja flug­um­ferð­ar­stjór­ann á Kefla­vík­ur­flug­velli hvort hann gæti ekki leið­beint Glitfaxa við að lenda á Kefla­vík­ur­flug­velli.
Sam­skiptin héldu áfram.

„Þá segir flug­um­ferð­ar­stjór­inn í Keflavík, sem var Banda­ríkja­maður, „Stand by“, sem þýðir bíddu. Hann kallar í flug­mann­inn og segir honum að rad­ar­inn sé til­bú­inn til að aðstoða hann við að koma inn í Keflavík því það sé ólend­andi í Reykja­vík og spyr hvort hann vilji ekki vera næstur í röð­inni að lenda með hjálp rad­ars­ins. Eftir sirka 10-15 sek­úndur kom svar: „Ætla að lenda í Reykja­vík“.

Þá segir strák­ur­inn í GCA-tæk­inu „Hann getur alls ekki lent í Reykja­vík, viltu ekki spyrja hann aftur hvort hann vilji ómögu­lega nota sér aðflugið. „Stand by“ segir flug­um­ferð­ar­stjór­inn þá. Hann kallar aftur í flug­vél­ina og segir honum það að það sé ómögu­legt að lenda í Reykja­vík og spyr hvort hann vilji ekki nota sér það að koma inn með aðstoð aðflugs­ins í Keflavík.“ Nikulás segir að þá hafi liðið um hálf mín­úta en svo hafi svarið komið frá flug­mann­inum: „Ætla að lenda í Reykja­vík.“

Sagði Nikulás að ungi mað­ur­inn í GCA-tæk­inu, sem hafi verið afar góður í sínu fagi hafi þá sagt: „Jesus Christ“. Nikulás sagði að strák­ur­inn hefði beðið þann banda­ríska að bjóða flug­manni Glitfaxa í þriðja skiptið að lenda frekar á Kefla­vík­ur­flug­velli. „Stand by“ segir flug­um­ferð­ar­stjór­inn og kallar enn einu sinni í flug­vél­ina og svarið kemur bara frekar fljótt; „Ætla að lenda í Reykja­vík“. Strák­ur­inn í GCA-tæk­inu varð alveg miður sín, hann var gráti nær. Hann var bara skjálf­radd­aður. Hann ætl­aði ekki að trúa sínum eigin eyrum.“

Samband við vélina rofnar

Nikulás sagði í sam­tali við Mannlíf að þegar þarna var komið sögu hafi hann og vinnu­fé­lagi hans vitað hvað ætti eftir að ger­ast. „Við vorum búnir að sjá fyrir hvað myndi ske ef þetta myndi ganga svona og við þurftum að vinna úti við þannig að við fórum úr turn­inum. Við vorum að gera við ljós eða eitt­hvað í svona hálf­tíma, þrjú kortér. Þá fórum við aftur inn í flug­stöð sem þá var inni á hót­el­inu, þá var það nýtt. Nema hvað, þar æða menn um gólf og hár­reyta sig nán­ast. Það var bara uppi fótur og fit því að sam­bandið við vél­ina hafði slitnað.“ Útskýrði Nikulás að margir þeirra sem þutu um gólfið hefðu verið íslenskir flug­menn sem ekki höfðu fengið önnur störf hjá flug­fé­lag­inu, önnur en þau að keyra stræt­is­vagna fyrir flug­fé­lagið.

Aðspurður um það sem áður hefur komið fram, að flug­stjóra Glitfaxa hafi verið ráð­lagt að taka hring út á Faxaflóa og reyna í annað skiptið að lenda í Reykja­vík, segir Nikulás það vel geta stað­ist, en það hafi þá gerst eftir að flug­stjór­inn hafi neitað að lenda á Kefla­vík­ur­flug­velli.

Grafarhelgin

Eftir þrjú ár rennur graf­ar­helgin út yfir flaki Dakota-flug­vél­ar­innar Glitfaxa sem fórst árið 1951 en allir um borð, 20 manns, létu lífið. Flug­vélin fannst aldrei en talið er að flakið liggi undir Flekku­vík á Vatns­leysu­strönd þótt nákvæm stað­setn­ing sé á huldu.

Frá því að Glitfaxi hvarf í sjó­inn fyrir 72 árum hafa ætt­ingjar og vinir þeirra sem fór­ust von­ast til þess að flakið fynd­ist svo hægt væri að jarða lík­ams­leifar þeirra sem lét­ust í slys­inu þegar graf­ar­helg­inni verður aflétt árið 2026.

Þau sem lét­ust með GlitfaxaTuttugu lét­ust í hinu hræði­lega flug­slysi

Barna­barn eins þeirra er lét­ust í slys­inu sagði í sam­tali við Mannlíf að fjöl­skyld­unni hafi alltaf þótt það frekar und­ar­legt að flug­vélin hafi aldrei fund­ist, sér­stak­lega eftir að tækn­inni fleytti fram við leit á haf­svæðum. „Ef hægt væri að stað­setja flakið nákvæm­lega gætum við að minnsta kosti sett blómakransa í sjó­inn þar sem það væri.“ Ástæðan fyrir því að flug­vélin hafi ekki enn fund­ist er þó ein­föld. Það hefur ekki verið leitað að henni síðan 1951.

Þor­steinn Stef­áns­sonÞor­steinn lést einnig með Glitfaxa sem og fimm mán­aða gam­all sonur Maríu Hjart­ar­dóttur, Bjarni.

Mannlíf hafði sam­band starfs­mann Rann­sókn­ar­nefndar sam­gönguslysa og spurði hann út í leit að flaki Glitfaxa. Tjáði hann blaða­manni að það hafi ekki verið neinar flug­slysa­rann­sóknar á þeim tíma sem slysið varð og í raun hafi Rann­sókn­ar­nefnd flug­slysa ekki verið stofnuð fyrr en árið 1996. „Það voru ein­staka rann­sóknir fram­kvæmdar af flug­mála­stjórn fyrir þann tíma og ég get í raun ekk­ert sagt þér um þær rann­sóknir. Það eina sem ég get sagt þér er að það er ekk­ert í gangi hjá okkur og hefur ekki verið í sam­bandi við gömul slys.“

Eins og áður hefur komið fram verður graf­ar­helg­inni yfir flak­inu aflétt eftir aðeins þrjú ár, árið 2026, en flakið mun þó að öllum lík­indum liggja á botni sjávar um ókomna tíð, því hið opin­bera hyggst ekki leita að því.

Kafaði að flak­inu

Mannlíf fékk ábend­ingu um kaf­ara sem sagður var hafa kafað niður að flaki Glitfaxa fyrir all­mörgum árum. Mannlíf ræddi við umræddan kaf­ara en hann vildi ekki koma fram undir nafni. „Þannig er mál með vexti að faðir stjúp­mömmu minnar og bróðir hans voru meðal far­þega. Og ég fór á stað­inn gagn­gert til að vera 100 pró­sent viss um að þetta væri stað­ur­inn. Og ég get stað­fest það að á ákveðnum stað hér í Faxa­fló­anum er þessi flug­vél. En þetta er auð­vitað helgur graf­reitur.“

Er blaða­maður Mannlífs benti honum á að graf­ar­helgin rynni út eftir þrjú ár, svar­aði hann: „Þá verður það von­andi fram­lengt, því það á ekki að hreyfa við svona votum gröfum, aldrei.“

Hvað varðar aðra ætt­ingja þeirra er lét­ust í slys­inu sem mögu­lega myndu vilja fá að grafa lík­ams­leif­arnar í jörðu, hafði kaf­ar­inn þetta að segja: „Þetta er vot gröf og helgur graf­reitur og það er ekk­ert á svæð­inu. Það er málið. Og ég ætla bara að vona að hún stjúp­móðir mín, sem er enn þá á lífi og verður föð­ur­laus ung að árum, þurfi ekki að upp­lifa það að ein­hverjir kjánar séu að hræra í þessu. Það á bara að virða vota gröf, þetta er ekki flókið mál.“

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

3
Minning

Helgi Ólafsson er fall­inn frá

Helgi Ólafsson, raf­virkja­meist­ari á Rauf­ar­höfn, lést á Dval­ar­heim­il­inu Hvammi 27. októ­ber, 97 ára að aldri. Morg­un­blaðið greindi frá and­láti hans. Helgi fædd­ist á Rauf­ar­höfn 31. maí 1929 og ólst þar upp. Hann lauk sveins­prófi í raf­virkjun árið 1950 og hlaut meist­ara­rétt­indi fimm árum síðar. Hann starf­aði við raf­virkjun alla starfsæv­ina, meðal ann­ars fyrir Síld­ar­verk­smiðjur rík­is­ins og SR-mjöl, auk þess að...
6
Slúður

Stjórn­ar­hættir Brynju

Einn und­ar­leg­asti atburður í íslensku atvinnu­lífi síð­ustu ár er brott­hvarf Harðar Arn­ar­sonar úr stóli for­stjóra Lands­virkj­unar eftir far­sæl störf í 17 ár. Hörður, sem hafði byggt upp fyr­ir­tækið Marel með mynd­ar­brag þegar hann tók við Lands­virkjun, hætti einu og hálfu ári eftir að Daði Már Krist­ó­fers­son fjár­mála­ráð­herra skipti alfarið út stjórn rík­is­orku­fyr­ir­tæk­is­ins. Stjórn­ar­for­mað­ur­inn Brynja Bald­urs­dóttir er grjót­harður kap­ít­alisti. Hún hefur...

Mest lesið í vikunni

Heimur

Geymdi milljón myndir og mynd­skeið af mis­notkun eig­in­kon­unnar

Níu aðrir menn neita sök
Heimur

Banka­eig­andi hand­tek­inn grun­aður um að hafa tekið 430 millj­ónir dala úr hirslum

Innlent

Matthías neit­aði að hafa skallað lög­reglu­mann en búk­mynda­vélin sagði annað

Pólitík

Krafði Þorgerði svara vegna kjarn­orku­um­mæla Heimis Más

Heimur

Flaug yfir fjöll og götur á heima­smíð­uðu svif­bretti

Innlent

Innlent

Rúður brotnar í nærri þrjá­tíu bílum á Nesinu

Íbúar og vegfarendur eru hvattir til að kanna hvort upptökur úr eftirlitsmyndavélum eða bifreiðum geti nýst við rannsókn málsins.
Innlent

Einn lát­inn og annar á gjör­gæslu eftir hnífstungu­árás í Breið­holti

Innlent

Tíu nýir leitar- og björg­un­ar­kaf­arar útskrif­aðir

Innlent

Fertugur maður ákærður fyrir 267 kanna­bis­plöntur í bíl

Innlent

Brynjar ók á bíl og far­þegi þurfti í umfangs­mikla aðgerð

Innlent

Einn bak við lás og slá eftir lík­ams­árás í Árbæ