Fara í efni
Þorbjörg Sigríður Gunnlaugsdóttir
„Fer svo heim að taka upp podcast þar sem hann titlar sig Ritstjórann“
Þorbjörg Sigríður Gunnlaugsdóttir
Heimur

Kærastan fann dagbækurnar og sleit sambandinu við David Walliams

Fólk

Björgvin Franz fagnar eins árs sambands­afmæli með kærustunni

Innlent

Grun­semdir vöknuðu þegar sonurinn sagðist fá fría ferð til Taílands

Fólk

„Ég er orðinn leiður á að vera veikur“

Heimur

Prestur rifjar upp óþægilega reynslu úr æsku

Fólk

Fjórum árum eftir að heilinn hótaði uppsögn á Karl Ágúst tvö verk á sviði

Heimur

Hin sænska Karin hvarf áður en hún átti að sækja börnin sín

Heimur

Lögregla fjarlægði mótmælanda eftir að hafa ruglast á áletrun á bol hans

Heimur

Raun­veruleika­stjarnan Sheila Mangubat látin 35 ára að aldri

Pólitík

Stefán Einar svarar Þorgerði með orðum Heiðu Kristínar

„Stærstu pólitísku svik aldarinnar“

Þingmenn Samfylk­ing­ar­innar mættu á hitafund um Fjarðar­heiðargöng

Logi Einarsson
Logi Ein­ars­son Logi mætti á hita­fund­inn í gær Mynd: Víkingur

Logi Einarsson og Eydís Ásbjörns­dóttir, þingmenn Samfylkingarinnar í Norðaustur­kjördæmi, mættu á fjölmennan opinn fund á Seyðis­firði í gær þar sem mikil óánægja ríkti meðal heima­manna vegna stöðu Fjarðar­heiðarganga í nýrri samgöngu­áætlun ríkis­stjórnarinnar.

Samkvæmt Austur­frétt sóttu yfir 100 manns fundinn í Herðu­breið, þrátt fyrir veður­viðvörun og óvissu um færð yfir Fjarðar­heiði. Sumir vonuðust til að þing­mennirnir fengju að upplifa aðstæður Seyðfirðinga á eigin skinni

„Við vitum öll að þótt heiðin sé skráð opin þá er ekki fyrir hvern sem er að keyra hana, alls ekki fyrir hjartveika – vonandi fáið þið að upplifa það á eftir,“ sagði Björt Sigfinns­dóttir á fundinum en þó nokkur hiti var í heima­mönnum á fundinum.

Tilefnið var að í nýrri samgöngu­áætlun eru Fjarðar­heiðargöng ekki lengur í forgangi. Fyrsti ræðumaður fundarins, Þorvaldur Jóhannsson, kallaði breytinguna „stærstu pólitísku svik aldarinnar.“

Logi sagði að breyting á forgangs­röðun árið 2023 hefði rofið þá samstöðu sem ríkt hefði um hringtengingu. Göngin saman hefðu „skapað nauðsyn­lega hringtengingu“ en breytingin hefði orðið til þess að „samstaðan á Aust­fjörðum um hringtengingu hafi brostið.“

Eydís sagði að mikil vinna hefði farið í að ná sátt um hringtengingu innan sveitar­félaganna og að breytingin sumarið 2023 hefði verið „vond“ og „sett skarð í samfélagið.“

Á fundinum komu fram miklar áhyggjur af áhrifum breytinganna á öryggi og heilbrigðis­þjónustu. Eyjólfur Þorkelsson, framkvæmda­stjóri lækninga hjá HSA, sagði að með því að hætta við Fjarðar­heiðargöng væri „kastað fyrir róða forsendum fram­þróunar bæði heilbrigðis­þjónustu og sveitar­félagsins Múlaþings.“

Sigurveig Gísla­dóttir, fagstjóri hjúkrunar hjá HSA, sagði

„Við höfum nauman tímaramma til að koma fólki til Akureyrar eða Reykja­víkur. Fjarða­göngin eru tíma­ramminn sem mun drepa fólk.“

Þing­mennirnir sögðust ætla að styðja þá samgöngu­áætlun sem kæmi frá meirihluta umhverfis- og samgöngu­nefndar Alþingis. „Ég styð þessa samgöngu­áætlun eins og hún hefur verið lögð fram,“ sagði Logi og lagði áherslu á nauðsyn samstöðu ríkis­stjórnarinnar. „Við höfum sjö ára reynslu af því að flokkar leggjast hver fyrir annan. Þá gerist það sama og í ganga­málum síðastliðin sjö ár, ekkert!“

Fundinum lauk án þess að sátt næðist og ljóst var að traust heima­manna á fyrir­hugaðri forgangs­röðun samgöngu­framkvæmda er lítið.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Heimur

Ný UFO-skjöl afhjúpa áform um neðan­jarðar­hvelfingu fyrir „framandi efni“

Gögnin eru hluti af 43 skjölum sem voru birt nýlega. Þar er einnig fjallað um óútskýrðar ratsjármælingar frá árinu 2023.
Menning

Tvenns konar bað í boði og aðeins annað þeirra er blautt

Pólitík

Kristrún segir hallalaus fjárlög sleggjuna sem þurfi til að ná vöxtum niður

Heimur

Samsæris­kenningar spretta upp eftir undarlegt augnablik á blaðamanna­fundi

Innlent

Sendi saksóknara falsað læknis­vottorð og hlaut ársfangelsi

Landið

Leifar af skála frá land­námstíma fundust á Aðalbóli

Fornleifafræðingur telur minjarnar geta varpað ljósi á búsetu í Hrafnkelsdal á fyrstu öldum Íslandsbyggðar.

Sváfu undir berum himni og heilluðust af íslenska hálendinu

Andri Snær rifjar upp fórnirnar sem fylgdu Kára­hnjúka­virkjun

Leður­blakan í Fellabæ enn ófundin

Leður­blaka sást á flugi í Fellabæ

Öllu starfs­fólki Heilbrigðis­eftirlits Austur­lands sagt upp