Anna Kristjánsdóttir
„Ég lokaði af allar tilfinningar og gerðist kall.“
Anna Kristjánsdóttir
Innlent

Neyt­endur beðnir um að farga jógúrt frá Örnu

Innlent

Hörður hót­aði lög­reglu­manni nauðgun og spark­aði í annan

Skoðun

Strætó hefur aldrei verið verri

Innlent

Rað­kúk­ari Ragnars snéri aftur á Hrekkja­vöku

Innlent

Falsaðar ljós­myndir orðnar algengar í fast­eigna­aug­lýs­ingum

Fólk

„Með­höndla full­orðið fólk sem lifir enn eins og það séu börn“

Fólk

Lúxu­sein­býli á Arn­ar­nes­inu komið á sölu fyrir 340 millj­ónir

Innlent

Jódís spyr hvar mót­mæl­end­urnir séu nú

Innlent

Erlendur maður grip­inn við skjala­fölsun við Hvera­gerði

Landið

Nál fannst í hrekkja­vökusúkkulaði á Akureyri

Hildur sakar ríkisstjórnina um að níða feitt fólk

„Hefur ekk­ert höf­und­anna verið ung­lingar?“

Hildur sakar ríkisstjórnina um að níða feitt fólk
Hildur Lilli­endahl Vigg­ós­dóttir Hildur er afar ósátt við hug­myndir rík­is­ins Mynd: Instagram

Hildur Lilli­endahl Vigg­ós­dóttir, verk­efna­stjóri hjá Reykja­vík­ur­borg, gagn­rýnir harð­lega drög að aðgerða­á­ætlun stjórn­valda í „mál­efni offitu“ og segir hug­mynd­irnar ganga langt yfir mörk þess sem sé ásætt­an­legt. Hún birti færslu á Facebook þar sem hún segir að hún hafi aldrei áður sent umsögn per­sónu­lega á sam­ráðs­gátt, en nú hafi hún ekki getað setið á strák sínum.

„Ég held að ég hafi aldrei sent umsögn per­sónu­lega á sam­ráðs­gátt áður en ég gat ekki orða bund­ist um þessi plön um aðgerða­á­ætlun um „mál­efni offitu“. Þessar hug­myndir eru í meira lagi galnar og það er svo furðu­legt hvernig við höfum komið okkur saman um að það sé í lagi að níða feitt fólk og nið­ur­lægja það við hvert tæki­færi,“ skrifar Hildur.

Sér­stak­lega segir hún eina til­lögu í áætl­un­inni hafa farið fram úr sér. Hún vitnar orð­rétt í drögin þar sem segir:

„Vinnu­hópur hanni verk­lag fyrir sér­staka raf­ræna heil­brigð­is­skimun ung­menna þar sem ein­stak­lingar á aldr­inum 16 19 ára verði skimaðir fyrir áhættu­þáttum offitu og kall­aðir inn í sér­stakt heil­brigð­is­við­tal í gegnum fram­halds­skóla­heilsu­gæslu gefi nið­ur­staða skimunar til kynna að þörf sé á inn­gripi vegna offitu.“

Hildur setur hug­mynd­ina í sam­hengi við reynslu ung­lings­stúlkna og sam­fé­lags­legan þrýst­ing:

„Afsakið en... Hvaða kona bara hér sem les þessa færslu mína man eftir að hafa verið á aldr­inum 16-19 ára og liðið eins og hún væri alltof feit vegna alls­konar skila­boða úr öllum áttum? Fram­halds­spurn­ing: Hversu pepp­aðar hefðuð þið verið fyrir því að RÍKISSTJÓRNIN hefði kallað ykkur á fund til að pota í ykkur og segja ykkur að þið þyrftuð að hætta að vera svona feitar?“

Í færsl­unni þakkar hún einnig fag­fólki sem hafi sent inn umsagnir um málið og hvetur fólk til að kynna sér þær. Hún nefnir sér­stak­lega umsögn Töru Mar­grétar Vil­hjálms­dóttur, umsögn Mið­stöðvar í lýð­heilsu­vís­indum við HÍ og við­var­anir frá Félag fag­fólks um átrask­anir. Hún bendir jafn­framt á að umsagn­ar­frestur sé að renna út og hvetur fólk til að láta í sér heyra.

Í við­bót við færsl­una skýrir Hildur orða­lag sitt þegar hún talar um þungað fólk og vísar þar til sér­stakrar aðgerðar í áætl­un­inni:

„(Edit vegna athuga­semda: Þegar ég segi „þung­aðs fólks“ á ég við þungað fólk. Aðgerð fjögur gengur bein­línis út á að sporna gegn nýgengi offitu á með­göngu og skil­greina með­ferð við offitu á barns­haf­andi fólki. Af því það er inn­gripið og afskipta­semin sem þig vantar meðan lík­am­inn þinn er að búa til heila aðra mann­eskju.)“

Að lokum birtir hún orð­rétta umsögn sína sem hún sendi inn á sam­ráðs­gátt stjórn­valda:

„Ég tek undir þær gagn­rýn­is­raddir sem hér hafa heyrst, ekki síst umsögn Töru Mar­grétar Vil­hjálms­dóttur sér­fræð­ings í mála­flokknum. Óumbeðið inn­grip yfir­valds­ins í líf þung­aðs fólks í þessu sam­hengi er ekki lík­legt til að valda öðru en tjóni, skorti á trausti og til­heyr­andi sárs­auka. Hug­myndin um að hið opin­bera kalli ung­linga á sinn fund ef þau eru eða gætu orðið feit­ari en æski­legt þykir er frá­leit í heimi þar sem tíðni átrösk­un­ar­sjúk­dóma er á hraðri upp­leið. Hvaða ung­lingur gæti mögu­lega gengið út af slíkum fundi líð­andi betur með sig og lífið sitt? Ég skil ekki hvernig þessi hug­mynd komst áfram. Hefur ekk­ert höf­und­anna verið ung­lingar?“

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

3
Minning

Helgi Ólafsson er fall­inn frá

Helgi Ólafsson, raf­virkja­meist­ari á Rauf­ar­höfn, lést á Dval­ar­heim­il­inu Hvammi 27. októ­ber, 97 ára að aldri. Morg­un­blaðið greindi frá and­láti hans. Helgi fædd­ist á Rauf­ar­höfn 31. maí 1929 og ólst þar upp. Hann lauk sveins­prófi í raf­virkjun árið 1950 og hlaut meist­ara­rétt­indi fimm árum síðar. Hann starf­aði við raf­virkjun alla starfsæv­ina, meðal ann­ars fyrir Síld­ar­verk­smiðjur rík­is­ins og SR-mjöl, auk þess að...
6
Slúður

Stjórn­ar­hættir Brynju

Einn und­ar­leg­asti atburður í íslensku atvinnu­lífi síð­ustu ár er brott­hvarf Harðar Arn­ar­sonar úr stóli for­stjóra Lands­virkj­unar eftir far­sæl störf í 17 ár. Hörður, sem hafði byggt upp fyr­ir­tækið Marel með mynd­ar­brag þegar hann tók við Lands­virkjun, hætti einu og hálfu ári eftir að Daði Már Krist­ó­fers­son fjár­mála­ráð­herra skipti alfarið út stjórn rík­is­orku­fyr­ir­tæk­is­ins. Stjórn­ar­for­mað­ur­inn Brynja Bald­urs­dóttir er grjót­harður kap­ít­alisti. Hún hefur...

Mest lesið í vikunni

Heimur

Geymdi milljón myndir og mynd­skeið af mis­notkun eig­in­kon­unnar

Níu aðrir menn neita sök
Heimur

Banka­eig­andi hand­tek­inn grun­aður um að hafa tekið 430 millj­ónir dala úr hirslum

Innlent

Matthías neit­aði að hafa skallað lög­reglu­mann en búk­mynda­vélin sagði annað

Pólitík

Krafði Þorgerði svara vegna kjarn­orku­um­mæla Heimis Más

Heimur

Flaug yfir fjöll og götur á heima­smíð­uðu svif­bretti

Pólitík

Pólitík

Segir vinstri menn hafa yfir­tekið Sjálf­stæð­is­flokk­inn

„Slíkur fals-flokkur á engan tilvistarrétt, því hann gerir meira ógagn en gagn“
  • Pólitík

    Dorrit skorar á for­seta Ísraels að hleypa arab­ískum flokkum í rík­is­stjórn

  • Pólitík

    Segir öfga­ísla­mista og öfga hægri­menn eiga margt sam­eig­in­legt

  • Pólitík

    „Ég sakna þess enn meira að heyra rödd mann­rétt­inda á Alþingi“

  • Pólitík

    Kína vill efla tengslin við Ísland á lyk­ilsviðum

  • Pólitík

    Sig­mundur Davíð svarar fyrir fjar­veru sína úr öllum atkvæða­greiðslum