Lárus Guðmundsson mun leiða lista Miðflokksins í Garðabæ fyrir komandi Sveitarstjórnarkosningar en flokkurinn greinir frá þessu í tilkynningu á samfélagsmiðlum.
Lárus er framkvæmdastjóri, varaþingmaður Miðflokksins í Suðvesturkjördæmi og formaður kjördæmafélags Miỗflokksins í Suðvesturkjördæmi. Lárus er fyrrverandi atvinnumaður og landsliðsmaður i knattspyrnu.
Lárus var lengi að lýsa þýska boltanum í sjónvarpi, samhliða starfi sínu sem auglýsingastjóri RÚV.
Eiginkona Lárusar er Ásgerður Baldursdóttir og eiga þau 2 börn og 5 barnabörn.


























Athugasemdir