Anna Kristjánsdóttir
„Ég lokaði af allar tilfinningar og gerðist kall.“
Anna Kristjánsdóttir
Innlent

Neyt­endur beðnir um að farga jógúrt frá Örnu

Innlent

Hörður hót­aði lög­reglu­manni nauðgun og spark­aði í annan

Skoðun

Strætó hefur aldrei verið verri

Innlent

Rað­kúk­ari Ragnars snéri aftur á Hrekkja­vöku

Innlent

Falsaðar ljós­myndir orðnar algengar í fast­eigna­aug­lýs­ingum

Fólk

„Með­höndla full­orðið fólk sem lifir enn eins og það séu börn“

Fólk

Lúxu­sein­býli á Arn­ar­nes­inu komið á sölu fyrir 340 millj­ónir

Innlent

Jódís spyr hvar mót­mæl­end­urnir séu nú

Innlent

Erlendur maður grip­inn við skjala­fölsun við Hvera­gerði

Landið

Nál fannst í hrekkja­vökusúkkulaði á Akureyri

Matvöruverð heldur áfram að hækka

Hækkunin er meiri en í fyrra

Matvöruverð heldur áfram að hækka
Prís Matvaran er ódýr­ust í Prís Mynd: Facebook

Mat­vöru­verð á Íslandi heldur áfram að hækka og hefur hækkað hraðar á fyrstu mán­uðum árs­ins en á sama tíma í fyrra, sam­kvæmt nýrri sam­an­tekt Verð­lags­eft­ir­lits ASÍ.

Vöru­karfa ASÍ hækk­aði um 0,68 pró­sent milli febr­úar og mars og nemur upp­söfnuð hækkun á árinu nú tæpum tveimur pró­sentum.

Hækk­an­irnar ná til flestra vöru­flokka, en mest hækkun mælist á unnum kjöt- og mjólk­ur­vörum. Þá hafa sæl­gæti og aðrar dýra­af­urðir einnig hækkað í verði. Á móti hefur verð á sumum ávöxtum og græn­meti lækkað, þar á meðal app­el­sínum, sveppum, rót­ar­græn­meti og lauk.

Mismunandi þróun milli verslana

Mest hefur mat­vöru­verð hækkað það sem af er ári í Fjarð­ar­kaupum, eða um 3 pró­sent, í Nettó um 2,3 pró­sent og í Bónus um 2 pró­sent. Athygli er vakin á því að tölur fyrir Fjarð­ar­kaup í mars liggja ekki fyrir og er því miðað við febr­ú­ar­gögn.

Í Kram­búð­inni hefur verð hins vegar lækkað um 2,4 pró­sent það sem af er ári.

Mesta hækkun milli mán­aða mæld­ist í Extra, þar sem verð hækk­aði um 7,6 pró­sent. Sú hækkun skýrist þó að hluta af veru­legri verð­lækkun í versl­un­inni mán­uð­inn áður. Þar á eftir komu Kram­búðin með 1,4 pró­senta hækkun og Nettó með 1,3 pró­sent. Minnstar hækk­anir voru í Krónunni og Prís, um 0,3 pró­sent.

Prís áfram ódýrust

Samkvæmt mæli­kvarða Verð­lags­eft­ir­lits ASÍ er Prís áfram ódýrasta versl­unin, þar sem verð er að með­al­tali aðeins 0,05 pró­sent yfir lægsta verði sömu vöru.

Næst á eftir koma Bónus og Krónan. Munur á verði er hins vegar veru­legur þegar kemur að dýr­ari versl­unum, þar sem vörur í 10-11 eru að jafn­aði nær 72 pró­sentum dýr­ari en ódýr­asti kost­ur­inn.

ASÍ bendir á að nið­ur­stöð­urnar beri að skoða með fyr­ir­vara þar sem ekki tókst að safna gögnum úr Fjarð­ar­kaupum fyrir mars­mánuð.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

3
Minning

Helgi Ólafsson er fall­inn frá

Helgi Ólafsson, raf­virkja­meist­ari á Rauf­ar­höfn, lést á Dval­ar­heim­il­inu Hvammi 27. októ­ber, 97 ára að aldri. Morg­un­blaðið greindi frá and­láti hans. Helgi fædd­ist á Rauf­ar­höfn 31. maí 1929 og ólst þar upp. Hann lauk sveins­prófi í raf­virkjun árið 1950 og hlaut meist­ara­rétt­indi fimm árum síðar. Hann starf­aði við raf­virkjun alla starfsæv­ina, meðal ann­ars fyrir Síld­ar­verk­smiðjur rík­is­ins og SR-mjöl, auk þess að...
6
Slúður

Stjórn­ar­hættir Brynju

Einn und­ar­leg­asti atburður í íslensku atvinnu­lífi síð­ustu ár er brott­hvarf Harðar Arn­ar­sonar úr stóli for­stjóra Lands­virkj­unar eftir far­sæl störf í 17 ár. Hörður, sem hafði byggt upp fyr­ir­tækið Marel með mynd­ar­brag þegar hann tók við Lands­virkjun, hætti einu og hálfu ári eftir að Daði Már Krist­ó­fers­son fjár­mála­ráð­herra skipti alfarið út stjórn rík­is­orku­fyr­ir­tæk­is­ins. Stjórn­ar­for­mað­ur­inn Brynja Bald­urs­dóttir er grjót­harður kap­ít­alisti. Hún hefur...

Mest lesið í vikunni

Heimur

Geymdi milljón myndir og mynd­skeið af mis­notkun eig­in­kon­unnar

Níu aðrir menn neita sök
Heimur

Banka­eig­andi hand­tek­inn grun­aður um að hafa tekið 430 millj­ónir dala úr hirslum

Innlent

Matthías neit­aði að hafa skallað lög­reglu­mann en búk­mynda­vélin sagði annað

Pólitík

Krafði Þorgerði svara vegna kjarn­orku­um­mæla Heimis Más

Heimur

Flaug yfir fjöll og götur á heima­smíð­uðu svif­bretti

Peningar

Peningar

Samkaup semja um kaup á Fjarð­ar­kaupum

Verslunin í Hafnarfirði hefur verið sjálfstæð um áratuga skeið
  • Peningar

    Íslands­banki stefnir Hús­vík­ingi vegna láns sem tekið var í appi

  • Peningar

    Þriggja millj­arða hagn­aður hjá móð­ur­fé­lagi Össurar

  • Peningar

    Páll Stein­gríms stofnar fyr­ir­tæki

  • Peningar

    Lög­manns­stofa gjald­þrota með rúm­lega 120 millj­ónir króna í kröfur

  • Peningar

    Stór hlut­hafi Ölgerð­ar­innar tekur Kveik mjög alvar­lega