Matorka ehf. tilkynnti Matvælastofnun um strok bleikju úr eldisstöð sinni að Húsatóftum við Grindavík að morgni laugardagsins 11. apríl 2026 en þetta kemur fram í tilkynningu MAST.
Fiskurinn var að meðaltali um 600 grömm að þyngd og áætlar fyrirtækið að um 500 fiskar hafi sloppið.
Viðbragðsáætlun vegna stroks var virkjuð samstundis. Talið er að rist á útfalli kers hafi gefið sig vegna tæringar, með þeim afleiðingum að fiskurinn komst út í sjó með frárennsli. Viðgerð var framkvæmd án tafar og jafnframt var hafist handa við að yfirfara ástand annarra kerja.
Að mati fyrirtækisins eru litlar líkur á að bleikjan sem slapp geti lifað af í fullsöltum sjó. Matvælastofnun er með málið til rannsóknar og mun birta eftirlitsskýrslu þegar henni lýkur.
Veistu meira? Láttu okkur vita
Það tókst ekki að sækja formið. Reyndu aftur eftir augnablik.
































Athugasemdir