Fara í efni
Kristrún Frostadóttir
„Þegar við tókum við var gert ráð fyrir halla á ríkissjóði næstu fimm árin“
Kristrún Frostadóttir
Innlent

Perla Líf dæmd fyrir að aka á gangandi mann og yfirgefa slysstað

Fólk

„Ég er orðinn leiður á að vera veikur“

Fólk

Áhorf­endur grunaði ekki hvernig Sölku Sól leið á meðan hún söng

Heimur

Spákona varar við alheims­rafmagns­leysi í lok árs

Fólk

Reynslu­bolti úr frétta­heiminum stofnar eigið fyrirtæki

Pólitík

Stefán Einar svarar Þorgerði með orðum Heiðu Kristínar

Innlent

Grun­semdir vöknuðu þegar sonurinn sagðist fá fría ferð til Taílands

Heimur

Kynþokka­fyllsti maður heims afskrifar 200 milljónir dala í læknis­skuldum

Innlent

Kökuboð á Patreks­firði endaði fyrir dómi

Innlent

Sakar ríkis­stjórnina um að gera lítið úr vinnu láglauna­fólks og foreldra

Lögreglan þurfti að veita fullum ökumanni eftirför

Lögreglumaður að störfum
Lög­reglu­maður að störfum Myndin teng­ist frétt­inni ekki beint. Mynd: Víkingur

Lögreglan hafði í nógu að snúast frá klukkan 17:00 síðdegis til klukkan 05:00 í morgun. Samkvæmt dagbók lögreglu voru alls 105 mál bókuð í kerfum embættisins á tíma­bilinu.

Meðal verkefna lögreglu var útkall vegna ökumanns sem hafði ekið bifreið sinni út af vegi og á stein skammt frá akbraut. Ökumaðurinn er grunaður um akstur undir áhrifum fíkniefna auk þess að hafa verið sviptur ökuréttindum.

Lögreglu barst einnig tilkynning um slagsmál ungmenna. Eitt ungmenni var flutt á lögreglustöð þar sem foreldrar sóttu viðkomandi síðar.

Í miðborg Reykja­víkur voru tveir menn hand­teknir eftir að tilkynnt var um ógnandi hegðun þeirra. Samkvæmt lögreglu þurfti að beita lögreglu­tökum allt þar til mennirnir voru komnir í fanga­klefa vegna ástands þeirra.

Nokkrir ökumenn voru stöðvaðir grunaðir um akstur undir áhrifum áfengis eða fíkniefna. Einn þeirra reyndist bæði án ökuréttinda og á ótryggðri bifreið. Annar ökumaður var stöðvaður grunaður um akstur undir áhrifum áfengis og vímuefna og reyndist einnig sviptur ökuréttindum. Báðir voru látnir lausir að lokinni sýnatöku.

Lögregla hafði jafnframt afskipti af fjölda ökumanna vegna hrað­aksturs. Einn ökumaður mældist á um 129 kílómetra hraða þar sem hámarks­hraði er 80 km/klst. Annar var stöðvaður á 97 km/klst þar sem leyfður hámarks­hraði er 50 km/klst og sá þriðji ók á 118 km/klst þar sem hámarks­hraði er 80 km/klst. Þá voru fleiri ökumenn sektaðir fyrir of hraðan akstur.

Í einu tilviki reyndi ökumaður að komast undan lögreglu og hófst eftirför. Ökumaðurinn náðist eftir stutta eftirför og var hand­tekinn á vettvangi. Við athugun kom í ljós að hann var ölvaður og á yfir höfði sér kæru vegna fjölmargra umferðar­lagabrota.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Heimur

Bæjar­kötturinn skrópaði á athöfn

Bronsstytta af kettinum Susie var afhjúpuð í Dorchester á sunnudag. Myndhöggvarinn Ama Menec sótti innblástur í rómverska sögu bæjarins.
Pólitík

Snorri varar við því að menn geti misst stjórn á gervi­greind

Pólitík

Þingmenn fara yfir bréf frá fólki með þroska­hömlun

Heimur

Mette hafnar tengslum við hægri­öfgamenn eftir ummæli um „útskiptin miklu“

Innlent

Í sex af hverjum tíu tilvikum var morðinginn úr fjöl­skyldunni

Innlent

Bjarni varar við týndum áratug í efnahags­málum

„Afleiðing þeirrar stefnu sem er boðuð verður að öðru óbreyttu minni fjárfesting, hægari vöxtur, færri spennandi störf og lakari lífskjarasókn.“

Krefjast ákæru fyrir manndráp af gáleysi eftir bana­slysið í Grindavík

Foreldri fór yfir strikið á körfubolta­móti tíu ára drengja

Lögregla leitar ökumanns eftir að ekið var á stúlku á Akureyri

Grunsamlegar manna­ferðir án manna

Börn tóku upp eigin blóðugu árás á feðga og hæddust að þeim