Anna Kristjánsdóttir
„Ég lokaði af allar tilfinningar og gerðist kall.“
Anna Kristjánsdóttir
Skoðun

Strætó hefur aldrei verið verri

Fólk

Helga­fell á Sel­tjarn­ar­nesi komið á sölu

Innlent

Falsaðar ljós­myndir orðnar algengar í fast­eigna­aug­lýs­ingum

Landið

Nál fannst í hrekkja­vökusúkkulaði á Akureyri

Fólk

Breið­holts­laug, Laug­ar­dalur og Hósiló meðal staða sem fá góð með­mæli

Innlent

Gleymdi kaffi­bolla og rusli og end­aði fyrir kæru­nefnd

Innlent

Vopn komu við sögu þegar ung­lingap­artý fór úr bönd­unum

Heimur

Trúður vakti óhug við grunn­skóla

Innlent

Einn lát­inn og annar á gjör­gæslu eftir hnífstungu­árás í Breið­holti

Fólk

Sjö góðar ástæður til að baka oftar

Fyrrum innflytjandi varar við innflytjendum

Ari Edwald var sjálfur inn­flytj­andi í Portúgal fyrr á þessu ári

Fyrrum innflytjandi varar við innflytjendum
Ari Edwald Er odd­viti Mið­flokks­ins í Reykja­vík Mynd: Golli

Ari Edwald, odd­viti Mið­flokks­ins í Reykja­vík, varar við inn­flytj­endum í mynd­bandi sem hann birti á sam­fé­lags­miðlum í gær.

Í mynd­band­inu, sem not­ast við streitu­vald­andi und­ir­spil, lýsir Ari því yfir að borg­ar­búar upp­lifi ekki sömu örygg­is­til­finn­ingu og áður og segir að dæmum um grafal­var­leg atvik fjölgi. Fylgja með skjá­skot úr fréttum þar sem grun­aðir ger­endur eru erlendir. Bendir for­stjór­inn fyrr­ver­andi á inn­flytj­enda­stefnu rík­is­ins sem söku­dólg í þeim efnum. Hvetur Ari fólk til að kjósa Mið­flokk­inn í kom­andi sveit­ar­stjórn­ar­kosn­ingum til að hægt sé koma þessum málum í lag í borg­inni.

Óhætt er að segja að mynd­band þetta hafi vakið mikla athygli á sam­fé­lags­miðlum eins og Facebook og TikTok.

„Verið hrædd! Van­treystið nágrönnum ykkar! Kjósið Mið­flokk­inn…“ skrifar blaða­mað­ur­inn fyrr­ver­andi Atli Þór Fanndal um mynd­bandið.

„Hvað ætli Mið­flokk­ur­inn hygg­ist fyrir til að koma í veg fyrir að síð­mið­aldra íslenskir áhrifa­karlar ógni öryggi kvenna í einka­sam­kvæmum eða á opin­berum vett­vangi?“ spyr Sóley Tóm­as­dóttir, fyrr­ver­andi borg­ar­full­trúi.

Halldór Auðnar Svansson, annar fyrr­ver­andi borg­ar­full­trúi, skrifar: „Það á greini­lega að keyra bara á þessu fram að kosn­ingum. Back to basics. Þegar upp er staðið snýst þessi flokkur um nákvæm­lega ekk­ert annað en en skíta yfir inn­flytj­endur. Ekkert upp­byggi­legt, engar lausnir, bara nei­kvæðar til­finn­ingar og raus.“

Vekur mynd­bandið sér­stak­lega mikla athygli í ljósi þess að Ari var sjálfur inn­flytj­andi í Portúgal fyrr á þessu ári.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

3
Minning

Helgi Ólafsson er fall­inn frá

Helgi Ólafsson, raf­virkja­meist­ari á Rauf­ar­höfn, lést á Dval­ar­heim­il­inu Hvammi 27. októ­ber, 97 ára að aldri. Morg­un­blaðið greindi frá and­láti hans. Helgi fædd­ist á Rauf­ar­höfn 31. maí 1929 og ólst þar upp. Hann lauk sveins­prófi í raf­virkjun árið 1950 og hlaut meist­ara­rétt­indi fimm árum síðar. Hann starf­aði við raf­virkjun alla starfsæv­ina, meðal ann­ars fyrir Síld­ar­verk­smiðjur rík­is­ins og SR-mjöl, auk þess að...
5
Slúður

Stjórn­ar­hættir Brynju

Einn und­ar­leg­asti atburður í íslensku atvinnu­lífi síð­ustu ár er brott­hvarf Harðar Arn­ar­sonar úr stóli for­stjóra Lands­virkj­unar eftir far­sæl störf í 17 ár. Hörður, sem hafði byggt upp fyr­ir­tækið Marel með mynd­ar­brag þegar hann tók við Lands­virkjun, hætti einu og hálfu ári eftir að Daði Már Krist­ó­fers­son fjár­mála­ráð­herra skipti alfarið út stjórn rík­is­orku­fyr­ir­tæk­is­ins. Stjórn­ar­for­mað­ur­inn Brynja Bald­urs­dóttir er grjót­harður kap­ít­alisti. Hún hefur...

Mest lesið í vikunni

Innlent

Einn bak við lás og slá eftir lík­ams­árás í Árbæ

Heimur

Bauð inter­net­inu í brúð­kaupið og allt fór á annan end­ann

Myndband
Heimur

Dádýr skall á konu og braust inn í þvotta­hús

Innlent

Fluttur á bráða­mót­töku eftir að eldur kom upp í íbúð

Menning

Laxness slær í gegn hjá The Guardian

Pólitík

Pólitík

Segir vinstri menn hafa yfir­tekið Sjálf­stæð­is­flokk­inn

„Slíkur fals-flokkur á engan tilvistarrétt, því hann gerir meira ógagn en gagn“
  • Pólitík

    Dorrit skorar á for­seta Ísraels að hleypa arab­ískum flokkum í rík­is­stjórn

  • Pólitík

    Segir öfga­ísla­mista og öfga hægri­menn eiga margt sam­eig­in­legt

  • Pólitík

    „Ég sakna þess enn meira að heyra rödd mann­rétt­inda á Alþingi“

  • Pólitík

    Kína vill efla tengslin við Ísland á lyk­ilsviðum

  • Pólitík

    Sig­mundur Davíð svarar fyrir fjar­veru sína úr öllum atkvæða­greiðslum