Jódís Skúladóttir
„Ég nenni ekki að hlusta á þennan tappa snúa út úr orðum mínum“
Jódís Skúladóttir
Skoðun

Ég fór til vinnu – ekki til að missa heils­una

Pólitík

„Ef það má bjóða ein­hverjum bit­urð og kven­fyr­ir­litn­ingu, endi­lega lesið Moggann í dag“

Minning

Lárus Heið­ars­son lát­inn

Fólk

Líf á mörkum friðar og átaka

Heimur

Jessica Delfino segir Russell Brand hafa ítrekað boðið sér heim til sín

Innlent

„Það er alls ekki hryðju­verk að hleypa dýrum út“

Minning

Sæmi Rokk er fall­inn frá

Frétt

„Vændi snýst um sam­fé­lagið í heild“

Heimur

Alanis Moris­sette kemur út sem pankyn­hneigð

Heimur

Stakk nágranna sinn í brjóstið eftir deilur um lausan hund

Ísraelskur herforingi: „Við drepum eins og ekki hefur verið gert síðan 1967“

Avi Bluth er ánægður með árang­ur­inn á Vest­ur­bakk­anum

Ísraelskur herforingi: „Við drepum eins og ekki hefur verið gert síðan 1967“
Ísra­elskur her­maður mundar byssu sína Að minnsta kosti 235 börn hafa verið drepin á Vest­ur­bakk­anum síðan 7. októ­ber 2023. Mynd: ZAIN JAAFAR / AFP

Avi Bluth, yfir­maður mið­her­stjórnar ísra­elska hers­ins á hernumda Vest­ur­bakk­anum, sagði á lok­uðum fundi að ísra­elski her­inn væri að drepa Palest­ínu­menn í meira mæli en sést hafi frá árinu 1967. Þetta kemur fram í umfjöllun ísra­elska dag­blaðs­ins Haaretz.

Bluth varði jafn­framt rýmri reglur um vald­beit­ingu sem heim­ila her­mönnum að skjóta á óvopn­aða Palest­ínu­menn við ákveðnar aðstæður. Hann við­ur­kenndi einnig að mis­mun­andi sé tekið á málum eftir því hvort um sé að ræða Palest­ínu­menn eða ísra­elska land­töku­menn.

„Á þremur árum höfum við drepið 1.500 hryðju­verka­menn,“ sagði Bluth og átti þar við Palest­ínu­menn. Hann bætti við: „Arabar skilja að „ef ein­hver rís upp til að drepa þig, drepur þú hann fyrst“ er hluti af reglum Mið­aust­ur­landa og þess vegna erum við að drepa eins og við höfum ekki drepið síðan 1967.“

Samkvæmt upp­lýs­ingum frá Sam­ræm­ing­ar­skrif­stofa mann­úð­ar­mála hjá Sam­ein­uðu þjóð­unum hafa ísra­elskar her­sveitir drepið 1.081 Palest­ínu­mann á Vest­ur­bakk­anum og í Austur-Jer­úsalem frá 7. októ­ber 2023, þar af að minnsta kosti 235 börn.

Bluth sagði að hátt dán­ar­tal tengd­ist skip­unum sem hann hefði gefið um auð­veld­ari heim­ildir til skot­vopna­notk­unar. Meðal ann­ars væri her­mönnum heim­ilt að skjóta Palest­ínu­menn í fætur ef þeir reyndu að fara yfir aðskiln­að­ar­girð­ingu Vest­ur­bakk­ans.

Hann sagði einnig að her­menn skytu ekki á ísra­elska land­töku­menn sem köst­uðu grjóti vegna „félags­legra afleið­inga“, á meðan Palest­ínu­menn sem gerðu slíkt væru skotnir. Að hans sögn voru 42 Palest­ínu­menn sem sak­aðir voru um grjót­kast drepnir árið 2025.

Ummælin hafa vakið mikla athygli í Ísrael, meðal ann­ars meðal rót­tækra land­töku­manna á Vest­ur­bakk­anum sem hafa gagn­rýnt Bluth fyrir að vera of linur gagn­vart alþjóð­legum þrýst­ingi.

Á sama tíma greindu sam­tökin Peace Now frá því að ísra­elsk stjórn­völd hefðu úthlutað um 130 millj­ónum sikla til hópa tengdra land­töku­mönnum undir for­merkjum þess að draga úr ofbeldi. Samtökin segja fjár­mun­unum í raun ætlað að styrkja land­töku­byggðir og starf­semi hópa sem standi að baki ofbeldi gegn Palest­ínu­mönnum.

„Rík­is­stjórnin notar allar afsak­anir til að rétt­læta að dæla sífellt fleiri millj­ónum í land­nema­byggðir. Þetta er áætlun til að stækka land­nema­byggðir undir því yfir­skini að berj­ast gegn ofbeldi,“ sagði í yfir­lýs­ingu frá Peace Now. „Rík­is­stjórnin beinir veru­legum hluta fjár­mun­anna til sömu aðila og starf­semi sem nú þjóna sem helstu stuðn­ings­menn útvirkj­anna og býl­anna þar sem ofbeldið á upp­tök sín,“ bættu frjálsu félaga­sam­tökin við og skor­uðu á rík­is­stjórn­ina að stöðva fjár­veit­ing­arnar og á her­inn og lög­regl­una að stöðva ofbeld­is­verkin.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

2
Minning

Helgi Ólafsson er fall­inn frá

Helgi Ólafsson, raf­virkja­meist­ari á Rauf­ar­höfn, lést á Dval­ar­heim­il­inu Hvammi 27. októ­ber, 97 ára að aldri. Morg­un­blaðið greindi frá and­láti hans. Helgi fædd­ist á Rauf­ar­höfn 31. maí 1929 og ólst þar upp. Hann lauk sveins­prófi í raf­virkjun árið 1950 og hlaut meist­ara­rétt­indi fimm árum síðar. Hann starf­aði við raf­virkjun alla starfsæv­ina, meðal ann­ars fyrir Síld­ar­verk­smiðjur rík­is­ins og SR-mjöl, auk þess að...

Mest lesið í vikunni

Innlent

Kristrún segir ekki þörf á fastri við­veru banda­rísks her­liðs á Íslandi

„Sambandið hefur breyst síðan þá. Við berum nú meiri ábyrgð sjálf og mér finnst það hafa gengið vel“
Fólk

Garðar var sendur til Kabúl eftir árás­ina í Kjúklinga­stræti

Heimur

Þjóðerni fórn­ar­lamba skotárás­ar­innar í Kraká stað­fest

Innlent

Tveir rot­uðu mann í miðbæ Reykja­víkur

Heimur

Hand­tek­inn eftir að hafa brot­ist inn á lóð LeBron James

Heimur

Heimur

Flóð leggja flótta­manna­búðir á Gaza í rúst

Varað við yfirvofandi hörmungum á Gaza
Heimur

Lög­reglu­stjóri í Lundúnum úti­lokar ekki að fleiri konur stígi fram vegna Russell Brand

Heimur

Blóðbað á mark­aðs­torg­inu í Kraká

Heimur

Níu ára stúlka lést eftir að hafa orðið fyrir bíl á Kanarí­eyjum

Heimur

Dæmd í fang­elsi fyrir að van­rækja börn og fela þau fyrir for­eldrum

Heimur

Einmana kart­öflu­flaga olli upp­námi á net­inu