Fara í efni
Kristrún Frostadóttir
„Þegar við tókum við var gert ráð fyrir halla á ríkissjóði næstu fimm árin“
Kristrún Frostadóttir
Innlent

Dæmd fyrir að aka á gangandi mann og yfirgefa slysstað

Fólk

Áhorf­endur grunaði ekki hvernig Sölku Sól leið á meðan hún söng

Fólk

Reynslu­bolti úr frétta­heiminum stofnar eigið fyrirtæki

Heimur

Spákona varar við alheims­rafmagns­leysi í lok árs

Innlent

Börn tóku upp eigin blóðugu árás á feðga og hæddust að þeim

Innlent

Bjarni varar við týndum áratug í efnahags­málum

Fólk

Fegurðar­drottningin Karen Ósk stofnar félag um stafrænar eignir

Fólk

Við Blátún bíða bjartar stofur og skjólsæll garður

Innlent

Krefjast ákæru fyrir manndráp af gáleysi eftir bana­slysið í Grindavík

Heimur

Ferð fyrr­verandi klám­stjörnu til Sýrlands vakti deilu

Mohammed má kjósa en ekki vera áfram í landinu

Hælis­leitandi frá Gaza, sem á að vísa á brott frá landinu, fékk tilkynningu frá Þjóðskrá um að hann megi kjósa í komandi sveita­stjórnar­kosningum.

Mohammed Alkurd
Mohammed Alkurd Alkurd var í vinnu hér á landi þar til honum var meinað að vinna Mynd: Facebook

Mohammed Alkurd, palestínskur hælis­leitandi á Íslandi, segir mótsagna­kennt að hafa fengið tilkynningu um kosninga­rétt sinn á sama tíma og ákvörðun hafi þegar verið tekin um brott­vísun hans úr landi.

Í Facebook-færslu sem hefur vakið athygli skrifar Mohammed, sem er frá Gaza-borg, að honum finnist rödd sín „meira velkomin en hann sjálfur“. Hann segir sér heimilt að taka þátt í ákvörðunum um framtíð landsins í sveitar­stjórnar­kosningum, en ekki að vera áfram í landinu til að upplifa niður­stöðurnar.

„Ég get kosið í kosningunum… en ég get ekki verið áfram til að sjá niður­stöðuna,“ skrifar hann og bætir við: „Lýðræði er fallegt… nema þegar það stoppar við rétt manns til að fá að vera áfram.“

Í athugasemd við færsluna segir Mohammed að honum sé ekki heimilt að vinna og að hann upplifi sig stundum „eins og fanga utan fangelsis“. Hann segir að hann hafi ekki fengið fjárhags­aðstoð frá ríkinu síðan hann þurfti að hætta störfum í júlí á síðasta ári vegna strangari reglna.

„Það eina sem ég get gert núna er að bíða, í von um að lögfræðingurinn minn og nokkrir vinir geti fundið lausn svo ég verði ekki sendur úr landi,“ skrifar hann.

Hann lýsir jafnframt erfiðum félags­legum og fjárhags­legum aðstæðum og segist vona að mál hans verði tekið til endur­skoðunar.

Í umræðum undir færslunni bentu aðrir á að útlendingar með lögheimili á Íslandi geti kosið í sveitar­stjórnar­kosningum, þótt þeir hafi ekki íslenskan ríkis­borgararétt. Kona að nafni Drífa Björk útskýrði að slíkar reglur giltu einnig víða á Norður­löndum og að hún sjálf hefði kosið í sveitar­stjórnar­kosningum erlendis án þess að hafa ríkis­borgararétt þar.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Innlent

Unnar hótaði mæðginum og fjöl­skyldan fór í felur

Þorðu ekki að vera heima og fluttu sjö sinnum
Innlent

„Ég vil ekki að Ísland upplifi bakslag“

Fólk

Fimm svefn­herbergi og bílaplan fyrir ættar­mótið

Innlent

Það verður fjör í fána­stöngunum síðdegis

Innlent

Lögregla leitaði að vopnuðum einstak­lingum í Breið­holti

Þá var einnig tilkynnt um grunsamlegar mannaferðir

Sendi saksóknara falsað læknis­vottorð og hlaut ársfangelsi

Í sex af hverjum tíu tilvikum var morðinginn úr fjöl­skyldunni

Foreldri fór yfir strikið á körfubolta­móti tíu ára drengja

Lögregla leitar ökumanns eftir að ekið var á stúlku á Akureyri

Grunsamlegar manna­ferðir án manna