Fara í efni
Þorbjörg Sigríður Gunnlaugsdóttir
„Fer svo heim að taka upp podcast þar sem hann titlar sig Ritstjórann“
Þorbjörg Sigríður Gunnlaugsdóttir
Fólk

Björgvin Franz fagnar eins árs sam­bands­af­mæli með kærust­unni

Heimur

Kærastan fann dag­bæk­urnar og sleit sam­band­inu við David Walliams

Heimur

Hin sænska Karin hvarf áður en hún átti að sækja börnin sín

Fólk

Fjórum árum eftir að heil­inn hót­aði upp­sögn á Karl Ágúst tvö verk á sviði

Heimur

Prestur rifjar upp óþægi­lega reynslu úr æsku

Heimur

Lögregla fjar­lægði mót­mæl­anda eftir að hafa rugl­ast á áletrun á bol hans

Heimur

Raun­veru­leika­stjarnan Sheila Mangubat látin 35 ára að aldri

Innlent

Lög­reglan kölluð til eftir að hitn­aði í kol­unum við tölvu­leikja­spil

Innlent

„Sterkar vís­bend­ingar eru núna um að hryðju­verk­a­ríkið Ísrael hafi gert tölvu­árás á íslenska inn­viði“

Fólk

Af hverju getur lyktin af mak­anum verið svona ómót­stæði­leg?

17 ára dæmdur fyrir alvarlegt umferðarslys

Var einnig tek­inn með mikið magn fíkni­efna

Sæbraut
Sæbraut Myndin teng­ist frétt­inni ekki beint. Mynd: Víkingur

Hér­aðs­dómur Reykja­víkur hefur dæmt 17 ára pilt í 60 daga fang­elsi, skil­orðs­bundið til tveggja ára, fyrir alvar­legt umferð­ar­slys sem olli raf­hlaupa­hjóla­not­anda stór­felldum meiðslum auk umfangs­mik­ils fíkni­efna­laga­brots.

Málið varðar ann­ars vegar umferð­ar­slys sem átti sér stað 21. nóv­em­ber 2024 á gatna­mótum Sæbrautar og Snorra­brautar í Reykja­vík. Samkvæmt ákæru ók pilt­ur­inn bif­reið gegn rauðu ljósi og lenti á ein­stak­lingi sem var á raf­hlaupa­hjóli og ók yfir gatna­mótin á grænu göngu­ljósi.

Afleið­ingar slyss­ins voru mjög alvar­legar. Brota­þoli hlaut meðal ann­ars nef­beina­brot, áverka­loft­brjóst, mörg rif­brot, áverka á milta, brot á hluta lenda­hryggs og mjaðma­grindar, auk opinna sára á and­liti og áverka á hjarta.

Hins vegar var pilt­ur­inn einnig ákærður fyrir að hafa 9. mars 2025 haft í vörslum sínum fíkni­efni í sölu- og dreif­ing­ar­skyni. Við leit lög­reglu í bif­reið hans fund­ust meðal ann­ars yfir 216 grömm af kanna­bis­blönd­uðu efni, kókaín, ketamín, mari­júana, LSD, Alprazolam-töflur og kanna­bis­vökvi. Þá fund­ust einnig 203 þús­und krónur í reiðufé sem talið var tengj­ast fíkni­efna­sölu.

Ákærði ját­aði sök ský­laust við með­ferð máls­ins. Við ákvörðun refs­ingar leit dóm­ur­inn meðal ann­ars til þess að hann var aðeins 17 ára þegar brotin voru framin, hafði ekki áður gerst sekur um refsi­verða hátt­semi og ját­aði brotin taf­ar­laust.

Þrátt fyrir alvar­leika brot­anna taldi dóm­ur­inn rétt að fresta fulln­ustu refs­ing­ar­innar og láta hana falla niður að tveimur árum liðnum, að því gefnu að hann haldi almennt skil­orð.

Jafn­framt voru fíkni­efnin, Apple iPhone-sími og 203 þús­und krónur gerð upp­tæk. Bótakrafa hins slas­aða var skilin frá saka­mál­inu og verður tekin fyrir í sér­stöku einka­máli síðar.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

Innlent

Grun­semdir vökn­uðu þegar son­ur­inn sagð­ist fá fría ferð til Taílands

Maðurinn segist hafa verið beittur handrukkun og krafinn um að flytja fíkniefni til Íslands. Faðir hans fylgdi honum af ótta við hefndaraðgerðir.
Pólitík

Aðeins þrír róðrar áður en hjónin riftu kaup­unum

Heimur

Lík fannst í klettum á Lanzarote eftir umfangs­mikla leit

Heimur

Kyn­þokka­fyllsti maður heims afskrifar 200 millj­ónir dala í lækn­is­skuldum

Innlent

Sakar rík­is­stjórn­ina um að gera lítið úr vinnu lág­launa­fólks og for­eldra

Innlent

Stræt­is­vagn ók á litla rútu

Áreksturinn varð þegar vagninn beygði af Snorrabraut inn á Hverfisgötu í morgun. Nokkrar tafir urðu á umferð.

Lög­reglan lýsir eftir Nikulási Snorra­syni

Að minnsta kosti þrjár Palest­ínu­tengdar vef­síður eyði­lagðar í netárásinni á 1984

Tölvu­þrjót­arnir sem réð­ust á 1984 skemmdu sjö vef­síður tengdar Palest­ínu