Húsnæðis- og mannvirkjastofnun vill vekja athygli á innköllun á tilteknum barnabílstólum frá Bébé Confort sem seldir hafa verið með barnakerru sem ferðakerfi (duo) eða með barnavagni og barnakerru (trio).
Ástæða innköllunarinnar er að veikleiki hefur komið í ljós í tengingu milli burðarhandfangs og skeljar barnabílstólsins. Getur önnur hlið handfangsins losnað frá stólnum þegar haldið er á honum. Þetta veldur fallhættu og mögulegum meiðslum á barni.
Neytendur sem eiga þessa barnabílstóla eru hvattir til að hætta notkun hans tafarlaust og hafa samband við söluaðila eða framleiðanda til að fá nánari upplýsingar um úrræði.
































Athugasemdir