Fara í efni
Kristrún Frostadóttir
„Þegar við tókum við var gert ráð fyrir halla á ríkissjóði næstu fimm árin“
Kristrún Frostadóttir
Innlent

Perla Líf dæmd fyrir að aka á gangandi mann og yfirgefa slysstað

Fólk

„Ég er orðinn leiður á að vera veikur“

Fólk

Áhorf­endur grunaði ekki hvernig Sölku Sól leið á meðan hún söng

Heimur

Spákona varar við alheims­rafmagns­leysi í lok árs

Fólk

Reynslu­bolti úr frétta­heiminum stofnar eigið fyrirtæki

Innlent

Grun­semdir vöknuðu þegar sonurinn sagðist fá fría ferð til Taílands

Pólitík

Stefán Einar svarar Þorgerði með orðum Heiðu Kristínar

Heimur

Kynþokka­fyllsti maður heims afskrifar 200 milljónir dala í læknis­skuldum

Innlent

Kökuboð á Patreks­firði endaði fyrir dómi

Innlent

Sakar ríkis­stjórnina um að gera lítið úr vinnu láglauna­fólks og foreldra

Segir Einar Þorsteins hafa ráðist að sér með ógeðfelldum hætti

Þing­maðurinn vandar Samtökunum '78 ekki kveðjurnar

Snorri Másson, þingmaður Miðflokksins
Snorri Másson, þing­maður Mið­flokks­ins Mynd: Víkingur

Snorri Másson, vara­formaður Miðflokksins, segir að umræðan sem skapaðist í vetur í kjölfar ummæla hans um regnboga­fánann og flöggun hinsegin­fána í skólum hafi byggst á rang­færslum og ósann­gjarnri túlkun. Þetta kom fram í viðtali hans í þættinum Spjallið með Frosta Logasyni á Brotkasti.

Snorri hafnaði því að hann eða Miðflokkurinn væru andvíg réttindum samkyn­hneigðra og sagði að hvorki innan flokksins né í eigin málflutningi hefði verið stuðningur við að skerða jafnan rétt fólks vegna kynhneigðar. Að hans mati hafi andstæðingar hans vísvitandi snúið út úr orðum hans og látið líta svo út að hann væri að ráðast gegn réttindum hinsegin fólks.

Í viðtalinu gagnrýndi hann jafnframt Einar Þorsteinsson, oddvita Framsóknar­flokksins í borgar­stjórn Reykja­víkur, harðlega vegna ummæla sem Einar lét falla í kjölfar Kastljóssviðtals Snorra síðasta haust. „Svo eru svona týpur eins og Einar Þorsteinsson í Framsókn sem hefur ráðist að mér með ógeð­felldum hætti, svo það sé sagt, og hefur grafið undan sínum trúverðug­leika,“ sagði Snorri.

Snorri ítrekaði þó að hann hefði efasemdir um flöggun hinsegin­fána í skólum. Að hans mati hefði regnboga- og trans­fáninn þróast í pólitískt tákn sem tengdist ákveðinni hugmynda­fræði fremur en almennri samstöðu. Hann sagði markmið sitt vera að vernda börn og ungmenni sem glímdu við erfiðar félagslegar aðstæður eða kynvitundar­vanda og taldi mikilvægt að fleiri sjónarmið fengju vægi í umræðunni. Hann sagði einnig að ekki ætti að líta svo á að Samtökin '78 hefðu eitt umboð til að móta stefnu eða ráðgjöf um slík málefni.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Heimur

Bæjar­kötturinn skrópaði á athöfn

Bronsstytta af kettinum Susie var afhjúpuð í Dorchester á sunnudag. Myndhöggvarinn Ama Menec sótti innblástur í rómverska sögu bæjarins.
Pólitík

Snorri varar við því að menn geti misst stjórn á gervi­greind

Pólitík

Þingmenn fara yfir bréf frá fólki með þroska­hömlun

Heimur

Mette hafnar tengslum við hægri­öfgamenn eftir ummæli um „útskiptin miklu“

Innlent

Í sex af hverjum tíu tilvikum var morðinginn úr fjöl­skyldunni

Pólitík

Kristrún segir hallalaus fjárlög sleggjuna sem þurfi til að ná vöxtum niður

Guðrún Hafsteinsdóttir gagnrýndi bið ríkisstjórnarinnar með hagræðingu. Kristrún Frostadóttir segir tillögur væntanlegar á næstu dögum.
  • „Staðan á vissum tímum sólar­hringsins orðin nánast óbærileg“

  • Aðeins þrír róðrar áður en hjónin riftu kaupunum

  • „Af tvennu illu er skárra að böðullinn sé ekki í felulitum frjáls­lyndis“

  • Segir Ísland útiloka einmitt þá innflytj­endur sem landið þarf á að halda

  • Segir trygginga­félögin „gambla“ með fé úr bóta­sjóðum