Anna Kristjánsdóttir
„Ég lokaði af allar tilfinningar og gerðist kall.“
Anna Kristjánsdóttir
Skoðun

Strætó hefur aldrei verið verri

Fólk

Helga­fell á Sel­tjarn­ar­nesi komið á sölu

Innlent

Falsaðar ljós­myndir orðnar algengar í fast­eigna­aug­lýs­ingum

Landið

Nál fannst í hrekkja­vökusúkkulaði á Akureyri

Innlent

Gleymdi kaffi­bolla og rusli og end­aði fyrir kæru­nefnd

Fólk

Breið­holts­laug, Laug­ar­dalur og Hósiló meðal staða sem fá góð með­mæli

Innlent

Vopn komu við sögu þegar ung­lingap­artý fór úr bönd­unum

Heimur

Trúður vakti óhug við grunn­skóla

Innlent

Einn lát­inn og annar á gjör­gæslu eftir hnífstungu­árás í Breið­holti

Fólk

Sjö góðar ástæður til að baka oftar

Björn tók barn hálstaki í sundlaug í Kópavogi

Hann neit­aði sök fyrir dómi

Björn tók barn hálstaki í sundlaug í Kópavogi
Salalaug séð að utan­verðu Mynd: Skjáskot/Ja.is

Hér­aðs­dómur Reykja­ness hefur dæmt Björn Harð­ar­son í 30 daga skil­orðs­bundið fang­elsi fyrir lík­ams­árás gegn 13 ára dreng í Salalaug í Kópavogi. Dómurinn taldi jafn­framt sannað að hátt­semi hans bryti gegn barna­vernd­ar­lögum.

Samkvæmt ákæru átti atvikið sér stað 10. októ­ber 2023 þegar Björn gekk að drengnum í heitum potti, greip um háls hans með annarri hendi og ýtti honum aftur á bak þannig að háls hans sveigð­ist aftur og hann átti erfitt með að anda. Áður höfðu dreng­ur­inn og félagar hans verið með hávaða í gufu­baði sund­laug­ar­innar, sem leiddi til orða­skipta milli þeirra og Björns.

Björn neit­aði sök fyrir dómi. Hann hélt því fram að hann hefði aðeins ýtt laus­lega við drengnum eftir að hafa orðið fyrir sífelldu áreiti af hans hálfu og hafn­aði því að hafa tekið hann háls­taki eða beitt ofbeldi.

Dómurinn féllst ekki á þá skýr­ingu. Þar var vísað til sam­hljóða fram­burðar brota­þol­ans, tveggja vina hans og starfs­manns Sala­laugar, auk upp­taka úr eft­ir­lits­mynda­vélum sund­laug­ar­innar. Að mati dóms­ins sýndu upp­tök­urnar glögg­lega að Björn tók dreng­inn um háls­inn og ýtti honum aftur á bak. Fram­burður drengs­ins var tal­inn stöð­ugur, trú­verð­ugur og studdur öðrum gögnum máls­ins, en frá­sögn Björns þótti hvorki fá stoð í vitn­is­burði né mynd­bands­upp­tökum.

Við ákvörðun refs­ingar leit dóm­ur­inn meðal ann­ars til þess að dreng­ur­inn hlaut ekki var­an­legt lík­ams­tjón. Á hinn bóg­inn þótti alvar­legt að um hefði verið að ræða árás full­orð­ins manns á 13 ára barn í almenn­ings­sund­laug. Einnig kom fram að veru­legur og óút­skýrður dráttur hefði orðið á rann­sókn máls­ins, sem Birni yrði ekki kennt um. Refs­ingin var því ákveðin 30 daga fang­elsi en fulln­ustu hennar frestað til tveggja ára, haldi hann almennu skil­orði.

Þá var Birni gert að greiða föður drengs­ins, fyrir hönd sonar síns, 300 þús­und krónur í miska­bætur auk vaxta og drátt­ar­vaxta. Honum var jafn­framt gert að greiða rúm­lega 1,3 millj­ónir króna í sak­ar­kostnað, þar á meðal málsvarn­ar­laun verj­anda síns og þóknun rétt­ar­gæslu­manns brota­þol­ans.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

3
Minning

Helgi Ólafsson er fall­inn frá

Helgi Ólafsson, raf­virkja­meist­ari á Rauf­ar­höfn, lést á Dval­ar­heim­il­inu Hvammi 27. októ­ber, 97 ára að aldri. Morg­un­blaðið greindi frá and­láti hans. Helgi fædd­ist á Rauf­ar­höfn 31. maí 1929 og ólst þar upp. Hann lauk sveins­prófi í raf­virkjun árið 1950 og hlaut meist­ara­rétt­indi fimm árum síðar. Hann starf­aði við raf­virkjun alla starfsæv­ina, meðal ann­ars fyrir Síld­ar­verk­smiðjur rík­is­ins og SR-mjöl, auk þess að...
5
Slúður

Stjórn­ar­hættir Brynju

Einn und­ar­leg­asti atburður í íslensku atvinnu­lífi síð­ustu ár er brott­hvarf Harðar Arn­ar­sonar úr stóli for­stjóra Lands­virkj­unar eftir far­sæl störf í 17 ár. Hörður, sem hafði byggt upp fyr­ir­tækið Marel með mynd­ar­brag þegar hann tók við Lands­virkjun, hætti einu og hálfu ári eftir að Daði Már Krist­ó­fers­son fjár­mála­ráð­herra skipti alfarið út stjórn rík­is­orku­fyr­ir­tæk­is­ins. Stjórn­ar­for­mað­ur­inn Brynja Bald­urs­dóttir er grjót­harður kap­ít­alisti. Hún hefur...

Mest lesið í vikunni

Innlent

Hörður hót­aði lög­reglu­manni nauðgun og spark­aði í annan

„Á ég að koma og taka í þig og ríða þér í rassgatið litla tussan þín“
Innlent

Brynjar ók á bíl og far­þegi þurfti í umfangs­mikla aðgerð

Peningar

Samkaup semja um kaup á Fjarð­ar­kaupum

Fólk

„Með­höndla full­orðið fólk sem lifir enn eins og það séu börn“

Fólk

Lúxu­sein­býli á Arn­ar­nes­inu komið á sölu fyrir 340 millj­ónir

Innlent

Innlent

Einn bak við lás og slá eftir lík­ams­árás í Árbæ

Innlent

Íslenska haustið sýnir klærnar í dag

Innlent

Fluttur á bráða­mót­töku eftir að eldur kom upp í íbúð

Innlent

Rétt­ar­höld yfir Írisi „elti­hrelli“ hefj­ast á mánu­dag

Innlent

Hrekkja­vakan tekur yfir göt­urnar og lög­reglan varar öku­menn við

Innlent

Leigusal­inn kenndi utan­lands­ferð um veggjalús­ina