Anna Kristjánsdóttir
„Ég lokaði af allar tilfinningar og gerðist kall.“
Anna Kristjánsdóttir
Skoðun

Strætó hefur aldrei verið verri

Fólk

Helga­fell á Sel­tjarn­ar­nesi komið á sölu

Innlent

Falsaðar ljós­myndir orðnar algengar í fast­eigna­aug­lýs­ingum

Landið

Nál fannst í hrekkja­vökusúkkulaði á Akureyri

Innlent

Gleymdi kaffi­bolla og rusli og end­aði fyrir kæru­nefnd

Fólk

Breið­holts­laug, Laug­ar­dalur og Hósiló meðal staða sem fá góð með­mæli

Innlent

Vopn komu við sögu þegar ung­lingap­artý fór úr bönd­unum

Heimur

Trúður vakti óhug við grunn­skóla

Innlent

Einn lát­inn og annar á gjör­gæslu eftir hnífstungu­árás í Breið­holti

Fólk

Sjö góðar ástæður til að baka oftar

Fékk vinagreiða hjá almannatengli

„Ég ætla að leyfa mér að efast um að svona „greiðar“ séu rétt skráðir almennt“

Fékk vinagreiða hjá almannatengli
„Hildur Björns­dóttir borg­ar­stjóri segir að engum verk­efnum hafi verið útvi­stað í kjöl­farið, en hún hafi notið aðstoðar félaga síns við að skrifa frétta­til­kynn­ingu um málið“

Björn Leví Gunn­ars­son, tölv­un­ar­fræð­ingur og fyrr­ver­andi alþing­is­maður fyrir Pírata bendir borg­ar­stjóra Reykja­víkur á í opin­berri færslu að ekki sé hægt að fá greiða sem aðrir þurfi að borga fyrir án þess að það sé gefið upp sem styrkur.

„Stjórn­mála­menn geta ekki fengið "greiða" sem aðrir þurfa almennt að borga fyrir án þess að það sé gefið upp sem styrkur til við­kom­andi stjórn­mála­manns eða flokks sam­kvæmt lögum um fjár­mögnun stjórn­mála­sam­taka.
Ef það er eitt­hvað greitt fyrir þennan "greiða" þá þarf afsláttur að koma fram - og ef sá afsláttur er umfram það sem aðrir geta fengið, þá verður að skrá mis­mun­inn sem styrk.
Ég ætla að leyfa mér að efast um að svona "greiðar" séu rétt skráðir almennt. Því það var mjög oft sem maður heyrði af því að sumir flokkar fengu ókeypis lög­fræði­á­lit á alls konar málum.
Eins sagan sem maður heyrði var um ein­hvern ráð­gjafa sem skipti yfir í Viðreisn - og var þá spurður hvernig hann myndi fá ein­hver verk­efni.“

Engum samskiptaverkefnum útvistað

Sam­skipta­stjóra og öllum sex upp­lýs­inga­full­trúum Reykja­vík­ur­borgar var sagt upp í síð­ustu viku. Hildur Björns­dóttir borg­ar­stjóri segir að engum verk­efnum hafi verið útvi­stað í kjöl­farið, en hún hafi notið aðstoðar félaga síns við að skrifa frétta­til­kynn­ingu um málið, segir í frétt á RÚV. Full­trúar Sam­fylk­ing­ar­innar í borg­ar­ráði lögðu fram fyr­ir­spurn á fundi í gær þar sem óskað var eftir svörum um hvernig upp­lýs­inga­málum borg­ar­innar yrði háttað eftir umfangs­miklar upp­sagnir á skrif­stofu sam­skipta og við­burða. Hildur Björns­dóttir borg­ar­stjóri við­ur­kennir að sam­skipta­málin hafi verið snúin eftir að sex upp­lýs­inga­full­trúum og sam­skipta­stjóra var sagt upp. Hún hafi því leitað ráð­gjafar í kringum sig.

Ókeypis aðstoð frá varaborgarfulltrúa

Borg­ar­stjóri naut lið­sinnis Más Mássonar við skrif á frétta­til­kynn­ingu um upp­sagn­irnar. Már er annar eig­andi ráð­gjaf­ar­skrif­stof­unnar Athygli og vara­borg­ar­full­trúi Sjálf­stæð­is­flokks­ins. Hildur tekur fram að um vina­greiða hafi verið að ræða og ekk­ert verði greitt fyrir þjón­ust­una.„Ég hélt á þessum málum í meg­in­at­riðum sjálf. Ég leit­aði mér ráð­gjafar fólks í kringum mig en það voru bara vina­greiðar og ekk­ert sem greitt er fyrir,“ segir Hildur og ítrekar að engum verk­efnum hafi verið útvi­stað.Hins vegar hefur verið samið við tvo starfs­menn um að brúa bilið og vinna fram að ára­mótum á meðan unnið er að nýju fyr­ir­komu­lagi. Engir nýir upp­lýs­inga­full­trúar hafa verið ráðnir.

Framtíðarfyrirkomulag óákveðið

Að sögn Hildar hefur ekki verið tekin ákvörðun um hvort upp­lýs­inga­málum borg­ar­innar verði útvi­stað til einka­fyr­ir­tækja í fram­tíð­inni. Nýtt fyr­ir­komu­lag verði kynnt innan tíðar.Hún bendir á að skrif­stofa borg­ar­stjóra og borg­ar­rit­ara hafi í gegnum árin útvi­stað ýmsum verk­efnum tengdum ráð­gjöf og stefnu­mótun. Það hafi for­verar hennar gert og eflaust verði það gert að ein­hverju leyti aftur, en málið sé ekki komið til skoð­unar.

Mágkonan starfar hjá Athygli

Spurð að því hvort almanna­tengsla­stofan Athygli komi til greina í fram­hald­inu segir Hildur að skoða þurfi hvaða stofur hæfa hverju sinni, en engar ákvarð­anir liggi fyrir.Ólöf Skafta­dóttir, mág­kona borg­ar­stjóra, starfar hjá Athygli. Aðspurð hvort þau tengsl kunni að telj­ast tor­tryggi­leg seg­ist Hildur ekki hafa leitt hug­ann að því, enda hafi við­skipti við fyr­ir­tækið ekki verið til skoð­unar.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

3
Minning

Helgi Ólafsson er fall­inn frá

Helgi Ólafsson, raf­virkja­meist­ari á Rauf­ar­höfn, lést á Dval­ar­heim­il­inu Hvammi 27. októ­ber, 97 ára að aldri. Morg­un­blaðið greindi frá and­láti hans. Helgi fædd­ist á Rauf­ar­höfn 31. maí 1929 og ólst þar upp. Hann lauk sveins­prófi í raf­virkjun árið 1950 og hlaut meist­ara­rétt­indi fimm árum síðar. Hann starf­aði við raf­virkjun alla starfsæv­ina, meðal ann­ars fyrir Síld­ar­verk­smiðjur rík­is­ins og SR-mjöl, auk þess að...
5
Slúður

Stjórn­ar­hættir Brynju

Einn und­ar­leg­asti atburður í íslensku atvinnu­lífi síð­ustu ár er brott­hvarf Harðar Arn­ar­sonar úr stóli for­stjóra Lands­virkj­unar eftir far­sæl störf í 17 ár. Hörður, sem hafði byggt upp fyr­ir­tækið Marel með mynd­ar­brag þegar hann tók við Lands­virkjun, hætti einu og hálfu ári eftir að Daði Már Krist­ó­fers­son fjár­mála­ráð­herra skipti alfarið út stjórn rík­is­orku­fyr­ir­tæk­is­ins. Stjórn­ar­for­mað­ur­inn Brynja Bald­urs­dóttir er grjót­harður kap­ít­alisti. Hún hefur...

Mest lesið í vikunni

Innlent

Hörður hót­aði lög­reglu­manni nauðgun og spark­aði í annan

„Á ég að koma og taka í þig og ríða þér í rassgatið litla tussan þín“
Innlent

Brynjar ók á bíl og far­þegi þurfti í umfangs­mikla aðgerð

Peningar

Samkaup semja um kaup á Fjarð­ar­kaupum

Fólk

„Með­höndla full­orðið fólk sem lifir enn eins og það séu börn“

Fólk

Lúxu­sein­býli á Arn­ar­nes­inu komið á sölu fyrir 340 millj­ónir

Innlent

Innlent

Einn bak við lás og slá eftir lík­ams­árás í Árbæ

Innlent

Íslenska haustið sýnir klærnar í dag

Innlent

Fluttur á bráða­mót­töku eftir að eldur kom upp í íbúð

Innlent

Rétt­ar­höld yfir Írisi „elti­hrelli“ hefj­ast á mánu­dag

Innlent

Hrekkja­vakan tekur yfir göt­urnar og lög­reglan varar öku­menn við

Innlent

Leigusal­inn kenndi utan­lands­ferð um veggjalús­ina