Anna Kristjánsdóttir
„Ég lokaði af allar tilfinningar og gerðist kall.“
Anna Kristjánsdóttir
Skoðun

Strætó hefur aldrei verið verri

Fólk

Helga­fell á Sel­tjarn­ar­nesi komið á sölu

Innlent

Falsaðar ljós­myndir orðnar algengar í fast­eigna­aug­lýs­ingum

Landið

Nál fannst í hrekkja­vökusúkkulaði á Akureyri

Innlent

Gleymdi kaffi­bolla og rusli og end­aði fyrir kæru­nefnd

Fólk

Breið­holts­laug, Laug­ar­dalur og Hósiló meðal staða sem fá góð með­mæli

Innlent

Vopn komu við sögu þegar ung­lingap­artý fór úr bönd­unum

Heimur

Trúður vakti óhug við grunn­skóla

Innlent

Einn lát­inn og annar á gjör­gæslu eftir hnífstungu­árás í Breið­holti

Fólk

Sjö góðar ástæður til að baka oftar

Hafsteinn dæmdur fyrir að hóta ítrekað að myrða lögregluþjón

Hlaut dóm fyrir lík­ams­árás árið 2024

Hafsteinn dæmdur fyrir að hóta ítrekað að myrða lögregluþjón
Hér­að­dómur Reykja­víkur sá um málið Mynd: Brynhildur Jensdóttir

Hér­aðs­dómur Reykja­víkur hefur dæmt Hafstein Þór Harð­ar­son í þriggja mán­aða óskil­orðs­bundið fang­elsi fyrir að hafa ítrekað hótað lög­reglu­manni líf­láti þegar lög­reglu­mað­ur­inn var við skyldu­störf á heim­ili hans í Reykja­vík að kvöldi 9. júlí 2025.

Málið var tekið til dóms án við­veru ákærða, sem mætti ekki við þing­fest­ingu þrátt fyrir að hafa verið lög­lega boð­aður.

Dómurinn byggir á rann­sókn­ar­gögnum máls­ins og taldi hér­aðs­dómur sannað að Haf­steinn hefði gerst sekur um að hafa ítrekað hótað lög­reglu­mann­inum líf­láti.

Við ákvörðun refs­ingar leit dóm­ur­inn meðal ann­ars til saka­fer­ils ákærða. Samkvæmt saka­vott­orði hafði hann áður hlotið refs­ingu fjórum sinnum. Árin 2019 og 2022 var hann dæmdur til sekta og svipt­ingar öku­réttar vegna umferð­ar­laga­brota. Þá kemur fram í dómnum að hann hafi árið 2020 hlotið dóm á Spáni fyrir lík­ams­meið­ingar, þar sem hann var sviptur skot­vopna­leyfi í tvö ár og dæmdur til 40 daga sam­fé­lags­þjón­ustu.

Í apríl 2024 hlaut Haf­steinn tveggja mán­aða skil­orðs­bund­inn fang­els­is­dóm fyrir lík­ams­árás og umferð­ar­laga­brot. Með brot­inu sem nú var dæmt fyrir taldi hér­aðs­dómur að hann hefði rofið það skil­orð. Því var ákveðið að dæma hann til sam­eig­in­legrar refs­ingar sam­kvæmt ákvæðum almennra hegn­ing­ar­laga.

Nið­ur­staða dóms­ins var sú að Haf­steinn Þór Harð­ar­son skyldi sæta þriggja mán­aða fang­elsi. Dómurinn taldi ekki rétt að skil­orðs­binda refs­ing­una og eng­inn sak­ar­kostn­aður féll til við með­ferð máls­ins.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

3
Minning

Helgi Ólafsson er fall­inn frá

Helgi Ólafsson, raf­virkja­meist­ari á Rauf­ar­höfn, lést á Dval­ar­heim­il­inu Hvammi 27. októ­ber, 97 ára að aldri. Morg­un­blaðið greindi frá and­láti hans. Helgi fædd­ist á Rauf­ar­höfn 31. maí 1929 og ólst þar upp. Hann lauk sveins­prófi í raf­virkjun árið 1950 og hlaut meist­ara­rétt­indi fimm árum síðar. Hann starf­aði við raf­virkjun alla starfsæv­ina, meðal ann­ars fyrir Síld­ar­verk­smiðjur rík­is­ins og SR-mjöl, auk þess að...
5
Slúður

Stjórn­ar­hættir Brynju

Einn und­ar­leg­asti atburður í íslensku atvinnu­lífi síð­ustu ár er brott­hvarf Harðar Arn­ar­sonar úr stóli for­stjóra Lands­virkj­unar eftir far­sæl störf í 17 ár. Hörður, sem hafði byggt upp fyr­ir­tækið Marel með mynd­ar­brag þegar hann tók við Lands­virkjun, hætti einu og hálfu ári eftir að Daði Már Krist­ó­fers­son fjár­mála­ráð­herra skipti alfarið út stjórn rík­is­orku­fyr­ir­tæk­is­ins. Stjórn­ar­for­mað­ur­inn Brynja Bald­urs­dóttir er grjót­harður kap­ít­alisti. Hún hefur...

Mest lesið í vikunni

Innlent

Fertugur maður ákærður fyrir 267 kanna­bis­plöntur í bíl

Plönturnar fundust í tveimur gróðurkössum í farangursrýminu
Innlent

Hörður hót­aði lög­reglu­manni nauðgun og spark­aði í annan

Innlent

Brynjar ók á bíl og far­þegi þurfti í umfangs­mikla aðgerð

Peningar

Samkaup semja um kaup á Fjarð­ar­kaupum

Fólk

„Með­höndla full­orðið fólk sem lifir enn eins og það séu börn“

Innlent

Innlent

Einn bak við lás og slá eftir lík­ams­árás í Árbæ

Innlent

Íslenska haustið sýnir klærnar í dag

Innlent

Fluttur á bráða­mót­töku eftir að eldur kom upp í íbúð

Innlent

Rétt­ar­höld yfir Írisi „elti­hrelli“ hefj­ast á mánu­dag

Innlent

Hrekkja­vakan tekur yfir göt­urnar og lög­reglan varar öku­menn við

Innlent

Leigusal­inn kenndi utan­lands­ferð um veggjalús­ina