Anna Kristjánsdóttir
„Ég lokaði af allar tilfinningar og gerðist kall.“
Anna Kristjánsdóttir
Skoðun

Strætó hefur aldrei verið verri

Fólk

Helga­fell á Sel­tjarn­ar­nesi komið á sölu

Innlent

Falsaðar ljós­myndir orðnar algengar í fast­eigna­aug­lýs­ingum

Landið

Nál fannst í hrekkja­vökusúkkulaði á Akureyri

Fólk

Breið­holts­laug, Laug­ar­dalur og Hósiló meðal staða sem fá góð með­mæli

Innlent

Gleymdi kaffi­bolla og rusli og end­aði fyrir kæru­nefnd

Innlent

Vopn komu við sögu þegar ung­lingap­artý fór úr bönd­unum

Heimur

Trúður vakti óhug við grunn­skóla

Innlent

Einn lát­inn og annar á gjör­gæslu eftir hnífstungu­árás í Breið­holti

Fólk

Sjö góðar ástæður til að baka oftar

Rektor HÍ svarar Hannesi af hörku

„Ég kann­ast ekki við að nokkur hafi gert það annar en ein­hverjar hug­veitur sem Hannes Hólm­steinn heldur úti.“

Rektor HÍ svarar Hannesi af hörku
Silja Bára Ómars­dóttir Er rektor Háskóla Íslands Mynd: Háskóli Íslands

Silja Bára Ómars­dóttir, rektor Háskóla Íslands, segir ákvörðun um að aft­ur­kalla bókun á hátíð­ar­sal skól­ans vegna fyr­ir­hug­aðs fyr­ir­lest­urs um Ísland og Evr­ópu­sam­bandið hafa byggst á því hvernig við­burð­ur­inn var aug­lýstur. Hópnum hefur einnig verið boðin notkun af öðrum sal.

Hannes Hólm­steinn Giss­ur­ar­son og Ragnar Árnason, fyrr­ver­andi pró­fess­orar við Háskóla Íslands, hafa kraf­ist opin­ber­lega í bréfi þess að skól­inn standi við leigu­samn­ing vegna fyr­ir­lest­urs Dr. Carl Baudenbacher, fyrr­ver­andi for­seta EFTA-dóm­stóls­ins.

Silja Bára segir við mbl.is að aug­lýs­ingar um fund­inn hafi gefið til kynna að sam­tökin Áfram Ísland stæðu fyrir honum. Ákvörð­unin sner­ist ekki um hver ætti að flytja erindið heldur hver stæði að bókun sal­ar­ins.

Hannes og Ragnar hafna þeirri túlkun og segja Rann­sókn­ar­setur um stjórn­mál og efna­hags­mál standa fyrir fund­inum. Í aug­lýs­ingu sem birt­ist í Morg­un­blað­inu 6. ágúst hafi fund­ur­inn verið í nafni þess, en merki Áfram Íslands og Almenna bóka­fé­lags­ins jafn­framt birst.

Í bréf­inu benda Hannes og Ragnar á að lengi hafi tíðkast að utan­að­kom­andi sam­tök og aðilar eigi sam­starf við stofn­anir innan Háskóla Íslands um funda­hald og kynn­ingu við­burða. Segjast þeir ekki vita til þess að athuga­semdir hafi áður verið gerðar við slíkt fyr­ir­komu­lag.

„Ég kann­ast ekki við að nokkur hafi gert það annar en ein­hverjar hug­veitur sem Hannes Hólm­steinn heldur úti. Dæmi sem hann tók í pósti sem ég sá frá honum voru allt við­burðir sem rann­sókn­ar­setur sem hann stendur fyrir aug­lýsa við­burði sem eru haldnir innan háskól­ans. Það eru ekki ótengdir aðilar úti í bæ sem taka það upp hjá sér að aug­lýsa við­burði sem aðrir standa fyrir,“ segir Silja.

Þá hefur lög­fræði­stofa Dr. Carl Baudenbacher sjálf greint frá því á vef­síðu sinni að hóp­ur­inn Áfram Ísland hafi bókað hann til að tala á fund­inum

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

3
Minning

Helgi Ólafsson er fall­inn frá

Helgi Ólafsson, raf­virkja­meist­ari á Rauf­ar­höfn, lést á Dval­ar­heim­il­inu Hvammi 27. októ­ber, 97 ára að aldri. Morg­un­blaðið greindi frá and­láti hans. Helgi fædd­ist á Rauf­ar­höfn 31. maí 1929 og ólst þar upp. Hann lauk sveins­prófi í raf­virkjun árið 1950 og hlaut meist­ara­rétt­indi fimm árum síðar. Hann starf­aði við raf­virkjun alla starfsæv­ina, meðal ann­ars fyrir Síld­ar­verk­smiðjur rík­is­ins og SR-mjöl, auk þess að...
5
Slúður

Stjórn­ar­hættir Brynju

Einn und­ar­leg­asti atburður í íslensku atvinnu­lífi síð­ustu ár er brott­hvarf Harðar Arn­ar­sonar úr stóli for­stjóra Lands­virkj­unar eftir far­sæl störf í 17 ár. Hörður, sem hafði byggt upp fyr­ir­tækið Marel með mynd­ar­brag þegar hann tók við Lands­virkjun, hætti einu og hálfu ári eftir að Daði Már Krist­ó­fers­son fjár­mála­ráð­herra skipti alfarið út stjórn rík­is­orku­fyr­ir­tæk­is­ins. Stjórn­ar­for­mað­ur­inn Brynja Bald­urs­dóttir er grjót­harður kap­ít­alisti. Hún hefur...

Mest lesið í vikunni

Innlent

Einn bak við lás og slá eftir lík­ams­árás í Árbæ

Heimur

Bauð inter­net­inu í brúð­kaupið og allt fór á annan end­ann

Myndband
Heimur

Dádýr skall á konu og braust inn í þvotta­hús

Innlent

Fluttur á bráða­mót­töku eftir að eldur kom upp í íbúð

Menning

Laxness slær í gegn hjá The Guardian

Innlent

Innlent

Rétt­ar­höld yfir Írisi „elti­hrelli“ hefj­ast á mánu­dag

Ákæran er 17 blaðsíður og ákæruliðirnir 68
Innlent

Heimir Már biðst afsök­unar á ummælum um kjarn­orku­vopn

Innlent

Hrekkja­vakan tekur yfir göt­urnar og lög­reglan varar öku­menn við

Innlent

Leigusal­inn kenndi utan­lands­ferð um veggjalús­ina

Innlent

Íslenska haustið sýnir klærnar í dag

Innlent

Hrekkja­vöku­skemmtun fór úr bönd­unum í Kópavogi