Matvælastofnun varar neytendur sem hafa ofnæmi eða óþol fyrir soja við einni lotu af Krónu pylsum. Ein lota af vörunni fór á markað án innihaldslista. Varan inniheldur sojaprótein sem kemur ekki fram á umbúðum hennar. Kjarnafæði Norðlenska, í samráði við Krónuna og Matvælastofnun, hefur innkallað vöruna.
Neytendur sem hafa ofnæmi eða óþol fyrir soja skulu ekki neyta vörunnar heldur farga eða skila í verslun til að fá endurgreiðslu.

Mynd: Aðsend





















Athugasemdir