Hið árlega Tekjublað Frjálsrar verslunar er komið út og líkt og fyrri ár ríkir jafnan töluverð spenna um hverjir rata á lista blaðsins og hvaða tekjur þeir hafa haft á liðnu ári.
Tekjublaðið hefur um árabil vakið mikla athygli enda birtast þar upplýsingar um útsvarsskyldar tekjur fjölmargra þjóðþekktra Íslendinga úr atvinnulífi, menningu, fjölmiðlum, íþróttum og öðrum sviðum samfélagsins.
Mannlíf hefur af þessu tilefni rýnt í Tekjublaðið og tekið saman tíu þekkta einstaklinga sem eiga það sameiginlegt að vera á listanum og bera dýranöfn.
Hér að neðan má sjá nokkra dýranafna Íslendingar urðu fyrir valinu og hvaða tekjur þeir voru með á árinu 2025.
Rétt er að árétta að þær fjárhæðir sem þar koma fram byggjast á útsvarsskyldum tekjum einstaklinga árið 2025 og endurspegla því ekki endilega föst laun þeirra.
Við útreikningana er miðað við útsvarsstofn samkvæmt álagningarskrá. Til teknanna geta meðal annars talist greiðslur fyrir nefndarsetu og önnur aukastörf, auk hlunninda sem tengjast kaupréttarsamningum. Þá geta einskiptisgreiðslur, svo sem vegna úttektar á séreignarsparnaði hjá lífeyrissjóði, einnig haft áhrif á heildarfjárhæðina.
Fjármagnstekjur eru hins vegar ekki teknar með í útreikningunum. Þar undir falla meðal annars vaxtatekjur, arðgreiðslur og tekjur af sölu hlutabréfa


























Athugasemdir