Nokkuð var um verkefni hjá lögreglunni á höfuðborgarsvæðinu í gærkvöldi og í nótt. Meðal annars var tilkynnt um ungmenni sem voru að skjóta upp flugeldum í póstnúmeri 109 í Reykjavík.
Þá barst lögreglu tilkynning um slys á rafskútu í póstnúmeri 110. Ökumaður rafskútunnar var fluttur á slysadeild til frekari aðhlynningar. Ekki liggja fyrir nánari upplýsingar um líðan hans eða tildrög slyssins.
Lögreglumenn sinntu jafnframt nokkrum útköllum vegna hávaða frá heimahúsum á höfuðborgarsvæðinu.
Auk þess hafði lögregla afskipti af nokkrum ökumönnum vegna hefðbundinna umferðarlagabrota.
Að öðru leyti virðist nóttin hafa verið fremur tíðindalítil hjá lögreglunni á höfuðborgarsvæðinu samkvæmt dagbók hennar.































Athugasemdir