Anna Kristjánsdóttir
„Ég lokaði af allar tilfinningar og gerðist kall.“
Anna Kristjánsdóttir
Skoðun

Strætó hefur aldrei verið verri

Fólk

Helga­fell á Sel­tjarn­ar­nesi komið á sölu

Innlent

Falsaðar ljós­myndir orðnar algengar í fast­eigna­aug­lýs­ingum

Landið

Nál fannst í hrekkja­vökusúkkulaði á Akureyri

Fólk

Breið­holts­laug, Laug­ar­dalur og Hósiló meðal staða sem fá góð með­mæli

Innlent

Gleymdi kaffi­bolla og rusli og end­aði fyrir kæru­nefnd

Innlent

Vopn komu við sögu þegar ung­lingap­artý fór úr bönd­unum

Heimur

Trúður vakti óhug við grunn­skóla

Innlent

Einn lát­inn og annar á gjör­gæslu eftir hnífstungu­árás í Breið­holti

Fólk

Sjö góðar ástæður til að baka oftar

Harðar deilur um sniðgöngu íslenskra vara

„Nánast borg­ara­leg skylda okkar að snið­ganga þau“

Harðar deilur um sniðgöngu íslenskra vara
Takast á um snið­göngu á íslenskum vörum og stöðu stjórn­mál­anna Mynd: Facebook/Klemens Olafur Thrastarson

Vegið að „útflutn­ings­el­ít­unni“ og stjórn­mála­menn­ingu líkt við MAGA-hreyf­ing­una

Snarpar deilur hafa skap­ast innan hóps jásinna á sam­fé­lags­miðlum um það hvort grípa eigi til snið­göngu á íslenskum vörum í kjöl­far nýaf­stað­inna atburða. Klemens Ólafur Þrast­ar­son, sem um ára­bil starf­aði sem póli­tískur ráð­gjafi sendi­herra Evr­ópu­sam­bands­ins á Íslandi og Hekla Rán Krist­jáns­dóttir takast á um áhrifa­mátt neyt­enda­valds­ins og þá þróun sem orðið hefur á íslenskri stjórn­mála­menn­ingu.

Borgaraleg skylda að sýna andstöðu

Klemens Ólafur Þrast­ar­son lýsir því yfir í opin­berri færslu inni í hópnum Brúin til Evrópu - Samtal um ESB o.fl. að hann telji það nán­ast „borg­ara­lega skyldu“ almenn­ings að sýna hags­muna­sam­tökum atvinnu­lífs­ins skýra mót­spyrnu. Vísar hann þar sér­stak­lega til Bænda­sam­tak­anna, Samtaka fyr­ir­tækja í sjáv­ar­út­vegi (SFS), Samtaka atvinnu­lífs­ins (SA) og þess sem hann kallar „útflutn­ings­el­ít­una“.

Klemens sakar þessa aðila um að hafa „logið yfir okkur áfram­hald­andi órétt­læti“ og telur að almenn­ingur verði að bregð­ast við. „Ein­faldasta leiðin er að kaupa ekki vörur af þeim og kjósa rétt,“ segir Klemens, en tekur fram að honum sé „síður en svo kapps­mál að snið­ganga fátæka bændur.“ Hann lýsir jafn­framt eftir betri hug­myndum til að koma skila­boð­unum á fram­færi.

Umfangið of víðtækt og Íslendingar óduglegir að sniðganga

Hekla Rán Krist­jáns­dóttir bendir á í athuga­semd við færsl­una að vanda­málið sé mun stærra og flókn­ara ef ráð­ast á í snið­göngu. Hún bendir á að ekki sé hægt að skella öllum bændum undir sama hatt þar sem ekki allir hafi verið á sama máli.

Ef fara ætti út í raun­veru­lega snið­göngu þyrfti hún að vera mun víð­tæk­ari og ná til stórra útgerð­ar­fyr­ir­tækja á borð við Samherja, Síld­ar­vinnsl­una, Ísfé­lagið og Þorbjörn, auk Kaup­fé­lags Skag­firð­inga og versl­un­ar­keðja. Hún nefnir sem dæmi að hún reyni sjálf að kaupa vörur frá Örnu í stað Mjólk­ur­sam­söl­unnar (MS) eftir að sú síð­ar­nefnda varð upp­vís að brotum á sam­keppn­is­lögum.

Hún dregur hins vegar efni í efa að slíkt skili árangri hér á landi. „Við Íslend­ingar höfum seint verið dug­leg að taka okkur saman í að mót­mæla á svona hátt með því að snið­ganga ákveðnar vörur,“ segir Hekla Rán.

Áhyggjur af „MAGA-hreyfingu“ á Íslandi

Hekla Rán dregur einnig upp stærra sam­hengi og lýsir furðu sinni á því hvernig stjórn­völd fylgi sumum þjóð­ar­at­kvæða­greiðslum eftir en öðrum ekki, og vísar þar til þjóð­ar­at­kvæða­greiðsl­unnar um nýju stjórn­ar­skrána sem stærsti hluti þjóð­ar­innar vildi fá en var aldrei lög­fest.

Hún lýsir yfir þungum áhyggjum af þróun mála á Íslandi og segir nið­ur­stöð­una nú lit­ast af hræðslu­á­róðri og lygum. „Sorglegt að við erum komin þangað sem þjóð að það er ekki farið lengur eftir rökum sem vitna í sann­leika og það er í stað­inn komin ákveðin MAGA hreyf­ing hér á landi sem er mjög ómál­efna­leg,“ segir Hekla Rán að lokum og spyr hvernig hægt sé að koma í veg fyrir slíka þróun í fram­tíð­inni.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

3
Minning

Helgi Ólafsson er fall­inn frá

Helgi Ólafsson, raf­virkja­meist­ari á Rauf­ar­höfn, lést á Dval­ar­heim­il­inu Hvammi 27. októ­ber, 97 ára að aldri. Morg­un­blaðið greindi frá and­láti hans. Helgi fædd­ist á Rauf­ar­höfn 31. maí 1929 og ólst þar upp. Hann lauk sveins­prófi í raf­virkjun árið 1950 og hlaut meist­ara­rétt­indi fimm árum síðar. Hann starf­aði við raf­virkjun alla starfsæv­ina, meðal ann­ars fyrir Síld­ar­verk­smiðjur rík­is­ins og SR-mjöl, auk þess að...
5
Slúður

Stjórn­ar­hættir Brynju

Einn und­ar­leg­asti atburður í íslensku atvinnu­lífi síð­ustu ár er brott­hvarf Harðar Arn­ar­sonar úr stóli for­stjóra Lands­virkj­unar eftir far­sæl störf í 17 ár. Hörður, sem hafði byggt upp fyr­ir­tækið Marel með mynd­ar­brag þegar hann tók við Lands­virkjun, hætti einu og hálfu ári eftir að Daði Már Krist­ó­fers­son fjár­mála­ráð­herra skipti alfarið út stjórn rík­is­orku­fyr­ir­tæk­is­ins. Stjórn­ar­for­mað­ur­inn Brynja Bald­urs­dóttir er grjót­harður kap­ít­alisti. Hún hefur...

Mest lesið í vikunni

Fólk

„Með­höndla full­orðið fólk sem lifir enn eins og það séu börn“

Geðlæknirinn Haraldur lætur allt flakka
Fólk

Lúxu­sein­býli á Arn­ar­nes­inu komið á sölu fyrir 340 millj­ónir

Innlent

Einn bak við lás og slá eftir lík­ams­árás í Árbæ

Heimur

Bauð inter­net­inu í brúð­kaupið og allt fór á annan end­ann

Myndband
Heimur

Dádýr skall á konu og braust inn í þvotta­hús

Innlent

Innlent

Fluttur á bráða­mót­töku eftir að eldur kom upp í íbúð

Innlent

Hrekkja­vöku­skemmtun fór úr bönd­unum í Kópavogi

Innlent

Rétt­ar­höld yfir Írisi „elti­hrelli“ hefj­ast á mánu­dag

Innlent

Hrekkja­vakan tekur yfir göt­urnar og lög­reglan varar öku­menn við

Innlent

Leigusal­inn kenndi utan­lands­ferð um veggjalús­ina

Innlent

Íslenska haustið sýnir klærnar í dag