Anna Kristjánsdóttir
„Ég lokaði af allar tilfinningar og gerðist kall.“
Anna Kristjánsdóttir
Skoðun

Strætó hefur aldrei verið verri

Fólk

Helga­fell á Sel­tjarn­ar­nesi komið á sölu

Innlent

Falsaðar ljós­myndir orðnar algengar í fast­eigna­aug­lýs­ingum

Landið

Nál fannst í hrekkja­vökusúkkulaði á Akureyri

Fólk

Breið­holts­laug, Laug­ar­dalur og Hósiló meðal staða sem fá góð með­mæli

Innlent

Gleymdi kaffi­bolla og rusli og end­aði fyrir kæru­nefnd

Innlent

Vopn komu við sögu þegar ung­lingap­artý fór úr bönd­unum

Heimur

Trúður vakti óhug við grunn­skóla

Innlent

Einn lát­inn og annar á gjör­gæslu eftir hnífstungu­árás í Breið­holti

Fólk

Sjö góðar ástæður til að baka oftar

Íslenski fjárhundurinn Kátur var nær dauða en lífi

Í lífs­hættu vegna nikótín­púða

Íslenski fjárhundurinn Kátur var nær dauða en lífi
Tvísýnt með líf Káts eftir heim­sókn í lok­aðan garð Mynd: Skjáskot

Hundar geta veikst alvar­lega og jafn­vel dáið eftir að hafa inn­byrt nikótín­púða sem hent hefur verið á víða­vangi. Íslenski fjár­hund­ur­inn Kátur var hætt kom­inn á dög­unum eftir að hafa étið slíkan púða, en dýra­læknar vara sterkt við eitr­un­ar­á­hrifum nikótíns og sætu­efna á borð við xylitol.

Eigandi Káts, Hafdís Brynja Guð­munds­dóttir, segir í frétt á RÚV að atvikið hafa átt sér stað þegar fjöl­skyldan var í heim­sókn þar sem hund­ur­inn fékk að hlaupa um í lok­uðum garði. Garð­ur­inn liggur að gang­stétt þar sem algengt er að fólk fleygi not­uðum púðum. Þegar fjöl­skyldan bjóst til brott­farar fór að bera á óvenju­legri hegðun hjá Káti.

Skömmu síðar versn­aði líðan hans til muna. Hann átti erfitt með að standa í fæt­urna og byrj­aði að æla. Fjöl­skyldan átt­aði sig fljótt á alvar­leika máls­ins og flýtti sér með hann á dýra­spít­ala, þar sem dælt var upp úr honum. Hafdís segir að það hafi verið tví­sýnt með líf hunds­ins og ljóst sé að hann hefði dáið ef hann hefði ekki fengið taf­ar­lausa lækn­is­hjálp. Kátur náði að end­ingu fullri heilsu en eig­endur hans eru nú mun meira á varð­bergi þar sem nikótín­púðar sjást víða á förnum vegi.

Halldóra Hrund Guð­munds­dóttir, dýra­læknir á Dýra­spít­al­anum í Víðidal, stað­festi við RÚV að reglu­lega komi til­felli til þeirra þar sem grunur leikur á nikótíneitrun hjá hundum, og grunur sé um að dýr hafi dáið af þeim sökum. Hún útskýrir að hundar hafi mun minna þol fyrir nikó­tíni en fólk. Eitrunin lýsir sér fyrst með upp­köstum og nið­ur­gangi en getur fljótt þró­ast yfir í alvar­legan skjálfta og krampa.

Dýra­lækn­ir­inn bendir jafn­framt á að nikó­tínið sé ekki eina hættan sem fylgir púð­unum. Þeir inni­halda oft gerví­sætu­efnið xylitol, sem er bráð­hættu­legt hundum og getur valdið lífs­hættu­legu blóð­syk­ur­s­falli og lifr­ar­skemmdum. Halldóra skorar á almenn­ing að sýna ábyrgð og hætta að henda púð­unum á víða­vangi, enda sé um stór­hættu­legan úrgang fyrir dýra­líf að ræða.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

3
Minning

Helgi Ólafsson er fall­inn frá

Helgi Ólafsson, raf­virkja­meist­ari á Rauf­ar­höfn, lést á Dval­ar­heim­il­inu Hvammi 27. októ­ber, 97 ára að aldri. Morg­un­blaðið greindi frá and­láti hans. Helgi fædd­ist á Rauf­ar­höfn 31. maí 1929 og ólst þar upp. Hann lauk sveins­prófi í raf­virkjun árið 1950 og hlaut meist­ara­rétt­indi fimm árum síðar. Hann starf­aði við raf­virkjun alla starfsæv­ina, meðal ann­ars fyrir Síld­ar­verk­smiðjur rík­is­ins og SR-mjöl, auk þess að...
5
Slúður

Stjórn­ar­hættir Brynju

Einn und­ar­leg­asti atburður í íslensku atvinnu­lífi síð­ustu ár er brott­hvarf Harðar Arn­ar­sonar úr stóli for­stjóra Lands­virkj­unar eftir far­sæl störf í 17 ár. Hörður, sem hafði byggt upp fyr­ir­tækið Marel með mynd­ar­brag þegar hann tók við Lands­virkjun, hætti einu og hálfu ári eftir að Daði Már Krist­ó­fers­son fjár­mála­ráð­herra skipti alfarið út stjórn rík­is­orku­fyr­ir­tæk­is­ins. Stjórn­ar­for­mað­ur­inn Brynja Bald­urs­dóttir er grjót­harður kap­ít­alisti. Hún hefur...

Mest lesið í vikunni

Innlent

Einn bak við lás og slá eftir lík­ams­árás í Árbæ

Heimur

Bauð inter­net­inu í brúð­kaupið og allt fór á annan end­ann

Myndband
Heimur

Dádýr skall á konu og braust inn í þvotta­hús

Innlent

Fluttur á bráða­mót­töku eftir að eldur kom upp í íbúð

Menning

Laxness slær í gegn hjá The Guardian

Innlent

Innlent

Rétt­ar­höld yfir Írisi „elti­hrelli“ hefj­ast á mánu­dag

Ákæran er 17 blaðsíður og ákæruliðirnir 68
Innlent

Heimir Már biðst afsök­unar á ummælum um kjarn­orku­vopn

Innlent

Hrekkja­vakan tekur yfir göt­urnar og lög­reglan varar öku­menn við

Innlent

Leigusal­inn kenndi utan­lands­ferð um veggjalús­ina

Innlent

Íslenska haustið sýnir klærnar í dag

Innlent

Hrekkja­vöku­skemmtun fór úr bönd­unum í Kópavogi