Anna Kristjánsdóttir
„Ég lokaði af allar tilfinningar og gerðist kall.“
Anna Kristjánsdóttir
Innlent

Neyt­endur beðnir um að farga jógúrt frá Örnu

Innlent

Hörður hót­aði lög­reglu­manni nauðgun og spark­aði í annan

Skoðun

Strætó hefur aldrei verið verri

Innlent

Rað­kúk­ari Ragnars snéri aftur á Hrekkja­vöku

Innlent

Falsaðar ljós­myndir orðnar algengar í fast­eigna­aug­lýs­ingum

Fólk

„Með­höndla full­orðið fólk sem lifir enn eins og það séu börn“

Fólk

Lúxu­sein­býli á Arn­ar­nes­inu komið á sölu fyrir 340 millj­ónir

Innlent

Jódís spyr hvar mót­mæl­end­urnir séu nú

Innlent

Erlendur maður grip­inn við skjala­fölsun við Hvera­gerði

Landið

Nál fannst í hrekkja­vökusúkkulaði á Akureyri

Hnífur Hildar ennþá á lofti

Hildur segir stemn­ing­una í Ráð­hús­inu engu að síður almennt góða

Hnífur Hildar ennþá á lofti
Hildur Björns­dóttir Er borg­ar­stjóri Reykja­víkur Mynd: BHJ

Frekari nið­ur­skurður er fram undan hjá Reykja­vík­ur­borg og telur Hildur Björns­dóttir borg­ar­stjóri mjög lík­legt að upp­sagnir verði á fleiri sviðum borg­ar­innar. Engar end­an­legar ákvarð­anir hafi þó verið teknar en ljóst er að nið­ur­skurð­ar­hnífur borg­ar­stjóra er ennþá á lofti.

Þetta kemur fram í við­tali við Hildi á Vísi. Þar segir hún hag­ræð­ing­ar­hóp borg­ar­innar halda áfram störfum og að næstu svið séu nú tekin til skoð­unar. Samhliða sé unnið að fjár­hags­á­ætlun Reykja­vík­ur­borgar fyrir næsta ár, sem verður kynnt í byrjun nóv­em­ber.

„Við erum auð­vitað að skoða til­lögur með sviðs­stjór­unum okkar að því hvar við getum sparað og dregið saman seglin, þannig að já, það er meira fram undan,“ segir Hildur í sam­tali við Vísi.

Aðspurð hvort upp­sagnir verði á mörgum sviðum svarar hún að það sé „mjög lík­legt“. Grein­ing­ar­vinna standi þó enn yfir og engar ákvarð­anir liggi fyrir. Hag­ræð­ing geti einnig falist í því að verk­efni verði lögð niður eða rekstur end­ur­skipu­lagður með öðrum hætti.

Hildur nefnir jafn­framt veik­indi starfs­fólks sem eitt af stærri við­fangs­efnum í rekstri borg­ar­innar. Veik­inda­hlut­fall sé mjög hátt og segir hún kostnað Reykja­vík­ur­borgar vegna veik­inda hafa numið hátt í sjö millj­örðum króna á ári. Við því þurfi að bregð­ast.

Í við­tal­inu er Hildur einnig spurð út í and­rúms­loftið í Ráð­hús­inu í ljósi fyr­ir­hug­aðrar hag­ræð­ingar. Hún seg­ist finna til með starfs­fólki enda geti óvissa um störf verið erfið.

„Það er auð­vitað ekki nota­legt að vita að það sé verið að hræra í pott­unum og velta við hverjum steini og auð­vitað verður fólk óör­uggt með sitt,“ segir Hildur. Mark­miðið sé að vinna hratt en vandað og taka ákvarð­anir fljótt þegar for­sendur þeirra liggi fyrir svo starfs­fólk fái vissu um stöðu sína.

Hildur segir stemn­ing­una í Ráð­hús­inu engu að síður almennt góða og að vel hafi verið tekið á móti henni. Starfs­fólk vinni hratt að breyt­ingum og mikið af góðu fólki starfi hjá borg­inni.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

3
Minning

Helgi Ólafsson er fall­inn frá

Helgi Ólafsson, raf­virkja­meist­ari á Rauf­ar­höfn, lést á Dval­ar­heim­il­inu Hvammi 27. októ­ber, 97 ára að aldri. Morg­un­blaðið greindi frá and­láti hans. Helgi fædd­ist á Rauf­ar­höfn 31. maí 1929 og ólst þar upp. Hann lauk sveins­prófi í raf­virkjun árið 1950 og hlaut meist­ara­rétt­indi fimm árum síðar. Hann starf­aði við raf­virkjun alla starfsæv­ina, meðal ann­ars fyrir Síld­ar­verk­smiðjur rík­is­ins og SR-mjöl, auk þess að...
6
Slúður

Stjórn­ar­hættir Brynju

Einn und­ar­leg­asti atburður í íslensku atvinnu­lífi síð­ustu ár er brott­hvarf Harðar Arn­ar­sonar úr stóli for­stjóra Lands­virkj­unar eftir far­sæl störf í 17 ár. Hörður, sem hafði byggt upp fyr­ir­tækið Marel með mynd­ar­brag þegar hann tók við Lands­virkjun, hætti einu og hálfu ári eftir að Daði Már Krist­ó­fers­son fjár­mála­ráð­herra skipti alfarið út stjórn rík­is­orku­fyr­ir­tæk­is­ins. Stjórn­ar­for­mað­ur­inn Brynja Bald­urs­dóttir er grjót­harður kap­ít­alisti. Hún hefur...

Mest lesið í vikunni

Heimur

Geymdi milljón myndir og mynd­skeið af mis­notkun eig­in­kon­unnar

Níu aðrir menn neita sök
Heimur

Banka­eig­andi hand­tek­inn grun­aður um að hafa tekið 430 millj­ónir dala úr hirslum

Innlent

Matthías neit­aði að hafa skallað lög­reglu­mann en búk­mynda­vélin sagði annað

Pólitík

Krafði Þorgerði svara vegna kjarn­orku­um­mæla Heimis Más

Heimur

Flaug yfir fjöll og götur á heima­smíð­uðu svif­bretti

Pólitík

Pólitík

Segir vinstri menn hafa yfir­tekið Sjálf­stæð­is­flokk­inn

„Slíkur fals-flokkur á engan tilvistarrétt, því hann gerir meira ógagn en gagn“
  • Pólitík

    Dorrit skorar á for­seta Ísraels að hleypa arab­ískum flokkum í rík­is­stjórn

  • Pólitík

    Segir öfga­ísla­mista og öfga hægri­menn eiga margt sam­eig­in­legt

  • Pólitík

    „Ég sakna þess enn meira að heyra rödd mann­rétt­inda á Alþingi“

  • Pólitík

    Kína vill efla tengslin við Ísland á lyk­ilsviðum

  • Pólitík

    Sig­mundur Davíð svarar fyrir fjar­veru sína úr öllum atkvæða­greiðslum