Fara í efni
Kristrún Frostadóttir
„Þegar við tókum við var gert ráð fyrir halla á ríkissjóði næstu fimm árin“
Kristrún Frostadóttir
Innlent

Perla Líf dæmd fyrir að aka á gangandi mann og yfirgefa slysstað

Fólk

„Ég er orðinn leiður á að vera veikur“

Fólk

Áhorf­endur grunaði ekki hvernig Sölku Sól leið á meðan hún söng

Heimur

Spákona varar við alheims­rafmagns­leysi í lok árs

Fólk

Reynslu­bolti úr frétta­heiminum stofnar eigið fyrirtæki

Pólitík

Stefán Einar svarar Þorgerði með orðum Heiðu Kristínar

Innlent

Grun­semdir vöknuðu þegar sonurinn sagðist fá fría ferð til Taílands

Heimur

Kynþokka­fyllsti maður heims afskrifar 200 milljónir dala í læknis­skuldum

Innlent

Kökuboð á Patreks­firði endaði fyrir dómi

Innlent

Sakar ríkis­stjórnina um að gera lítið úr vinnu láglauna­fólks og foreldra

Græna gímaldið dregur dilk á eftir sér

„Mynduð þið una því að búa við þetta sjálf?“

Troða akvegi og vörulosun upp við svefnherbergisglugga:
Troða akvegi og vöru­losun upp við svefn­her­berg­is­glugga: Mynd: Facebook/Árni

Íbúar í Árskógum og við Álfabakka lýsa nú yfir þungum áhyggjum og reiði yfir frágangi í kringum nýbyggingu í hverfinu, sem gengur undir nafninu „græna gímaldið“. Í erindi sem sent hefur verið til borgar­stjórnar Reykja­víkur er ástandinu lýst sem hreinni vanrækslu og hráka­smíði sem brjóti gróflega gegn skipulags­lögum og grenndar­rétti íbúa.

Ásgeir Þór Árnason, íbúi á svæðinu, dregur ekkert undan í bréfi sínu til borgar­fulltrúa og spyr þá hreint út hvort þeir myndu sjálfir sætta sig við slíka nærumhverfis­vitleysu: „Spurningin sem ég vil leggja fyrir ykkur er einföld: Mynduð þið una því að búa við þennan frágang sjálf?“

Bílastæði og vörulosun upp við svefnherbergi

Stærsta áfallið að mati íbúa er hvernig staðið hefur verið að skipulagningu umferðar og hljóð­vistar í þröngu rými á milli bygginga. Þar hefur nýjum akvegi og bílastæðaröð verið troðið niður alveg upp við húsveggi íbúðar­húsa.

„Hér er búið að opna fyrir stöðugan umgang bifreiða, véla­drunur, hurða­skelli, ljósagang í myrkri og vöru­flutninga rétt við stofur og svefn­herbergi fólks,“ segir Ásgeir. Hann bendir jafnframt á að hár og sléttur stál­veggur skemmunnar virki eins og risavaxið bergmáls­hylki þar sem öll hljóð magnast upp. „Samkvæmt byggingar­reglugerð ber að hanna umhverfi þannig að hljóðstig í og við íbúðir fari ekki yfir heilsu­verndar­mörk. Hér virðist hljóðvist aldrei hafa verið reiknuð af alvöru.“

Sýndargróðursetning og malarurðir

Ásýnd svæðisins eftir að framkvæmdum átti að heita lokið er sögð vægast sagt dapurleg og minna frekar á yfir­gefinn námubotn en gróið íbúða­hverfi í höfuð­borginni. Ásgeir lýsir því hvernig möl, mold og iðnaðarlegt bárujárns­stál einkenni umhverfið ásamt nánast gagns­lausum tilraunum til fegrunar:

„Nokkrar trjá­greinar hafa verið settar niður í malar­kantinn eins og til að haka í box á teikningu, án nokkurs tillits til vaxtar­skilyrða eða raun­verulegs skjóls.“

Krefjast þess að borgin grípi í taumana

Íbúar minna á að grenndar­réttur hafi um áratuga­skeið verið hornsteinn íslensks eigna­réttar og að fólk eigi ekki að þurfa að þola óhóflegt ónæði af nýtingu nágranna­lóða. Þeir skora nú á forystu borgar­stjórnar að mæta á svæðið, skoða fráganginn með eigin augum og krefjast þess að lóðarhafi ljúki alvöru jarðvegs- og gróður­frágangi, tryggi hljóð­dempun og endur­skoði aksturs­leiðir.

„Hverfið á betra skilið en að vera afgangs­stærð í skipulagi Reykja­víkur,“ segir Ásgeir að lokum.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Heimur

Bæjar­kötturinn skrópaði á athöfn

Bronsstytta af kettinum Susie var afhjúpuð í Dorchester á sunnudag. Myndhöggvarinn Ama Menec sótti innblástur í rómverska sögu bæjarins.
Pólitík

Snorri varar við því að menn geti misst stjórn á gervi­greind

Pólitík

Þingmenn fara yfir bréf frá fólki með þroska­hömlun

Heimur

Mette hafnar tengslum við hægri­öfgamenn eftir ummæli um „útskiptin miklu“

Innlent

Í sex af hverjum tíu tilvikum var morðinginn úr fjöl­skyldunni

Innlent

Bjarni varar við týndum áratug í efnahags­málum

„Afleiðing þeirrar stefnu sem er boðuð verður að öðru óbreyttu minni fjárfesting, hægari vöxtur, færri spennandi störf og lakari lífskjarasókn.“

Krefjast ákæru fyrir manndráp af gáleysi eftir bana­slysið í Grindavík

Foreldri fór yfir strikið á körfubolta­móti tíu ára drengja

Lögregla leitar ökumanns eftir að ekið var á stúlku á Akureyri

Grunsamlegar manna­ferðir án manna

Börn tóku upp eigin blóðugu árás á feðga og hæddust að þeim