Fara í efni
Kristrún Frostadóttir
„Þegar við tókum við var gert ráð fyrir halla á ríkissjóði næstu fimm árin“
Kristrún Frostadóttir
Innlent

Dæmd fyrir að aka á gangandi mann og yfirgefa slysstað

Fólk

Áhorf­endur grunaði ekki hvernig Sölku Sól leið á meðan hún söng

Fólk

Reynslu­bolti úr frétta­heiminum stofnar eigið fyrirtæki

Heimur

Spákona varar við alheims­rafmagns­leysi í lok árs

Innlent

Börn tóku upp eigin blóðugu árás á feðga og hæddust að þeim

Innlent

Bjarni varar við týndum áratug í efnahags­málum

Fólk

Fegurðar­drottningin Karen Ósk stofnar félag um stafrænar eignir

Fólk

Við Blátún bíða bjartar stofur og skjólsæll garður

Innlent

Krefjast ákæru fyrir manndráp af gáleysi eftir bana­slysið í Grindavík

Heimur

Ferð fyrr­verandi klám­stjörnu til Sýrlands vakti deilu

Ættarnafn ömmunnar varð að langri deilu við stjórnvöld

Þjóðskrá synjaði umsókninni þar sem amman lést árið 1990

Fólk í Reykjavík
Fólk í Reykja­vík Myndin teng­ist frétt­inni ekki beint. Mynd: Stjórnarráðið/Hari

Umboðs­maður Alþingis telur að úrskurður dómsmála­ráðuneytisins í máli konu sem óskaði eftir að taka upp ættarnafn ömmu sinnar hafi ekki verið í samræmi við lög. Álitið var birt á vefsíðu umboðs­manns 16. september, en því var lokið 22. júlí síðastliðinn.

Málið á rætur að rekja til ársins 2023 þegar konan sótti um hjá Þjóðskrá Íslands að taka upp kenninafn sem móðuramma hennar hafði borið. Konan hafði búið með ömmu sinni frá fæðingu og fram á fullorðinsár og sagði hana hafa gegnt veiga­miklu hlutverki í uppeldi sínu. Hún færði jafnframt fram persónulegar ástæður fyrir því að vilja ekki bera áfram föðurnafn sitt.

Þjóðskrá synjaði umsókninni þar sem amman lést árið 1990, áður en eldri manna­nafnalög tóku gildi árið 1991. Dómsmála­ráðuneytið staðfesti þá ákvörðun í nóvember 2023 og taldi konuna ekki uppfylla laga­skilyrði til að bera ættar­nafnið.

Umboðs­maður komst hins vegar að þeirri niður­stöðu að stjórn­völd hefðu átt að leggja sérstakt mat á hvort gildar ástæður mæltu með nafn­breytingunni samkvæmt 16. grein mannanafna­laga.

Umboðs­maður tók fram að ekki væri heimilt að nota ákvæðið til að taka upp ný ættarnöfn hér á landi. Öðru máli gegndi hins vegar um rótgróin ættarnöfn sem þegar væru borin af fólki hér á landi. Nafnið sem konan óskaði eftir að taka upp hefði lengi verið borið af fjölda einstaklinga og teldist því ekki nýtt ættarnafn.

Niður­staðan var því sú að Þjóðskrá hefði átt að meta sérstak­lega hvort persónulegar aðstæður konunnar væru gild ástæða fyrir því að heimila henni að taka upp nafnið.

Umboðs­maður beindi því til dómsmála­ráðuneytisins að taka málið upp að nýju óski konan eftir því og jafnframt að taka framvegis mið af sjónar­miðum álitsins í sambærilegum málum.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Innlent

Unnar hótaði mæðginum og fjöl­skyldan fór í felur

Þorðu ekki að vera heima og fluttu sjö sinnum
Innlent

„Ég vil ekki að Ísland upplifi bakslag“

Fólk

Fimm svefn­herbergi og bílaplan fyrir ættar­mótið

Innlent

Það verður fjör í fána­stöngunum síðdegis

Innlent

Lögregla leitaði að vopnuðum einstak­lingum í Breið­holti

Þá var einnig tilkynnt um grunsamlegar mannaferðir

Sendi saksóknara falsað læknis­vottorð og hlaut ársfangelsi

Í sex af hverjum tíu tilvikum var morðinginn úr fjöl­skyldunni

Foreldri fór yfir strikið á körfubolta­móti tíu ára drengja

Lögregla leitar ökumanns eftir að ekið var á stúlku á Akureyri

Grunsamlegar manna­ferðir án manna