Anna Kristjánsdóttir
„Ég lokaði af allar tilfinningar og gerðist kall.“
Anna Kristjánsdóttir
Skoðun

Strætó hefur aldrei verið verri

Fólk

Helga­fell á Sel­tjarn­ar­nesi komið á sölu

Innlent

Falsaðar ljós­myndir orðnar algengar í fast­eigna­aug­lýs­ingum

Landið

Nál fannst í hrekkja­vökusúkkulaði á Akureyri

Fólk

Breið­holts­laug, Laug­ar­dalur og Hósiló meðal staða sem fá góð með­mæli

Innlent

Gleymdi kaffi­bolla og rusli og end­aði fyrir kæru­nefnd

Innlent

Vopn komu við sögu þegar ung­lingap­artý fór úr bönd­unum

Heimur

Trúður vakti óhug við grunn­skóla

Innlent

Einn lát­inn og annar á gjör­gæslu eftir hnífstungu­árás í Breið­holti

Fólk

Sjö góðar ástæður til að baka oftar

Aðstandendur tónleika Of Monsters and Men leggja áherslu á að tónleikarnir séu aðgengilegir öllum

„Við viljum mæta þörfum allra“

Aðstandendur tónleika Of Monsters and Men leggja áherslu á að tónleikarnir séu aðgengilegir öllum
Tón­leik­arnir eiga að vera fyrir alla Mynd: Of Monsters and Men

Umræða skap­að­ist innan Facebook-hóps­ins Beauty tips eftir að Þóra Marta Krist­jáns­dóttir vakti athygli á erf­ið­leikum sumra við að tryggja sér sæti á tón­leikum Of Monsters and Men í Kaplakrika. Hljóm­sveitin og tón­leika­hald­arar harma þær upp­lýs­ingar sem miða­salan veitti og árétta að unnið sé að því að tryggja aðgengi fyrir öll.

Óvissan hófst þegar Þóra Marta sendi fyr­ir­spurn vegna tón­leik­anna þar sem miðar voru ónúm­eraðir, en hún von­að­ist til þess að hægt yrði að tryggja sæti fyrir fólk með skerta hreyfi­getu. Svarið sem hún fékk frá miða­söl­unni Tix.is olli henni miklum von­brigðum. Þar kom fram að stúku­sæti yrðu í boði á meg­in­regl­unni „fyrstir koma, fyrstir fá“ og ekki væri hægt að taka frá sæti fyrir neinn. Þóra Marta birti skjá­skot af sam­skipt­unum á sam­fé­lags­miðlum og dró þá ályktun að sumir tón­leikar væru ein­fald­lega „bara fyrir heil­brigða.“.

Svör miðasölunnar endurspegla ekki áherslur hljómsveitarinnar

Hljóm­sveitin Of Monsters and Men og tón­leika­hald­arar hafa nú sent frá sér yfir­lýs­ingu þar sem þeir leið­rétta þann mis­skiln­ing sem þessi svör sköp­uðu. Þeir taka skýrt fram að svör miða­söl­unnar end­ur­spegli ekki það fyr­ir­komu­lag sem unnið sé eftir.

„Frá upp­hafi höfum við lagt mikla áherslu á að tón­leik­arnir séu aðgengi­legir og að allir gestir geti notið þeirra við sem bestar aðstæður, enda mikil spenna hjá með­limum sveit­ar­innar að enda alheims­tón­leika­ferð á Íslandi,“ segir í svari hljóm­sveit­ar­innar.

Þá kemur fram að hljóm­sveit­inni hafi ekki verið kunn­ugt um erindi Þóru Mörtu fyrr en málið kom upp á sam­fé­lags­miðlum en hún fagni öllum erindum. Nú þegar sé byrjað að aðstoða fólk sem hefur lýst eftir sér­stökum þörfum.

„Nú þegar hafa gestir sett sig í sam­band við okkur vegna sér­stakra þarfa og höfum við unnið með hverjum og einum að því að tryggja við­eig­andi aðstöðu bæði í gegnum Tix sem og í eigin per­sónu.“

Hvetja fólk til að hafa samband

Aðstand­endur tón­leik­anna segja mark­mið sitt ein­falt: að allir sem vilja njóta heim­komu­tón­leik­anna geti gert það á sem bestan máta. Þeir harma þá óþarfa óvissu sem stöðluð svör Tix.is kynnu að hafa valdið og hvetja alla þá sem þurfa sér­staka aðstoð eða aðstöðu að láta vita af sér.

„Við hvetjum alla gesti sem telja sig þurfa sér­staka aðstöðu eða aðstoð til að hafa sam­band við Tix eða tón­leika­hald­ara. Við munum leggja okkur áfram fram um að finna lausn og tryggja að allir geti notið frá­bærra tón­leika við sem bestar aðstæður og átt ógleym­an­legt kvöld með okkur í Kaplakrika.“

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

3
Minning

Helgi Ólafsson er fall­inn frá

Helgi Ólafsson, raf­virkja­meist­ari á Rauf­ar­höfn, lést á Dval­ar­heim­il­inu Hvammi 27. októ­ber, 97 ára að aldri. Morg­un­blaðið greindi frá and­láti hans. Helgi fædd­ist á Rauf­ar­höfn 31. maí 1929 og ólst þar upp. Hann lauk sveins­prófi í raf­virkjun árið 1950 og hlaut meist­ara­rétt­indi fimm árum síðar. Hann starf­aði við raf­virkjun alla starfsæv­ina, meðal ann­ars fyrir Síld­ar­verk­smiðjur rík­is­ins og SR-mjöl, auk þess að...
5
Slúður

Stjórn­ar­hættir Brynju

Einn und­ar­leg­asti atburður í íslensku atvinnu­lífi síð­ustu ár er brott­hvarf Harðar Arn­ar­sonar úr stóli for­stjóra Lands­virkj­unar eftir far­sæl störf í 17 ár. Hörður, sem hafði byggt upp fyr­ir­tækið Marel með mynd­ar­brag þegar hann tók við Lands­virkjun, hætti einu og hálfu ári eftir að Daði Már Krist­ó­fers­son fjár­mála­ráð­herra skipti alfarið út stjórn rík­is­orku­fyr­ir­tæk­is­ins. Stjórn­ar­for­mað­ur­inn Brynja Bald­urs­dóttir er grjót­harður kap­ít­alisti. Hún hefur...

Mest lesið í vikunni

Innlent

Einn bak við lás og slá eftir lík­ams­árás í Árbæ

Heimur

Bauð inter­net­inu í brúð­kaupið og allt fór á annan end­ann

Myndband
Heimur

Dádýr skall á konu og braust inn í þvotta­hús

Innlent

Fluttur á bráða­mót­töku eftir að eldur kom upp í íbúð

Menning

Laxness slær í gegn hjá The Guardian

Menning

Menning

Sendu sím­ann í svefn­poka og fáðu smá frið

Menning

Nýtt bóka­for­lag vill efla íslensku­lestur meðal fólks af erlendum upp­runa

Menning

Ást, missir og barn­þrá í upp­seldri skáld­sögu Mar­grétar

Menning

Frá Rocky og Springsteen til aftöku í Sádi-Arabíu

Myndband
Menning

Luthers­son frum­sýnir blóð­uga ást­ar­sögu í eyði­mörk Kali­forníu