Fara í efni
Þorbjörg Sigríður Gunnlaugsdóttir
„Fer svo heim að taka upp podcast þar sem hann titlar sig Ritstjórann“
Þorbjörg Sigríður Gunnlaugsdóttir
Heimur

Kærastan fann dagbækurnar og sleit sambandinu við David Walliams

Fólk

„Ég er orðinn leiður á að vera veikur“

Innlent

Grun­semdir vöknuðu þegar sonurinn sagðist fá fría ferð til Taílands

Pólitík

Stefán Einar svarar Þorgerði með orðum Heiðu Kristínar

Heimur

Kynþokka­fyllsti maður heims afskrifar 200 milljónir dala í læknis­skuldum

Heimur

Spákona varar við alheims­rafmagns­leysi í lok árs

Fólk

Átta mistök sem fólk ætti að forðast ef það flýgur um jólin

Innlent

Kökuboð á Patreks­firði endaði fyrir dómi

Fólk

Hlýlegt heimili við Efri Hól bíður nýrra eigenda

Innlent

Sakar ríkis­stjórnina um að gera lítið úr vinnu láglauna­fólks og foreldra

Svara versnandi líðan barna

Stærsta umhverfis­mennta­verkefni í heimi í Mosfellsbæ

Færa kennslustofuna út í náttúruna
Færa kennslu­stof­una út í nátt­úr­una Mynd: Unsplash/Josue Michel

Grænfáninn efnir til spennandi ráðstefnu þann 2. október næst­komandi í Hlégarði í Mosfellsbæ, þar sem sjónum verður beint að útikennslu og vellíðan í skóla­starfi. Ráðstefnan kemur á mikil­vægum tíma­punkti en ný skýrsla heilbrigðis­ráðuneytisins sýnir vaxandi lýðheilsu­áskoranir og versnandi andlega líðan meðal barna og ungmenna á Íslandi.

Skráningar­frestur á ráðstefnuna er til og með mánudeginum 28. september, að því er fram kemur í frétta­tilkynningu frá Landvernd.

Hvað er Grænfáninn?

Grænfáninn er alþjóðleg viðurkenning fyrir skóla sem vinna markvisst að umhverfis­málum og menntun til sjálfbærni. Um er að ræða stærsta umhverfis­mennta­verkefni í heimi og hafa Sameinuðu þjóðirnar útnefnt Grænfánann sem helsta innleiðingar­tæki menntunar til sjálfbærni á heimsvísu.

Útikennsla sem forvörn og svar við lýðheilsuvanda

Rann­sóknir sýna bein tengsl útiveru við aukna andlega vellíðan og einbeitingu nemenda. Með því að færa kennslu­stofuna út í náttúruna fá nemendur dýpri skilning á lífbreytileika og skapa sterka tengingu við náttúruna, sem er lykillinn að því að ýta undir umhverfis­vitund.Í ljósi nýrrar skýrslu heilbrigðis­ráðuneytisins – þar sem fram kemur að andlegri líðan barna hafi hrakað á undan­förnum áratugum og að hreyfingu og mataræði sé ábótavant – getur útikennsla nýst sem mikilvægt tæki í forvörnum og aðgerðum. Hún ýtir undir fjöl­breytta kennslu, hreyfingu og vitneskju um heilbrigða lifnaðar­hætti.

Öflugir fyrirlesarar á dagskrá

Á dagskrá ráðstefnunnar eru fróðleg lykil­erindi og líflegar vinnu­stofur um tengsl útikennslu við vellíðan, lífbreytileika og náttúru­tengingu:

  • Staðar­tengd útimenntun og vísinda­læsi – Edda Elísabet Magnúsdóttir, lektor í kennslu náttúru­vísinda við Mennta­vísindasvið Háskóla Íslands og PhD í líffræði.
  • Bækurnar um Sóley og Fífu: Innblástur fyrir fræðslu, góð samskipti og leik í nátt­úrunni – Þorbjörg Sandra Bakke, teymis­stjóri hringrásar­hagkerfisins hjá Orku- og umhverfis­stofnun og rithöfundur.
  • Áhrif umhverfis á heilsu – Kristín Sigurðar­dóttir, slysa- og bráða­læknir og kennari við Háskóla Íslands og Háskóla Reykja­víkur.

Að erindunum loknum standa þátt­takendum til boða fjöl­breyttar vinnu­stofur fyrir mismun­andi skólastig ásamt mennta­búðum. Þar verður hægt að flakka á milli kynninga­bása og kynna sér meðal annars jóga fyrir börn, námsefni og dæmi um vel heppnuð verkefni.

Að sögn aðstand­enda gefst hér kjörið tækifæri fyrir skólafólk, kennara og önnur áhugasöm til að viða að sér nýjustu þekkingu þegar kemur að útikennslu og vellíðan nemenda.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Innlent

Lögregla leitar ökumanns eftir að ekið var á stúlku á Akureyri

Stúlkan var á rafmagnsreiðhjóli á Byggðavegi við Vanabyggð. Lögregla óskar eftir upplýsingum frá vitnum.
Innlent

Grunsamlegar manna­ferðir án manna

Fólk

Áhorf­endur grunaði ekki hvernig Sölku Sól leið á meðan hún söng

Innlent

Börn tóku upp eigin blóðugu árás á feðga og hæddust að þeim

Innlent

Krefjast ákæru fyrir manndráp af gáleysi eftir bana­slysið í Grindavík

Innlent

Sendi saksóknara falsað læknis­vottorð og hlaut ársfangelsi

Sakaferill mannsins nær aftur til ársins 2010

Innkalla vinsælt jólasmáköku­deig vegna aðskotahluts

Hrafn­hljóð flýgur inn á manna­nafnaskrá

Sverrir spyr hvað heilli karla við ofbeldið í Grand Theft Auto